Feykir - 11.04.2013, Qupperneq 5
14/2013 Feykir 5
Karl Lúðvíksson tekur þátt í 3. Landsmóti UMFÍ:
„Gaman að hitta vini í íþróttunum frá því í gamla daga“
Hugleiðing við lok körfuboltatímabils
Viðtal
Jón Kristján Sigurðsson
,,Ég hef alltaf leitast við að
vera jákvæður
einstaklingur, menn lifa þá
lengur og líður betur. Strax
í upphafi leist mér vel á
Landsmót UMFÍ 50+ og var
ákveðinn að taka þátt og nú
stefnir maður á þriðja
mótið í Vík í sumar.
Mér fannst sérlega gaman
á mótunum tveimur sem
haldin voru á Hvammstanga
og í Mosfellsbæ. Að mínu
mati hafa mótin verið byggð
upp með skynsamlegum
hætti. Það var eðlilegt að
byrja fyrsta mótið á
Hvammstanga með færri
greinum og bæta síðan inn
greinum eins og gert hefur
verið. Mér fannst gaman að
keppa á Hvammstanga við
aðstæður eins og í gamla
daga en einnig var fínt að
koma í Mosfellsbæinn þar
sem aðstæður voru fyrsta
flokks,“ sagði Karl Lúðvíks-
son, íþróttakennari, en í
spjalli við hann kemur í ljós
að hann hefur alla tíð hreyft
sig reglulega og hugsað
þannig vel um heilsuna.
Jæja, þá er þessu lokið á
þessum vetri, og víst urðu
lokin ekki á þann veg sem
væntingar stóðu til á
haustdögum, liðið okkar
Tindastóll skotið niður í 1.
deild á móti deildarmeist-
urunum frá Grindavík í
síðasta leik. Víst var þetta
ekki alveg ókunnugleg
staða, sem uppi var, því
stundum hafa málin
bjargast fyrir horn í síðustu
umferðum en liðið náð að
halda sér í deildinni, og
stundum þurft að reiða sig á
heppileg úrslit annarra
leikja en sinna til þess að svo
mætti verða, - en það hefur
líka verið á hinn veginn.
En vel mætti muna, að
fallið núna, varð ekki vegna
tapsins gegn Grindavík í
þeim leik sem á var minnst,
og ekki við KRinga að sakast.
Fallið varð raunar miklu fyrr
Karl hefur sótt Landsmót
UMFÍ 50+ og í sumar hefur
hann tekið stefnuna á mótið
sem haldið verður í Vík í
Mýrdal dagana 7.-9. júní.
,,Ég er alveg handviss um
að þessi mót eiga framtíðina
fyrir sér. Þátttakan í
Mosfellsbæ var frábær og
veðurguðirnir léku á alls oddi.
Ég hlakka til mótsins í Vík en
umhverfið þar í kring er
fallegt. Það á eftir að verða þar
skemmtileg stemning og ef til
vill flottasta mótið til þessa,“
sagði Karl sem ætlar að taka
þátt í nokkrum greinum í Vík,
mest þó í frjálsum íþróttum.
Hann keppti í fyrrasumar í
greinum innan frjálsra íþrótta
og bætti svo við boccia og
hafði gaman af.
Karl, sem verður 62 ára
gamall á þessu ári, keppti í sjö
greinum á mótinu í
fyrrasumar í Mosfellsbæ.
Stuttu eftir það tók hann þátt í
öldungamótinu og bætti
árangur sinn í hástökki, fór
yfir 1,40 metra. Karl sagðist
ekki æfa markvisst heldur er
hann að gutla í leikfimi tvisvar
í viku eins og hann kemst
sjálfur að orði.
,,Ég er með æfingar fyrir
Ungmenna- og íþróttafélagið
Smára í Skagafirði. Þar er ég
með fólk á aldrinum 14 ára og
upp úr á æfingum. Við erum
þar nokkur á sjötugsaldri,
förum í stöðvaþjálfun, bandý
og tökum fótbolta í lokin. Svo
tökum við auðvitað í lok hvers
tíma teygjuæfingar og
slökun.“
-Þú hefur alla tíð hreyft þig
reglulega og tekið þátt í
íþróttum?
Jú, mikil ósköp. Ég er
íþróttakennari og búinn að
kenna í 41 ár, bæði íþróttir og
bóklegt nám. Síðustu ár hef ég
verið í sérkennslu en ég kenni
við starfsbrautina í Fjöl-
brautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki. Ég stefni
á að hreyfa mig eins lengi og
ég get en það skiptir svo miklu
máli fyrir okkur sem komin
eru á sjötugsaldurinn.
,,Ég mæli hiklaust með því
að fólk sem er komið yfir
miðjan aldur hreyfi sig
reglulega en auðvitað er þetta
persónubundið. Allir þurfa að
passa upp á það að fara rólega
af stað, líka þeir sem voru í
íþróttum á unga aldri. Það
þýðir ekkert að fara af stað
með látum því það getur bara
brotið niður. Það verður að
vera stígandi í þjálfuninni og
reyna ekki of mikið á sig.
Annars er mikil hætta á
slysum og það viljum við öll
koma í veg fyrir,“ sagði Karl.
Karl sagði gaman að hafa
eitthvað til að stefna að og
Landsmót UMFÍ 50+ hafi ýtt
undir það.
-Þú ert viss um að Landsmót
UMFÍ 50+ hafi hitt í mark og
er skemmtilegur staður fyrir
fólk komið yfir miðjan aldur
að hittast og eiga góðan
stund saman?
,,Ég hef heyrt í fólki sem
hefur tekið þátt í þessum
mótum og allir eru sammála
um að vel hefur tekist til. Við
hjónin eigum gamalt hjólhýsi
og ætlum að dvelja í því í Vík.
Það skiptir mestu að hafa
gaman af þessu, hitta fólk og
eiga góða stund saman. Ég
ætla að taka þátt í svipuðum
fjölda greina og í Mosfellsbæ í
fyrrasumar. Mest greinar í
frjálsum íþróttum, stökk og
hlaup. Ég hlakka mikið til og
hvet fólk eindregið til að taka
þátt. Það geta allir fundið
eitthvað við sitt hæfi. Svo er
ekki síður gaman að hitta
gamla vini úr íþróttunum í
gegnum tíðina,“ sagði Karl
Lúðvíksson að lokum.
í vetur þegar töpuðust leikir
sem áttu að skila nánast
auðveldum stigum í hús, gegn
liðum sem ásamt okkar liði
máttu bergja þann beiska
bikar í síðustu umferðunum
að geta fallið við lok
leiktíðarinnar. Þó virtist
Tindastólsliðið hafa alla burði
til að gera góða hluti, en í fyrri
umferðinni varð hvert tapið af
öðru, oftast naumlega, og í
þeirri síðari hélt sama sagan
áfram, þó nokkrir sigrar
ynnust og þá oftar en ekki
gegn þeim liðum sem voru í
efri hluta deildarinnar og etv.
litlar vonir bundnar við að
yrðu sigruð.
Ég minnist þess þegar
Kristinn Friðriksson fyrr-
verandi leikmaður og þjálfari
Tindastóls skrifaði í Mogga
eftir eitt tapið, eitthvað á þá
leið að hann væri enn að bíða
eftir því að Tindastólsliðið
sem hefði á að skipa klassa
leikmönnum í öllum stöðum
færi nú að bíta frá sér og sýna
sitt rétta andlit, og að hala inn
stig, en sú bið varð lengri en
æskilegt var.
En, þessi leiktíð er að baki.
Henni verður ekki breytt, en
það má margt af henni læra.
En nú er bara að horfa fram á
leið og stefna ótrautt að því að
dvölin í 1. deildinni verði ekki
lengri en eitt ár, því að
Tindastóll á að vera í deild
þeirra bestu.
Ég tek undir þau orð Kidda
að Tindastólsliðið er
frábærlega gott, þrátt fyrir að
eitthvert lím virtist vanta í
hópinn og það verður enginn
einn leikmaður nefndur
sérstaklega, hvorki til lofs eða
lasts, en þjálfarinn Bárður
Eyþórsson hefur vissulega
náð árangri, og gert marga
góða hluti þrátt fyrir fallið.
Við skulum nefnilega ekki
gleyma því, í svartnættinu og
þeirri óvægnu umræðu sem
verið hefur hávær á
kaffistofum og víða þar sem
menn mætast, þó að ögn sé
farið að skurna yfir mestu
sárindin, - að það vannst
bikar á leiktíðinni og það er
nú nærri því hálfur annar
áratugur frá því að slíkum
grip var lyft síðast hér á
Króknum, - og þetta gerði
liðið okkar sem féll úr
deildinni núna í vor.
Ég vona að Bárður haldi
áfram með liðið, hann er að
mínu mati búinn að gera góða
hluti og margt sem var á
döfinni í vetur og sumt sem
varð til ágreinings segir mér
ekkert annað en að hér er á
ferðinni þjálfari sem tekur
starf sitt alvarlega og vill ná
árangri. Körfubolti er
liðsíþrótt og liðið verður að
vinna saman sem heild, annað
gengur ekki. Það gengur ekki
að menn geri það sem þeim
dettur í hug, þegar þeim
dettur það í hug og af því bara.
Við eigum fullt af ungum
strákum sem eru að gera
virkilega fína hluti í sínum
flokkum og bíða nú eftir því
að komast að í meistara-
flokknum, þannig að fram-
tíðin er ekkert drungaleg, ef
við bara höldum áfram að
standa við bakið á liðinu.
Og svona rétt í lokin, er
ekki á einhvern hátt unnt að
ná í erlenda leikmenn, sem
standa undir þeim vænt-
ingum sem til þeirra eru
gerðar, svo ekki þurfi að kosta
til transporti á þeim nánast í
öðrum hverjum mánuði allan
veturinn.
Nóg að sinni, - Tindastól í
Úrvalsdeildina næsta vor, og
ekki orð um það meir.
FRÁ LESENDUM Björn Björnsson