Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Qupperneq 15

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Qupperneq 15
15 framleitt allt að 100 MW. Hér í Súðavíkur- hreppi eru síðan mjög fýsilegir kostir, sem gætu framleitt samanlagt 30 til 35 MW.“ Græn raforkubylting Pétur segir að samfara þessari byltingu opnist raunhæfur möguleiki á að hringtengja loks Vestfirði og um leið byggja upp dreifikerfið í gegnum Inndjúpið. „Hér getum við því talað um byltingu í raforkumálum Vestfirðinga, sem stórbætir bæði lífskjör íbúa, sem og opnar á nýja möguleika fyrir fjárfestingaverk- efni á Vestfjörðum.“ Hann segir að málið sé ekki síður hags- munamál landsins alls. „Ef mögulegt er að virkja og framleiða raforku á Vestfjörðum fyr- ir 145 MW, gjörbreytum við bæði raforkuum- hverfi Vestfirðinga og aukum við raforkufram- boð á landsvísu, sem ljóst er að er of lítið á næstu árum miðað við þau stóru verkefni sem unnið er að víða um landið. Til þess þarf að koma Vestfjörðum í öruggt hringsam- band. Þessi mál þarf að vinna af ábyrgð, sið- lega og af heilindum gagnvart náttúrunni og landeigendum. Þá getum við kallað þetta grænu raforkubyltinguna á Vestfjörðum.“ Tækifærin eru í dag á Vestfjörðum Pétur segir að það sé bjart framundan á Vestfjörðum. „Það er mikil blessun að fá að vera samverkamaður í þeirri byltingu sem framundan er. Það er gífurlega mikilvægt að temja sér í þeirri vegferð uppbyggjandi, já- kvætt og kröftugt hugarfar. Versta pólitík sem til er, er pólitík sem byggir veru sína á því hvað aðrir eru ömurlegir, frekir og spilltir. Ef Vestfirðir eiga ekki möguleikann í núinu, verður sá möguleiki ekki tekinn úr fortíðinni, þar sem rangt var gefið. Ég hef hins vegar engar áhyggjur, tækifærin eru í dag á Vest- fjörðum,“ segir Pétur sveitarstjóri að lokum. Á leið inn Álftafjörð til Súðavíkur. Súðavíkurhreppur. . . Súðavíkurhreppur · Sími: 450 5900 · www.sudavik.is · sudavik@sudavik.is . . . góður heim að sækja!

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.