Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Side 20
20
Árið 1997 var svo Ráðhúsið við Garðatorg
tekið í notkun og þá var allt skrifstofuhald
bæjarins aftur sameinað á einum stað.
Afmælishátíð á Garðatorgi í haust
Ætlunin er að fagna þessum tímamótum í
sögu Garðabæjar á margan hátt. Meðal
annars hefur sérstakt afmælismerki Garða-
bæjar verið hannað, þar sem Ráðhústurninn
er nýttur sem tákn fyrir bæinn. Stefnt er að
því að halda veglega afmælishátíð í miðbæ
Garðabæjar í september þar sem efnt verður
til fjölbreyttrar dagskrá fyrir alla aldurshópa –
allt frá frá morgni til kvölds utan dyra sem
innan.
Á fyrsta bæjarstjórnarfundi þessa árs var
samþykkt hátíðartillaga þess efnis að á
afmælisárinu yrði gerð gangskör að því að
kynna hina fornu leið, Fógetastíg í Gálga-
hrauni og aðrar fornar leiðir í hrauninu.
Fógetastígurinn var allt fram á síðustu ára-
tugi 19. aldar alfaraleið gangandi og ríðandi
manna vestur á Álftanes og er einnig kallað-
ur Álftanesgata. Með göngu eftir stígnum er
því hægt að anda að sér sögunni og njóta
um leið útivistar, friðsældar og fallegrar nátt-
úru. Sögulegt gildi stígsins er ótvírætt.
Sé ekki
að útför Garðabæjar fari fram
Í sérstöku afmælisblaði sem gefið hefur verið
út í tilefni þessara tímamóta ritar Gunnar
Einarsson bæjarstjóri kveðju til bæjarbúa.
„Við vitum að okkar jarðneska líf, eðli
málsins samkvæmt, tekur enda. Hins vegar
er erfitt að ímynda sér að útför Garðabæjar
fari nokkurn tíma fram, enda framtíðin enda-
laus í því tilfelli eins og áður segir. Á síðast-
liðnu ári varð ég sextugur og átti einnig tíu
ára starfsafmæli sem bæjarstjóri Garðabæjar.
Á þeim tímamótum var mér sérstaklega
hugsað með þakklæti til þeirra tækifæra sem
hafa gefist til framþróunar bæði persónulega
og fyrir samfélagið í Garðabæ. Hér hef ég
nefnt tvenn tímamót, önnur eru stór og
merkileg og snerta heilt bæjarfélag þar sem
morgundagurinn er alltaf framtíðin um
ókomna tíð. Hin tímamótin komast ekki á
blað, nema ef vera skyldi að þau þvældust
fyrir frekari framþróun okkar góða bæjarfé-
lags. Ágætu Garðbæingar til hamingju með
afmælið og njótið vel.“
Góð samfella í stjórnun
Í viðtali Sveitarstjórnarmála fyrir nokkrum ár-
um við Erling Ásgeirsson, sem lengi átti sæti í
bæjarstjórn Garðabæjar, sagði Erling marga
hafa velt fyrir sér velgengni í störfum og
rekstri Garðabæjar á undanförnum árum.
Hana megi einkum rekja til þess hversu góð
samfella hafi verið í stjórn bæjarfélagsins í
langan tíma og að úrvalsfólk hafi löngum
valist til starfa í bæjarstjórninni.
Garðabær
Pylsudagur í einum af skólunum í Garðabæ.