Alþýðublaðið - 19.12.1919, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 19.12.1919, Blaðsíða 2
ð ÁLl’ÝÐUBLAÐIÍ) mikið sem þeir virta Bandamenn áður. Slík innrás mun mentuðum og gáfuðum Rdssum til mikillar sorg- ar, skapa afskaplega ættjarðarást og um leið hatur til vestlægu pjóðanna. (Frh.) Barðarpld lækkar. Frá nýári lækkar burðargjald á bréfum hér á íslandi, um leið og það hækkar í öllum öðrum löndum. Þetta má þó ekki skilja svo, að burðargjald sé að verða ódýrast hér á landi, heldur merkir það það, að burðargjaid sem áður hafði verið hærra hér á landi en nokk- ursstaðar annarsstaðar verði nú hið sama og annarsstaðar. Með þessari burðargjaldslækkun er num- inn úr gildi einn sá heimskuleg- asti tekjustofn sem vorum vesa- lings á fjármálasviði fáfróðu al- þingismönnum heflr nokkurntíma hugkvæmst handa landinu, því heimskulegri tekjustofn er ekki hægt að hugsa sér, en að skatta það sem sérstaklega er ætlað til þess að efla viðskiftin í landinu, Fyrir almenn bréf verður burð- argjaldið innanlands frá nýári svo sem hér segir: Ef þau vega 20 grm. eða minna.............15 aura Ef þau vega yflr 20 grm. en undir 125 gr. . 30 aura Ef þau vega yfir 125 gr. en undir 250 gr. . . 45 aura Innanlands og innan- Bveitar alt að 250 gr. . 8 aura Til útlanda er burðarargjald ó- breytt 20 aurar fyrir 20 gr. og 10 aurar fyrir hver 20 gr. þar yfir. » Khöfn 17. Des. Frá Reval er símað að samn- ingatilraunirnar i Dorpat [í Eist- landi milli þess lands, Latviu og Lithá apnarsvegar og Boleivika Verkamannafél. „Dag-sbrún" heldur fund i G.-T.-húsinu laugardaginn 20. des. kl. 71/2 siðd. Rætt verður og borið upp til samþyktar frumvarp til laga fyrir fél'agið. — Þess utan verða ýms fleiri mál á dagskrá. Félagsmenn eru ámintir um að fjölmenna. hinsvegar] hafi mistekist, sökum þess hve ósanngjarnir Bolsivíkar séu í kröfum sínum. P&litiskar viðsjár í Sanmðrku. Ilhöfn 17. des. Hægrimannablaðið Fyns Stifts- tidende segir að úr heldrimanna- hóp verði bráðlega skorað á kon- unginn að útnefna þjóðlegt ráðu- neyti (nationalministerium) sem strax láti fara fram nýjar kosn- ingar. Social-Demokraten [aðal- blað jafnaðarmanna] segir að þetta sé augljós hvöt til stjórnlagarofs að ofan (statskup), og sé sið- asti þátturinn í hinni svívirðilegu og ósvífnu árás á ráðuneytið út af Suður-Jótlandsmálinu. Strandið. Skipið, sem strandaði í gær á Skerjafirði hét „Valkyrien" og er danBkt. Það fór af stað frá Spáni 29. október xneð saltfarm. f stór- veðrinu í fyrradag var það komið hér inn á flóann, og gátu skip- verjar við ekkert ráðið. Siglutrén brotnuðu eða voru höggvin sundur af skipverjum, ef ske kynni að þeir björguðust á þann hátt. Síðan rak skipið ósjálfbjarga fyrir vindi og sjó inn á Skerja- fjörðinn, fram hjá öllum stærstu boðúnum og rakst loks á grunn út undan Þormóðstöðum kl. 8 í gærmorgun. Allir menn björguð- ust. Farmurinn ónýttist, og ólík- legt að skrokkurinn náist út af skerinu. -j- $ jslanð að ganga i þjéðabanðalagið ? Khöfn 17. des. Sameiginieg nefnd norrænu ríkj- anna, sem rætt hefir hér þjóða- bandalagið, mun að líkindum leggja til, að Norðurlönd gangi í það. Verða þá lögð frumvörp þar að lútandi fyrir öll löggjafarþing Norðurlanda, undir eins þegar friðarsamningar ganga í gildi. Dm daginn og veginn. Ethel kom frá Fleetwood í fyrra- kvöld. Eigandi Skúli Jónsson. Skip- stjóri verður Kristinn Brynjólfs- son frá Engey. Guðmundur Guðna- son skipstjóri var farþegi. Skipið er 130 fet á lengd, 16 fet á dýpt og 23 fet á breidd. Fer 10 mílur og er 12 ára, en nýviðgert. Jölatré fást hjá Hjálmart Þorsteinssyni* Skóiavörðustíg 4. ITýlegur karlm.hattur fundinn. Afgr. vísar á. Ilæsiueg'gf fást keypt fyrir jólin á Óðiasgötu 24. Fyiir jólin þurfið þór að láta „lakkera" olíuofnana yðar á Laugaveg 27.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.