Feykir - 21.03.2013, Side 5
11/2013 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir
Öldungamót Þórs
Þrefaldur skag-
firskur sigur
Skagfirðingar voru sigursælir
á Öldungamóti Þórs sem
fram fór á Akureyri sl.
laugardag. Molduxar fóru
heim með gullpening um
hálsinn í flokki 40+ og
Þrymur sigraði í flokki undir
40 ára.
Þá sigraði Molduxinn Val-
björn Geirmundsson vítaskot-
keppnina með glæsibrag eða
með 100% nýtingu. Mættu
margir taka Valbjörn sér til fyrir-
myndar í körfuboltaheiminum.
Í yngri flokknum kepptu
einnig Hvítserkur úr Húnaþingi
vestra og stóðu sig með miklum
sóma. Börðust þeir allan tímann
með blóðbragð í munni líkt og
Kormákur forðum og af einum
má segja að hann lék með slitin
liðbönd allt þar til hann var
borinn af velli einfættur. Við
verðlaunaafhendinguna stóð
Árni Egils upp fyrir hönd
Molduxa og afhenti Eiríki
mótshaldara stofnskjal og -fé í
Körfuendurnýjunarsjóð Akur-
eyrar, skammstafað KEA. Eiríkur
þakkaði fyrir sig og vonaðist
hann til að það kæmi að gagni í
baráttu hans við að fá körfurnar
endurnýjaðar í húsinu. Sagðist
hann ætla með skjalið til
bæjaryfirvalda með von um
skilning þar á bæ.
Þess má geta að byrjunarlið
Molduxa var ávallt yfir hálfu
tonni að þyngd. /PP
Fræknir feðgar á Öldungamóti Þórs. Friðrik Jónsson og Stefán Friðrik Friðriksson.
Dominos-deildin í körfubolta
Tindastóll féll í 1. deild
lið Tindastóls aðeins þrjú stig en
ÍR mallaði inn 14 stigum á sama
tíma, þ.m.t. flautukörfu Hjalta
Friðrikssonar sem tryggði
Breiðhyltingum átta stiga sigur
og betri stöðu í innbyrðis
viðureignum liðanna. /ÓAB
Stig Tindastóls: Helgi Rafn 15, Tarick
Johnson 13, Drew Gibson 12, Helgi
Freyr 8, Hreinn 8, Svavar 8, Pétur Birgis
4 og Valentine 4.
Tindastóll 91
Grindavík 97
Það var fjölmennt í Síkinu en
Kaupfélag Skagfirðinga og Fisk
Seafood buðu áhorfendum á
leikinn. Stemningin var góð og
leikurinn fór vel af stað.
Byrjunarlið Tindastóls var
skipað Búbbunum Svabba og
Hreinsa, Helga Rafni og og
Johnson og Gibson. Valentine
vermdi bekkinn eftir dapra
frammistöðu í síðasta leik. Bæði
lið voru sjóðheit fyrir utan 3ja
stiga línuna og skiptust á um
forystuna en það voru gestirnir
sem voru þremur stigum yfir,
29-32, að loknum fyrsta
leikhluta. Þeir náðu mest níu
stiga forystu í öðrum leikhluta
en Stólarnir hleyptu þeim ekki
of langt fram úr og í hléi var
staðan 46-53.
Sex stigum munaði fyrir
síðasta fjórðung, 69-75, og nú
fór að kvisast út í Síkinu að
blessaðir KR-ingarnir væru í
basli fyrir vestan. Stjarnan var
hins vegar að baka Fjölnis-
menn og því líklegt að Stólarnir
þyrftu að halda vel á spöðunum
og sigra Grindvíkinga ef þeir
ætluðu að halda sætinu í efstu
deild. Leikurinn var æsispenn-
andi og allt á suðupunkti í
Síkinu. Þegar um tvær mínútur
voru eftir var munurinn kominn
niður í 2 stig. Vörn Tindastóls
var orðin þéttari og þegar um
mínúta var eftir unnu
heimamenn boltann í vörninni
og lögðu í sókn með möguleika
á að jafna metin eða komast yfir.
Boltanum tapaði Johnson um
leið og hann fór yfir miðlínuna
og Grindvíkingar refsuðu
grimmilega. Stólarnir börðust
allt til loka en náðu ekki að ógna
deildarmeisturunum sem
sigruðu sem fyrr segir 91-97.
Þegar leik lauk í Síkinu biðu
flestir viðstaddir með símann í
hálsinum því enn voru tæpar
fimm mínútur til leiksloka á
Ísafirði og heimamenn yfir gegn
KR. Þó svo að aldrei þessu vant
hafi allir Skagfirðingar haldið
með KR í fimm mínútur þá
dugði það ekki til því KR tapaði
og Stólarnir þar með fallnir.
Það er svo sem ekki hægt að
nöldra mikið undan leik
Tindastóls. Tvennt varð þó til að
svekkja stuðningsmenn Tinda-
stóls; George Valentine var ekki
svipur hjá sjón frekar en í
leiknum gegn ÍR og vítahittni
heimamanna var slök. En það
var allan tímann ljóst að til að
sigra deildarmeistara Grinda-
víkur þurftu allir að hitta á
stórleik. Það náðist ekki alveg
þrátt fyrir góða baráttu og
ágætan leik. /ÓAB
Stig Tindastóls: Helgi Rafn 16 / 9 frk.,
Tarick Johnson 16 / 5 stoðs., Svavar
Atli 15, Drew Gibson 13, Valentine 10,
Þröstur Leó 9, Pétur Rúnar 5, Hreinn
Gunnar 5 og Helgi Freyr 2.
Helgi Rafn var atkvæðamestur Stólanna á móti Grindavík og uppskar 16 stig.
Leikmenn og
stuðningsmenn Tindastóls
urðu að bíta í það súra epli
sl. sunnudagskvöld að falla
niður um deild í körfunni
eftir hörkuleik við
deildarmeistara Grindavíkur.
Það var lið KFÍ á Ísafirði
sem eitt botnliðanna sigraði
sinn leik í kvöld, en
Ísfirðingar unnu KR með
fimm stiga mun, og komust
því upp fyrir Stólana.
Lokatölur í Síkinu í kvöld
urðu 91-97 fyrir Grindavík.
Fjórum dögum áður léku
Stólarnir ekki síður
mikilvægan leik við ÍR í
Breiðholti.
ÍR 80
Tindastóll 72
Lið Tindastóls fór illa að ráði
sínu sl. fimmtudagskvöld þegar
strákarnir öttu kappi við ÍR í
Hertz-hellinum í Breiðholtinu.
Það var ljóst að bæði lið þurftu
nauðsynlega að sigra og jafn
ljóst að það var aldrei að fara að
gerast. Stólarnir þurftu hins
vegar að gjöra svo vel að passa
upp á að tapa í það minnsta ekki
með með meira en 5-6 stiga
mun. Með flautuskoti í lok
leiksins í gær náði ÍR að sigra
með átta stiga mun, 80-72.
Stólarnir áttu ekki góðan
leik en fátt benti þó til þess að
ÍR-ingar næðu takmarki sínu
að sigra með meira en sex stiga
mun. Lokafjórðungurinn var
hins vegar ömurlegur fyrir
gestina sem gerðu aðeins 11 stig
á meðan ÍR gerði 20.
Jafnræði var með liðunum í
fyrsta leikhluta en ÍR náði
góðum kafla um miðjan annan
leikhluta og náðu 10 stiga
forskoti. Aðeins náðu Stólarnir
að klóra í bakkann og í hálfleik
munaði sex stigum, staðan 44-
38. Hreinsi gaf tóninn í upphafi
þriðja leikhluta með 3ja stiga
körfu og Tarick Johnson kom
Stólunum yfir um miðjan
leikhlutann. Staðan var 60-61
fyrir Tindastól þegar fjórði
leikhluti hófst og Pétur Birgis
gerði fyrstu körfu fjórðungsins
og staðan 60-63. ÍR-ingar skiptu
yfir í svæðisvörn sem Stólarnir
réðu illa við. Engu að síður voru
gestirnir með þriggja stiga
forystu þegar tæpar fimm
mínútur voru eftir, staðan 66-
69, en á þeim tæpu fimm
mínútum sem eftir lifðu gerði
Knattspyrna : Lengjubikarinn
Jafntefli gegn ÍBV
Meistaraflokkur karla mætti
ÍBV í Lengjubikarnum sl.
laugardag í Reykjaneshölli-
nni. Samkvæmt heimasíðu
Tindastóls komu Tindastóls-
menn gríðar vel stemmdir í
þennan leik og spiluðu
virkilega góðan fótbolta á
móti mjög sterku liði ÍBV.
Á heimasíðu Tindastóls segir
að ÍBV hafi komið sterkir inn í
seinni hálfleikinn en Tindastóls-
menn vörðust gríðar vel.
ÍBV komst yfir með góðu
viðstöðulausu skoti fyrir utan
teig en Tindastóll efldist í raun
við markið. Tóku þeir völdin
aftur í sínar hendur og sýndu
styrk sinn og vilja með því að
jafna leikinn. Arnar Sig vann
boltann og sendi á Óskar Smára
inn fyrir vörn ÍBV og honum
brást ekki bogalistin og setti
boltann af öryggi framhjá
markmanni ÍBV. Skömmu síðar
komust Eyjamenn aftur yfir
með marki sem Messi hefði
verið stoltur yfir. Þá setur leik-
maður ÍBV boltann í fallegum
boga yfir markmann Stólanna
og upp í fjærhornið umkringdur
leikmönnum Tindastóls. Eins
og áður héldu leikmenn
Tindastóls áfram og spiluðu
mjög vel og aftur sýndu þeir
gríðarlega mikinn vilja með því
að koma aftur til baka og
jöfnuðu í annað sinn. Þá sendi
Konni frábæra sendingu inná
teiginn þar sem Guðni og Arnar
Sig. voru aleinir í teignum og
Guðni tók sig til og lagði boltann
fallega í markið af mikilli
yfirvegun. Staðan 2-2 og allt í
járnum. Í lokin voru leikmenn
Tindastóls óheppnir að skora
ekki sigurmarkið en þeir fengu
sannkallað dauðafæri þegar lítið
var eftir en leikmaður ÍBV rétt
náði að henda sér fyrir boltann.
Sl. þriðjudagskvöld háðu
Stólarnir erfiðan leik gegn
Grindavík sem höfðu betur í
Reykjaneshöllinni 4-0. Eftir
fimm leiki situr Tindastóll á
botninum ásamt BÍ/Bolungar-
vík með 1 stig frá laugardeginum.
/BÞ & PF