Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Síða 16

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Síða 16
16 Þann 4. mars sl. skrifaði Karl Björnsson, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfé- laga, undir samninga við meistaranema um styrki vegna meistararitgerða þeirra sem fjalla um málefni sveitarfélaga og hafa skírskotun til markmiða og aðgerða í stefnumörkun sambandsins fyrir árin 2014-2018. Hver styrkur nemur 250.000 kr. Veittir árlega næstu tvö árin Þetta er í fyrsta skipti sem sambandið veitir slíka styrki. Ákvörðun um að veita árlega, á árunum 2016-2018, styrki til allt að þriggja meistaranema var tekin af stjórn sambands- ins árið 2015 í tilefni af 70 ára afmæli Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sérstakar reglur gilda um styrkina sem auglýstar voru og miðlað til meistaranema í öllum háskólum landsins. Nokkrar umsóknir bárust sem fóru í ákveðið matsferli. Á fundi sínum, þann 26. febrúar sl., samþykkti stjórn sambandsins að veita eftirfarandi meistara- nemum styrk:  Magnea Steinunn Ingimundardóttir, Háskólanum á Bifröst. Heiti ritgerðar: Þjónandi forysta og sjálfstæði í starfi starfsmanna í stjórnsýslu sveitarfélaga.  Soffía Guðrún Guðmundsdóttir, Háskóla Íslands. Heiti ritgerðar: Að hvaða leyti kemur ríkið að þjónustu við börn með sértækar þarfir?  Sunna Jónína Sigurðardóttir, Háskóla Íslands. Heiti ritgerðar: Úttekt á vefjum sveitarfélaga – hvað er mikilvægast og hvernig má bæta þjónustu á vefnum með auðveldum hætti? Stolt af stuðningnum „Við hjá sambandinu erum virkilega stolt af því að geta styrkt þessa öflugu námsmenn í verkefnum þeirra og er áhugi á umfjöllun um sveitarstjórnarmál okkur sérstakt ánægjuefni. Nú bíðum við bara spennt eftir að sjá afraksturinn,“ sagði Karl Björnsson við undir- ritunarathöfnina. Fréttir Styrkir til meistaranema afhentir í fyrsta sinn Frá undirritun samninganna við meistaranemana. T.f.v.: Soffía Guðrún Guðmundsdóttir, Karl Björnsson og Magnea Steinunn Ingimundardóttir. Sunna Jónína Sigurðardóttir gat ekki verið viðstödd afhendinguna vegna veikinda en fékk styrkinn afhentan nokkrum dögum síðar. Mynd: Ingibjörg Hinriksdóttir. Sendinefnd frá Brussel sem kom til landsins á vegum utanríkis- ráðuneytisins heimsótti Seltjarnarnesbæ á dögunum og tók Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á móti nefndinni. Erindi hennar út á Seltjarnarnes var að skoða hitaveitu Seltjarnarnesbæjar og fræðast um hvernig að uppbyggingu hennar og starfsemi hefur verið staðið. Koma nefndarinnar hingað til lands var í tengslum við aðkomu Íslands að Uppbyggingarsjóði EES þar sem Íslendingar styrkja jarðhitaveitur í Rúmeníu og Ungverjalandi. Í hópnum voru m.a. Stefán Lárus Stefánsson og Unnur Orradóttir Ramette sendiherrar, Þóra Magnúsdóttir, sem situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd Íslands, auk starfsmanna Orku- stofnunar og starfsmanna Seltjarnarnesbæjar. Seltjarnarnesbær: Sendinefnd frá Brussell skoðar hitaveituna Sendinefndin ásamt starfsfólki Seltjarnarnesbæjar.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.