Landshagir - 01.12.2015, Page 70
Kosningar
LANDSHAGIR 2015 STATISTICAL YEARBOOK OF ICELAND 2015
2
68
í þremur) var kosningaþátttaka 66,5% og
var hún sú lægsta til þessa. Fjöldi fram-
bjóðenda í sveitar félög um þar sem kosið
var um framboðs lista var 2.916, þar af
1.532 karlar (52,5%) og 1.384 konur (47,5%).
Alls voru kjörnir 504 sveitarstjórnarmenn
á landinu öllu, 282 karlar (56,0%) og 222
konur (44,0%). Hefur hlutfall kvenna af
kjörnum fulltrúum aldrei verið hærra, en
það var 39,8% árið 2010.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 20. október 2012
Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram
20. október 2012. Við kosningarnar voru
alls 236.850 á kjörskrá, 73,9% landsmanna.
Af þeim greiddu 115.890 atkvæði, 48,9%
kjósenda. Kosningaþátttaka karla var hærri
en kvenna, 49,9% á móti 47,9% hjá konum.
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni voru greidd
atkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að
frumvarpi til stjórnarskipunarlaga og
tiltekin álitaefni þeim tengd. Hafði Alþingi
samþykkt þingsályktunartillögu þar að
lútandi 24. maí 2012 þar sem jafnframt
var kveðið á um þær sex spurningar sem
bornar voru upp í atkvæðagreiðslunni. Gild
atkvæði voru 114.570, auðir seðlar 661 og
aðrir ógildir seðlar 659.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar voru mis mun-
andi eftir spurningum en hverri og einni
spurningu var svarað jákvætt með meiri-
hluta gildra atkvæða á landinu í heild.
Alls töldu 73.509 kjósendur að leggja ætti
tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar frum-
varpi að nýrri stjórnarskrá. Sú spurning
sem flestir svöruðu með jái var spurning
um náttúruauðlindir í þjóðareign, alls
84.760, en sú sem fæstir svöruðu með jái
var spurning um að setja ákvæði um þjóð-
kirkjuna í stjórnarskrá, 58.455.
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
Alls Total Karlar Males Konur Females
%
1874 1900 1914 1931 1942 1959 1974 1991 2013
Mynd 2.1 Kosningaþátttaka í alþingiskosningum 1874–2013
Figure 2.1 General elections to the Althingi, participation 1874–2013