Landshagir - 01.12.2015, Page 275
273
Hagstofan tekur saman yfirlit yfir fjármál
hins opinbera, það er ríkissjóð, sveitarfélög
og almannatryggingar. Yfirlitið byggist á
ársreikningum, en við úrvinnslu efnisins
er frá september 2014 fylgt þjóðhags-
reikningakerfi Sameinuðu þjóðanna (SNA
2008) og evrópskri útgáfu þess (ESA2010).
Fjármál hins opinbera ná fyrst og fremst
til þeirrar starfsemi í hagkerfinu þar sem
tekna er aflað með álagningu skatta.
Tilgangur reikninga um fjármál hins
opinbera er því að gefa yfirlit yfir tekjur,
útgjöld, eignir og skuldir hins opinbera
og sömuleiðis mikilvægustu jöfnuði í
rekstri þess, s.s. rekstrar- og tekjujöfnuð.
Reikningar hins opinbera eru gerðir
samkvæmt staðli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
um fjármál hins opinbera (GFSM 2001,
The Government Finance Statistics
Manual), þjóðhagsreikningakerfi
Evrópusambandsins (ESA2010) og
málaflokkasundurliðun Sameinuðu
þjóðanna (COFOG, The Classification
of the Functions of Government). Auk
reikninga fyrir hið opinbera eru gerðir
reikningar fyrir undirgeira þess, þ.e. ríkis-
sjóð, sveitarfélög og almannatryggingar.
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um
1,2 milljarða króna árið 2014
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð
um 1,2 milljarða króna árið 2014 eða
sem nemur 0,1% af landsframleiðslu.
Til samanburðar var tekjuafkoman
neikvæð um 34,8 milljarða króna árið
2013 eða 1,9% af landsframleiðslu.
Tekjur hins opinbera námu 907,0
milljörðum króna og jukust um 111,3
milljarða króna milli ára eða um
14,0%. Sem hlutfall af landsfram-
leiðslu mældust þær 45,6%. Útgjöld
hins opinbera voru 908,2 milljarðar
króna og jukust um 9,4% en hlutfall
þeirra af landsframleiðslu var 45,7%.
12Fjármál hins opinberaPublic finance
Íslenskur gjaldmiðill
© Kjartan Þorbjörnsson