Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Síða 14

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Síða 14
14 Atvinnumálin hafa hamfaraáhrif á byggðina Pétur tekur dæmi úr sögu Súðvíkinga. „Hér er afar áhugavert dæmi. Þegar flóðið féll árið 1995 tók það með sér 14 líf, það voru tæp- lega 5% prósent allra íbúa Súðavíkur á þeim tíma. Í samhengi er þetta eins og 6.050 Reykvíkingar myndu láta lífið í náttúruham- förum, eina janúarnótt í norðvestan óféti. Súðvíkingum fjölgaði árið 1996, þeir fluttu byggðina og héldu áfram. Árið 2006 urðu miklar hamfarir í atvinnumálum Súðvíkinga. Þeim fækkaði snarlega næstu ár á eftir. Þarna sést best hvað hefur hamfaraáhrif á íbúa- þróun landsbyggðarinnar.“ Hvað fram er að færa skiptir máli „Ég hef tamið mér að tala sem Vestfirðingur þegar ég ræði málefni atvinnulífsins, enda gerum við upp saman, sveitarfélögin á Vest- fjörðum. Hins vegar er gaman að ræða það að þessi verkefni, sem ég trúi að verði forsenda fyrir vestfirska vorinu sem framund- an er, eru afar stór hluti af atvinnuupp- byggingu Súðavíkurhrepps, enda staðsett hér í sveitarfélaginu. Þar sannast hið margsagða á Smartlandi, stærðin skiptir ekki máli, heldur hvað þú hefur fram að færa.“ Sviðsmyndin að breytast Talið berst að raforkumálum en Pétur segir þau skipta miklu fyrir Vestfirðinga. „Við fram- leiðum sjálf í kringum 15 MW, sem er alltof lítið, aukinheldur sem dreifikerfið hér er ekki tvöfalt, það sem stundum er kallað hring- tenging. Það þýðir að ef Vesturlína dettur út, verður að notast við varaafl. Þá er dreifikerfið til að mynda mjög lélegt í Inn-djúpinu og á fleiri stöðum á Vestfjörðum. Hér þarf átak í þeim málum.“ Hann segir að mikil bylting hafi orðið í varaaflsmálum Vestfirðinga þegar nýtt varaafl Landsnets var vígt í Bolungarvík fyrir rúmu ári. „En varaafl er engin framtíðaruppbygging fyrir Vestfirði. Það hefur enginn þá sýn að eiga alltaf firnasterkan varamannabekk á meðan byrjunarliðið er máttlaust og ekki á dagskránni að styrkja það. Það sjá allir hvern- ig sá leikur er dæmdur til að fara!“ Pétur bendir á að sviðsmyndin sé þó að breytast gífurlega hratt. „Með nýjum virkj- anakostum hér fyrir vestan er komin breytt staða á raforkumál Vestfirðinga. Verið er að kanna virkjanakosti bæði á ströndum, nánar tiltekið við Hvalá í Ófeigsfirði, sem er í nýt- ingarflokki og fleiri virkjanakosti sem gætu Súðavíkurhreppur Súðavíkurskóli. Raggagarður.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.