Feykir - 15.08.2013, Síða 2
2 Feykir 30/2013
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Athyglissýki og athyglis-
prestur
Viðburðaríkir Hins seginn dagar hafa alveg bjargað gúrkutíð
fjölmiðla undanfarna viku. – Nýlega heyrði ég því fleygt að
tíðin sú væri kennd við fréttamann sem tók upp á því í
fréttaþurrð þeirri sem gjarnan einkennir sumarið að fjalla um
góða gúrkuuppskeru og uppskar þetta ágæta hugtak sem flestir
skilja en færri hafa spáð í fyrir hvað stendur. Óneitanlega kom
sá ágæti sunnlenski fréttamaður Magnús Hlynur fyrst upp í
hugann, án þess að ég hafi neitt fyrir mér í því! Vísindavefurinn
hermir reyndar að orðið sé komið úr dönsku eða jafnvel þýsku,
en sagan er góð og slíkar sögur eiga ekki að gjalda sannleikans.
Sjálfri finnst mér Gleðigöngur og annað sem tilheyrir
réttindabaráttu samkynhneigðra eiga fullan rétt á sér. Ég vona
að áhugavert viðtal í sunnudagsmogganum, við jafnöldru mína
af Skaganum, hafi ekki drukknað í öðrum fréttaflutningi vegna
þessara daga, en í viðtalinu segir hún m.a. að í dag þurfi íslensk
ungmenni varla að koma út úr skápnum, svo sjálfsögð sé
samkynhneigð orðin. Því miður eru þó til þeir sem hafa
einhverjar teprulegar kenndir gagnvart þessum þjóðfélagshópi
sem ætti auðvitað að fæðast með sömu mannréttindi og við
sem höfum notið viðurkenningar á kynhneigð okkar alla tíð.
Alla vega minnist ég þess ekki að hafa orðið fyrir meiri
óþægindum af atlotum samkynhneigðra heldur en
gagnkynhneigðra sem kjósa að kyssast í þurrvörurekkanum í
Kaupfélaginu á Hólmavík eða allt að því stunda samfarir á
dansgólfinu í Miðgarði. En það er auðvitað smekksatriði hversu
mikið fólk kýs að bera einkalíf sitt á torg fyrir aðra og hversu
mikinn áhuga menn hafa á að fylgjast með einkalífi annarra.
Einn af hápunktum Hins seginn daga hefur verið klæðnaður og
þátttaka borgarstjórans Jóns Gnarr í hátíðinni. Að þessu sinni
kom hann fram í upphlut sem ég er sannfærð um að er sá sami
og vinkona mín gifti sig í á Grenjaðarstað þremur helgum áður,
og verð ég nú að segja að mér fannst hún bera hann betur og á
meira viðeigandi hátt en borgarstjórinn. Ég hef alveg húmor
fyrir óvenjulegum athöfnum umrædds borgarstjóra en er samt
orðin dálítið þreytt á honum í þessum karakter og velti því fyrir
mér hvort að auk ADHD greiningarinnar sé hann kannski líka
greindur með ATHS- það er athyglissýki. Reyndar sagði yngsti
sonur minn þegar hann fékk ADHD- greiningu fyrir nokkrum
árum að hann væri með athyglis-PREST og leiðir það hugtak
hugann að presti þeim sem komst í fjölmiðla í tilefni þeirra
hinna sömu Hins seginn daga, fyrir það að skilgreina Jesú m.a.
sem homma og lesbíu. Þar með stal sr. Sigríður Guðmarsdóttir,
sem mér hefur alltaf fundist athyglisverður prestur (og þar með
kannski athyglis-prestur) alveg senunni frá borgarstjóranum
upphlutsklædda. Ég er samt ennþá að velta fyrir mér hvernig
sama manneskjan, þrátt fyrir að vera fræg af endemum og
kraftaverkum, geti í senn verið hommi og lesbía?
Kristín S. Einarsdóttir
Umburðarlynd, en þó ekki án umhugsunar.
Félagið endurreist og
lætur gott af sér leiða
Fyrr í sumar gaf Kvenfélag
Rípurhrepps, sem er elsta
kvenfélag landsins,
Heilbrigðisstofnuninni á
Sauðárkróki gjöf að
verðmætti 500.000 krónur.
Fyrir gjöfina gat
Heilbrigðisstofnunin keypt
sjúkrarúm, sturtustól, tólf
fallega dúka fyrir
Dvalarheimilið og tvo
eyrnamæla fyrir
heilsugæsluna. Einnig
afhentu þær fjölskyldu
Stefáns Jökuls Jónssonar,
sem lést langt um aldur fram
eftir erfiða veikindabaráttu
fyrr á þessu ári, 100.000
krónur.
Ákveðin tímamót urðu á
síðasta ári hjá kvenfélaginu
þegar upp kom sú umræða að
leggja félagið niður þar sem
aðeins sjö konur voru starfandi
og engir nýir félagar höfðu bæst
við síðan 1985. Yngri konur
sem búa í Nesinu eða eru
ættaðar þaðan áttuðu sig á
mikilvægi þess að halda þessu
gamla, merkilega félagi lifandi
og flykktust í félagið. Í dag eru
18 konur starfandi í félaginu.
Við afhendingu gjafabréfs til
Heilbrigðisstofnunnar urðu
einnig formleg stjórnarskipti en
fráfarandi stjórn var búin að
sitja í stjórn í rúm 30 ár. Nýir
félagar gáfu fráfarandi stjórn og
heiðursfélaga, Sigrúnu Hró-
bjartsdóttur, sem verið hefur í
félaginu frá 1951, gjöf fyrir vel
unnin störf í þágu félagsins.
Voru það Gestastofa Sútarans
og Lyfja sem styrktu félagið til
gjafakaupanna. /KSE
SAH Afurðir ehf. hafa birt
verðskrá fyrir lamba- og
kindakjöt til bænda.
Verðbreytingar eru svipaðar
og hjá öðrum afurðastöðum.
Samfelld slátrun hefst hjá
SAH Afurðum 5. september nk.
Á vef félagsins, sahun.is,
segir að séu óskir um slátrun
fyrir þann tíma sé hægt að
bæta við sláturdögum.
Á vef Húna hefur verðskrá
SAH Afurða verið tekin saman
og hækkar lambakjöt um
tæplega sjö prósent og er þá
miðað við verðið í fyrra með
uppbótargreiðslum sem greiddar
voru fyrr á þessu ári. Annað
kindakjöt lækkar á sama hátt
um 30 prósent.
Álagsgreiðslur eru í boði á
lambakjöt, hæst tíu prósent í
viku 36, átta prósent í viku 37,
sex prósent í viku 38 og þrjú
prósent í viku 39. Ekki verður
greitt álag á annað kindakjöt. Á
vef Landssamtaka sauðfjár-
bænda, saudfe.is, má finna töflu
með þeim meðalverðum sem
komin eru. /GSG
Kvenfélag Rípurhrepps
Svipuð verð og hjá öðrum
SAH afurðir
Strandvegur/Þverárfjalls-
vegur nr 744 um
Sauðárkrók
Strandveiðar á svæði B,
norðursvæði
Hillir loks
undir undir
verklok
Lokið í síðustu
viku
Í síðasta tölublaði
Framkvæmdafrétta
Vegagerðarinnar auglýsa
Vegagerðin og
Sveitarfélagið
Skagafjörður útboð á
fyrirhugaðri framkvæmd
við Strandveg á
Sauðárkróki.
Framkvæmdin nær til 385
metra kafla af Strandvegi
til móts við norðurenda
Aðalgötu á Sauðárkróki,
og miðar að því að koma
veginum í endanlega legu
sína samkvæmt skipulagi.
Þannig ljúki framkvæmd
sem hófst kringum árið
2003, en varð ekki lokið
vegna fjárskorts.
Á heimasíðu Sveitarfélagsins
Skagafjarðar kemur fram að
síðan þá hafi sveitarfélagið
margítrekað þörfina á því að
framkvæmdin verði kláruð
og því sé það fagnaðarefni að
nú skuli séð fyrir endann á
verkefninu. Verkinu á að vera
lokið eigi síðar en 15.
nóvember 2013.
Meðalumferð á dag yfir árið
á Strandvegi er 2.040 bílar á
sólarhring skv. tölum
Vegagerðarinnar frá árinu
2012. Sumardagsumferð var
mæld 2.573 bílar á sólarhring
og vetrardagsumferð 1.611
bílar á sólarhring. /GSG
Strandveiðum sumarsins
lauk á fimmtudaginn í
síðustu viku á norður-
svæði, það er svæði B frá
Norðurfirði á Ströndum til
Grenivíkur. Fóru veiðar 11
tonn fram yfir úthlutaðan
kvóta. Á Sauðárkróki var
sextán bátum haldið til
strandveiða og skiluðu
þeir samtals 201.139
kílóum á land. Á Hofsósi
voru átta bátar á
strandveiðum og skiluðu
samtals 57.697 kílóum á
land. /KSE
Ingibjörg í Ketu afhendir Herdísi Klausen gjafabréfið til Heilbrigðisstofnunarinnar.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Axel Þorsteinsson
Túngötu 2, Hofsósi, fyrrum bóndi í Litlu-Brekku
verður jarðsunginn frá Hofsósskirkju laugardaginn 17. ágúst kl. 14
Kristbjörg Bjarnadóttir
Ingibjörg Axelsdóttir, Eyjólfur Sveinsson
Bjarni Axelsson, Birna Júlíusdóttir
Aldís Axelsdóttir, Eysteinn Steingrímsson
Guðný Axelsdóttir, Páll Friðriksson
Þorsteinn Axelsson, Jóhanna Einarsdóttir
Inga Jóna Bragadóttir
Guðbjörg Hinriksdóttir
og fjölskyldur