Feykir - 11.04.2013, Síða 3
14/2013 Feykir 3
Góð þátttaka á vel
heppnaðri Mótaröð
Hestamannafélagið Neisti
Síðasta mót í Mótaröð
Neista var haldið í sl.
sunnudagskvöld en þá var
keppt í fimmgangi og tölti.
Á heimasíðu Neista kemur
fram að góð þátttaka var á
öll mótin og í heildina var
Mótaröðin vel heppnuð.
„Þátttaka var mjög góð á vel
flestum mótunum svo eftir var
tekið um land allt, og sýnir að
áhugi er hér mikill á svæðinu
fyrir hestamennsku og keppni
á hestum. Við viljum á meðan
að veturinn er enn í fersku
minni, óska eftir því við
www.skagafjordur.is
Þjónustufulltrúi
Landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins auglýsir eftir þjónustufulltrúa í fullt starf
Starfið felur í sér:
• Umsjón og eftirlit með fjallskilasjóðum
• Umsjón með viðhaldi á afréttargirðingum
• Umsýsla og áætlunagerð með refa- og minkaveiði
• Umsjón með landareignum sveitarfélagsins
• Umsjón og úttekt á girðingum í samráði við Vegagerðina
• Tengiliður við dýralækni um hreinsun katta og hunda í sveitarfélaginu
• Eftirlit vegna lausagöngu búfjár
• Tengiliður vegna snjómoksturs og hálkuvarna á ákveðnum svæðum
• Situr fundi landbúnaðarnefnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Skila skal rafrænum umsóknum á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar eða skila inn umsókn um starfið
móttöku Ráðhússins á Sauðárkróki merkt landbúnaðarnefnd - þjónustufulltrúi.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2013.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum sambands íslenskra sveitarfélaga
Upplýsingar um starfið veitir Jón Örn Berndsen, jobygg@skagafjordur.is
Hæfniskröfur:
• Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og reynslu
af landbúnaðarstörfum
• Góða þekkingu á staðarháttum héraðsins.
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Starfið hentar bæði körlum sem konum.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
Fjölbreytt og gefandi sumarstörf
fyrir 18 ára og eldri eru í boði
hjá Ferðaþjónustunni Hólum í Hjaltadal.
Störfin felast meðal annars í
Móttöku gesta - Þrif - Eldhúsvinna
Sundvarsla - Þjónusta í sal og afgreiðsla.
Nánari upplýsingar
í síma: 849 6348.
Ferðaþjónustan
Hólum í Hjaltadal
Atvinna í boði!
félagsmenn að
þeir komi með
tillögur varð-
andi framtíð
m ó t a r a ð a r-
innar og eða
tilhögun móta
því að enn er
mótaröðin í
mótun.
Teljum við að
allir hafi haft
nokkuð gaman að þessu,“
segir í tilkynningu frá
mótanefnd Mótaraðarinnar
en hægt er að senda tillögur og
eða bara vangaveltur á net-
fangið hundar@internet.is./BÞ
Sigurvegarar lokamóts í fimmgangi: 1. Tryggvi Björnsson og Sóldís frá Kommu, 2. Sonja Noack og Bú-Álfur frá Vakurstöðum,
3. Jón Gíslason og Hvinur frá Efri-Rauðalæk, 4. Þórólfur Óli Aadnegard og Miran frá Kommu, 5. Jóhanna Stella Jóhannsdóttir
og Hnakkur frá Reykjum. Mynd: Neisti.net.