Feykir - 15.08.2013, Page 6
6 Feykir 30/2013
Elsta steinkirkja landsins
Hóladómkirkja mun vera
elsta steinkirkja landsins.
Sr. Solveig Lára segir aðeins
Grafarkirkju á Höfðaströnd
vera eldri, en sú kirkja lagðist
af um tíma og var húsið
lengi nýtt sem pakkhús. Saga
kirkna á Hólum nær langt
aftur um aldir, en núverandi
kirkja er arftaki svokallaðrar
Halldórukirkju sem stóð á
svipuðum stað. Hinn rauði
sandsteinn sem notaður var í
kirkjubygginguna var sóttur í
Hólabyrðu og má finna slíkan
stein þar enn í dag. Áður hafði
Auðun rauði biskup byrjað að
byggja kirkju úr sandsteininum
á 14. öld en honum entist
ekki aldur til að klára verkið.
Notaði Sabinsky hluta af
þeirri byggingu sem grunn
að Hóladómkirkju. Honum
til aðstoðar voru bændur úr
Húnavatnssýslu, Skagafirði,
Eyjafirði og Þingeyjarsýslu
sem unnu nokkurs konar
þegnskylduvinnu við bygg-
ingu kirkjunnar.
„Til að gera söguna lifandi og
gefa gestum kost á að lifa sig inn
í tengsl kirkjubyggingarinnar
við náttúruna ætlar Viðar
Sverrisson í Neðra-Ási 3 að
hjálpa fólki að höggva til
sandstein. Þeir sem treysta
sér til geta sótt hann sjálfir í
námuna en aðrir geta komið
beint að Auðunarstofu og
fengið að spreyta sig þar“ segir
sr. Solveig Lára.
Þrátt fyrir að kirkjan sé 250
ára gömul eru ýmsir gripir í
eigu kirkjunnar ennþá eldri.
Blaðamaður fylgdi Sr. Solveigu
Láru til kirkju og skoðaði
m.a. altaristöfluna sem er
um 500 ára gömul, en var öll
hreinsuð og lagfærð um 1990,
og stenst ótrúlega vel tímans
tönn. Fyrir í kirkjunni eru
starfsmaður, en tveir fastir
starfsmenn sinna kirkjuvörslu
yfir sumarið, og norsk hjón
sem hafa verið búsett hér á
landi um skeið og þrátt fyrir
annirnar gefur sr. Solveig
Lára sér tíma til að spjalla við
gestina. Hún segir ánægjulegt
hve þeir tíu þúsund ferðamenn
sem heimsækja Hóla ár hvert
komi víða að. Íslendingar séu
Sr. Solveig Lára leggur áherslu
á að Hólahátíð sé ekki síst
hátíð heimamanna og ein af
stærstu hátíðum sumarsins
í Skagafirði. Dagskráin er
fjölbreytt og stendur frá
kl. 17:00 á föstudaginn til
seinniparts sunnudags.
Solveig Lára segir dagskrána
í ár nokkuð hefðbundna
en óvenju mikið sé viðhaft
og þess minnst á veglegan
hátt að Hóladómkirkja á
250 ára afmæli í ár. Þannig
verða byggingarsögu kirkj-
unnar gerð sérstök skil,
m.a. með sýningu Þorsteins
Gunnarssonar arkitekts og
listamannsins Guðmundar
Odds Magnússonar (Godds) í
Auðunarstofu og frumsýningu
á leikverkinu Sabinsky og
kirkjubyggingin eftir Björgu
Baldursdóttur, í leikstjórn
Maríu Grétu Ólafsdóttur.
Þar eru hinni dramatísku
sögu kirkjubyggingarinnar
gerð skil. Þekkt er sagan af
þýska múraranum Sabinsky
sem kom til að sjá um
byggingu kirkjunnar, þar
sem engin verkþekking á
sviði múrsteinsbygginga var
til staðar í landinu. Sabinsky
eignaðist barn með vinnukonu
á staðnum en barnið lifði
aðeins fáeina daga og má sjá
leiði barnsins múrað í vegg
þegar gengið er inn í kirkjuna.
Leikverkið verður sýnt þrisvar
á meðan á hátíðinni stendur.
Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum
„Með Hólahátíðinni loka
ég hringnum og fer að gera
hlutina í annað sinn“
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Undirbúningur árlegrar Hólahátíðar sem fram fer á Hólum í Hjaltadal stendur nú sem hæst.
Blaðamaður heimsótti Sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur vígslubiskup á Hólum, sem jafnframt er
formaður Hólanefndar, en nefndin hefur veg og vanda af undirbúningi hátíðarinnar.
Þar sem sr. Solveig Lára var vígð til embættis á Hólahátíð í fyrra er þetta í fyrsta sinn sem hún
kemur að undirbúningnum, sem hún segir bæði viðamikinn og skemmtilegan, líkt og önnur
verkefni í verkahring vígslubiskups. Með hátíðinni segist hún loka hringnum, enda hafi tekið
allt undanfarið ár að læra til nýrra verkefna sem fylgja embættinu og það verði ákveðinn léttir
þegar hringnum er lokað og hún fari að vinna árstíðabundin verkefni öðru sinni. Sr. Solveig Lára
kann vel við sig á Hólum og fræddi blaðamann fúslega um það helsta sem verður um að vera á
Hólahátíð í ár.
ennþá fjölmennastir í þeirra
hópi en erlendum gestum frá
öllum heimshornum fari sífellt
fjölgandi. „Þessir gestir sýna
sögu staðarins gríðarlegan
áhuga og það er ánægjulegt
að finna hvað fólk er búið
að lesa sér vel til áður en það
kemur og veit hvaða stað það
er að heimsækja. Margir verða
fyrir sterkum hughrifum hér
í kirkjunni og það kemur
t.d. kaþólikkum á óvart hve
kaþólsk kirkjan er í útliti.“
Fjölbreytt dagskrá
alla helgina
Hólahátíð stendur yfir
alla helgina og dagskráin er
fjölbreytt. Á föstudeginum
verður boðið upp á leiðsögn
um kirkjuna, bænastund í
Hóladómkirkju og opnun
áðurnefndrar sýningar um
byggingarsögu kirkjunnar, þar
sem tónlist verður flutt. Þá
veður hægt að kaupa kvöldverð
í veitingastaðnum Undir
Byrðunni.
Laugardagurinn hefst að
venju með pílagrímagöngu
yfir Heljardalsheiði. Sýningin í
Auðunarstofu verður opin alla
helgina og fyrir hádegi verður
áðurnefnt leikverk frumsýnt.
Eftir hádegisverð, sem t.a.m.
er hægt að snæða Undir
Byrðunni, verður lagt af stað
í Gvendarskál undir leiðsögn
Skúla Skúlasonar og þar mun
sr. Sigríður Gunnarsdóttir
predika við hið forna Gvendar-
altari. Sr. Solveig Lára segir
að messan sé fastur liður í
Hólahátíð, en að þessu sinni
bætist við trompetleikur sem
spennandi verði að sjá hvernig
hljómar í skálinni. Á sama
tíma verður boðið upp á göngu
að sandsteinsnámunni, undir
leiðsögn Hjalta Pálssonar þar
sem þátttakendur geta náð sér
í sandstein til meðhöndlunar
fyrir utan Auðunarstofu.
Leikverkið verður svo sýnt
aftur um miðjan dag og
fram að helgistund sem hefst
kl. 18:00 gefst tækifæri til
að fara á kaffihús og vinna
áfram með sandsteininn.
Kvöldinu lýkur svo með
grilli og tónlistarflutningi við
Hólaskóla.
Á sunnudeginum hefst
dagskráin með þriðju sýningu
leikritsins um Sabinsky og
kirkjubygginuna og síðan
gefst kostur á að kaupa
hádegisverð Undir Byrðunni.
Klukkan 14:00 hefst svo
messa í Hóladómkirkju þar
sem biskup Íslands, frú Agnes
Sigurðardóttir predikar,
leikið verður á tvo trompeta
og Kristján Jóhannsson