Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Side 17
17
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs-
bæjar, segir að bærinn sé mögulega til í að
gefa eftir byggingarréttargjöld vegna íbúða
sem væru fyrsta eign fólks. Sala lóða ætti
annars að vera á markaðsverði, enda mikil-
vægur tekjuliður sveitarfélaga. Þetta kom
fram í máli hans á fasteignaráðstefnu sem
haldin var í Hörpu 26. febrúar sl. þar sem
m.a. var rætt um möguleika fólks til þess að
eignast fyrstu húseign sína.
Ármann sagði að endurskoða og einfalda
yrði stuðningskerfi vegna íbúðakaupa og með
því mætti leggja núverandi vaxtabótakerfi
niður. Hann kvaðst frekar vilja sjá aftur hug-
myndir um félagslegt kerfi sem byggðist á
verkamannabústöðum, bæði með kaupleigu
eða beinum kaupum.
Flestir sem til máls tóku á ráðstefnunni
virtust sammála um að kaup fólks á fyrstu
íbúð væri vandamál í dag.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðis-
málaráðherra, hefur gagnrýnt sveitarfélögin
fyrir mikinn kostnað við úttektir og skipulag
auk þess sem lóðarkostnaður sé mjög hár.
Ármann Kr. sagði að bregðast mætti að ein-
hverju leyti við þessum vanda með því að
lækka lóðaverð vegna fyrstu íbúðar.
Gætum lækkað lóðaverð til þeirra sem eru
að kaupa fyrstu eign
Horft af Digranesvegi. Að baki trjánum má sjá yfir yngri hluta Kópavogsbæjar og á björtum stundum allt frá
Álftanesi austur um og til Breiðholts.