Feykir - 21.03.2013, Blaðsíða 11
11/2013 Feykir 11
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
er eigi heimskur maður.
Tilvitnun vikunnar
Að lesa án þess að velta vöngum, er líkt og að
borða án þess að melta. - E. Burke
Sudoku
Grímglúmur Hrollgeir háls nef og eyrnalæknir
og skordýrasafnari í frístundum, á sér dulda
drauma um frama í pólitík. En óheppnin
eltir Grímglúm Hrollgeir. Hann er ekki fyrr genginn í
stjórnmálaflokk þegar flokkurinn er lagður niður.
HINRIK MÁR JÓNSSON
Örlaga örsögur
sem ég hef á mínum snærum. Ég er á
fullu að undirbúa yngsta stigið fyrir þeirra
árshátíð sem verður í apríl en hlutverk
mitt þar er að æfa sönglögin með þeim.
Ég er nýbúin að frumsýna Galdra-
karlinn í Oz þannig að nú er það verkefni
út af borðinu hjá mér. Þá er að snúa sér að
næsta verkefni sem er þátttaka 9. bekkjar í
valáfanga leiklistar þar sem þau taka þátt
í Þjóðleik sem er samstarfsverkefni við
Þjóðleikhúsið á landsvísu. Það styttist
í frumsýningu á því leikriti og fer því
hluti af vinnudeginum í undirbúning
þess. Framundan er landsmót skólakóra
og undirbúningur undir það í fullum
gangi, einnig æfir kórinn fyrir Kóramót
Karlakórsins Heimis og Rökkurkórsins
sem er árviss atburður í Sæluviku. Þar
mun skólakór Árskóla koma fram.
Dagurinn hjá mér er því ansi þéttsetinn
og í mörg horn að líta þar sem hvert og
Íris Baldvinsdóttir
grunnskólakennari
Vinnudagurinn
undirlagður af
verkefnum
Íris Bald-
vinsdóttir
á Sauðár-
króki hefur ýmislegt á prjónunum
dags daglega. Hún er menntuð sem
þroskaþjálfi og vann sem slíkur bæði
hjá Svæðisskrifstofu Norðurlands vestra
og í Árskóla svo útskrifaðist hún sem
grunnskólakennari 2010 með kjörsvið:
tónlist, leiklist og dans. Íris svarar hér
nokkrum spurningum í þættinum Frá
morgni til kvölds.
Hvenær hefst venjulegur vinnudagur
hjá þér? -Venjulegur vinnudagur hefst kl.
8:00.
Hvað færðu þér í morgunmat? -Í morgun-
mat fæ ég mér cheerios með undanrennu
eða próteinhristing og sportþrennu.
Hvernig myndir þú lýsa venjulegum
vinnudegi hjá þér? -Ég byrja daginn á því
að fara í Þreksport og ná upp vinnuþrekinu
með því að taka vel á. Klukkan 08:00 er ég
svo mætt til kennslu fersk og spræk.
Ég kenni tónmennt, heimilisfræði
og leiklist ásamt því að stjórna þremur
kórum í skólanum, yngsta, mið og
unglingastigskórum. Vinnudagurinn er
því undirlagður af verkefnum tengdum
kennslu og undirbúningi fyrir hana ásamt
undirbúningi fyrir þau ólíku viðfangsefni
FRÁ MORGNI TIL KVÖLDS
UMSJÓN palli@feykir.is
Ótrúlegt en kannski satt
Stærsti núlifandi fugl sem byggir okkar heim
er strúturinn. Karlfuglinn getur orðið 250sm hár
og vegið um 150 kg. Oft er sagt að strúturinn
stingi hausnum í sandinn, verði hann hræddur,
en ótrúlegt og kannski satt þá fannst ekkert
slíkt tilfelli í rannsókn sem gerð var á 200.000
strútum yfir 80 ára tímabil.
GUÐRÚN SONJA
BIRGISDÓTTIR
-Ég ætla til Reykjavíkur
að hitta fólk.
AUÐUR BJÖRK BIRGISDÓTTIR
-Vera heima og
borða páskaegg.
ÁSTA KAREN JÓNSDÓTTIR
-Vinna og heimsækja ættingja
á Patreksfirði.
SÆDÍS BYLGJA
JÓNSDÓTTIR
-Vinna, ríða út og fara í
fermingarveislur.
MARGRÉT ALDA
MAGNÚSDÓTTIR
-Ég ætla að vinna og svo slaka á.
Feykir spyr...
Hvað ætlar
þú að
gera um
páskana?
[spurt á Sauðárkróki]
eitt viðfangsefni fær sinn tíma. Það er
mjög mismunandi hvenær ég stimpla
mig út, stundum er klukkan orðin fjögur
stundum er klukkan orðin sex, en þegar ég
hef stimplað mig út frá vinnu við Árskóla
fer ég í tónlistaskólann við Borgarflöt og
skúra þar.
Ég er því oftast að koma heim um
klukkan sjö en þá taka við heimilisstörf og
eftir það afslöppun í sófanum.
Hvað er gert í kaffitímum? -Þegar ég hef
tíma til að fá mér kaffi sest ég niður með
vinnufélögum mínum og spjalla um lífið
og tilveruna.
Hvernig eyðir þú hádegishléinu?
-Stundum á hlaupum að undirbúa
eitthvað sem liggur á, stundum með
vinnufélögum við spjall og hlátur.
Hvað er best við starfið? -Það besta
við starfið er hversu fjölbreytt og
skemmtilegt það er. Mér finnst ég vinna
á skemmtilegasta vinnustað í heimi,
skemmtilegir krakkar sem ég kenni
og umgengst ásamt skemmtilegum og
vinalegum vinnufélögum sem alltaf eru
tilbúnir að rétta hjálparhönd ef þarf.
Ef þú þyrftir að skipta um starf hvað
gætir þú hugsað þér að gera? -Ef ég þyrfti
að skipta um starf myndi ég velja mér starf
svipuðu því sem ég er að gera, eitthvað
tengt listum og kennslu.
Eitthvað minnisstætt úr vinnunni
sem þú vilt deila með lesendum?
-Hver dagur á sér minnistæðan atburð,
einhver kennslustund þar sem barn
uppgötvar eitthvað sér áður hulið, atvik
sem vinnufélagar deila með sér og við
gleðjumst yfir því saman, hlátrasköllin
í starfsmannaaðstöðunni eru stundum
mjög hávær og mikil gleði þannig að ég
geymi mörg minnisstæð atvik í huga mér.
Íris á góðri stund.