Feykir - 15.08.2013, Qupperneq 10
10 Feykir 30/2013
Hljómsveitir Gærunnar 2013
Bellstop
Hvernig myndir þú/þið lýsa tónlistinni
þinni/ykkar? -Tónlistin okkar er hrá,
jarðbundin, full af orku og einlægni við
köllum það Folk&Roll..
Hefur einhvern tímann eitthvað skondið
átt sér stað á tónleikum hjá þér/ykkur? -Já
við vorum einu sinni fengin til að spila á
flottum bar í borginni Xiamen í Kína þar
sem við dvöldum í nokkurn tíma. Þegar
við mætum á staðinn þá var mikið af vídeó
vélum og myndavélum fyrir framan sviðið
og við spurðum hvers vegna það væri
og þá var okkur sagt að það væri bara til
gamans fyrir barinn að eiga upptökur. Svo
var allskyns fólk sem vildi fara að greiða
okkur og sminka fyrir giggið en við vorum
nú ekki á þeim nótunum þar sem við
töldum okkur vera alveg tilbúin til að fara
uppá svið. Svo loksins byrjum við að spila
og stöndum framarlega á sviðinu í góðum
fíling þá finnum við að það er einhver fyrir
aftan okkur á sviðinu, við lítum við og þar
eru nokkrar uppádressaðar skælbrosandi
skvísur að ganga um með sjampóbrúsa
og það var einmitt á því mómenti sem við
föttuðum að við værum ekki bara stödd í
sjampó auglýsingu heldur að við værum
einnig aðalleikararnir í auglýsingunni. Það
er hægt að segja að þetta sé eitt af þessum
atriðum sem er mjög fyndið eftirá að hyggja.
Hvernig leggst það í þig/ykkur að spila
á Gærunni 2013? -Við fílum Gæruna og
okkur langar til að kynnast henni betur
með því að færa henni hjartað úr okkur á
silfurfati.
Hvað er á döfinni hjá þér/ykkur? -Platan
okkar „Karma" var að koma út núna í Júní
svo við erum bara á fullu að henda upp
túrum innanlands sem og erlendis til að
fylgja henni úr hlaði. Það er líka hægt að
segja þetta svona: „Nú er búið að fæða
barnið og þá þarf að ala það upp.“ /GSG
TÓNLISTARHÁTÍÐIN GÆRAN - SAUÐÁRKRÓKI 15.-17. ÁGÚST
Stafrænn Hákon
Hvernig myndir þú/þið lýsa tónlistinni
þinni/ykkar? -Stafrænn Hákon spilar
draumkennt en þó um leið kraftmikið
sveimrokk. Tónlistin er melódískt.
Hefur einhvern tíman eitthvað skondið
átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?
-Skondnasta atvikið er klárlega þegar
við fórnuðum 5 refum samtímis á sviði í
Tékklandi árið 2010. Ógleymanleg stund.
Hvernig leggst það í ykkur að koma fram
á Gærunni 2013? -Það leggst mjög vel í
okkur að spila á Gærunni í ár. Spennandi
listamenn sem koma fram og okkur hlakkar
til að koma fram í fyrsta skipti á Sauðárkróki
þar sem einn meðlimur okkar á rætur sínar
að rekja.
Hvað er á döfinni hjá ykkur? -Við erum
að spila reglulega þegar það á við. Gáfum
út okkar sjöundu breiðskífu seint á síðasta
ári. Ætlum að spila á Airwaves. Ætlunin var
að fara aðeins erlendis næsta vetur en það
kemur í ljós þar sem það er í vinnslu eins og
er. Svo er alltaf verið að semja eitthvað og
pæla í næstu skrefum. /GSG
FEYKIR KYNNIR:
26. Króksmóti
Tindastóls lokið
Sunnudaginn 11. ágúst sl. lauk 26. Króksmóti Tindastóls að
viðstöddum um 1500 þátttakendum og gestum. FISK
Seafood var aðalstyrktaraðili mótsins. Á íþróttasíðu Feykis.is
er hægt að skoða úrslit mótsins.
Þátttakan var góð, um 650 keppendur og allt í allt rúmlega 300
leikir á laugardag og sunnudag. Að sögn Ingva Hrannars
Ómarssonar, formanns Króksmótsnefndar hefði mótið ekki
getað verið stærra í ár vegna þess að mest náðust 10 vellir og
gistingin var mikið púsluspil vegna framkvæmda við Árskóla.
Engin lið gistu þar þetta árið en aðstaðan verður svo sannarlega
glæsileg að ári. „Það er óhætt að segja að mótið hafi gengið vel
fyrir sig, um 150 sjálfboðaliðar sem stóðu sig frábærlega í sínum
störfum, en manna þarf vaktir í gistingu, mat, grilli og sjoppu
auk þess að um 50 manns komu að dómgæslu auk fjölmargra
annarra starfa sem þarf að manna. Þannig að þetta gekk vel enda
varla annað hægt með svona frábært fólk eins og við höfum hér
í firðinum. Það var líka gaman að sjá hve mörg lið komu og
þökkuðu fyrir góða framkvæmd en við í mótsstjórn viljum
þakka FISK Seafood og Sveitarfélaginu Skagafirði sérstaklega
fyrir þeirra aðkomu,“ segir Ingvi Hrannar. /ÓAB og GSG
Knattspyrna