Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Qupperneq 21
21
„Ef til vill mætti segja sem svo að ákveðinn
kjarni hafi myndast sem vinnur mjög vel
saman; ég, Gunnar Einarsson bæjarstjóri og
Guðjón Erling Friðriksson bæjarritari. Við
hófum allir starfað að bæjarmálunum um
svipað leyti í upphafi níunda áratugarins.
Gunnar Einarsson var þá nýráðinn íþrótta- og
tómstundafulltrúi og þegar ég varð formaður
íþrótta- og tómstundaráðs hófst samstarf
okkar sem hefur verið með miklum ágætum
síðan. Ég varð formaður skólanefndar þegar
sveitarfélögin tóku yfir grunnskólann 1995
og þá tók Gunnar við starfi forstöðumanns
fræðslu- og menningarsviðs og leiddi aðlög-
un bæjarfélagsins að rekstri grunnskólans.
Þar hófst farsæl aðkoma hans að skóla-
málum Garðabæjar.“
Skipulag byggðar fyrir ungt fólk
Garðabær er í stöðugri sókn og íbúum fjölg-
ar. Nú auglýsir bæjarfélagið hugmyndasam-
keppni um tillögu að rammaskipulagi byggð-
ar fyrir ungt fólk á svæði við Lyngás og Hafn-
arfjarðarveg. Þar á að leggja áherslu á spenn-
andi íbúðabyggð sem hentar ungu fjöl-
skyldufólki í hæfilegri blöndu við verslun,
þjónustu og skrifstofubyggingar. Einnig er
horft til góðra tengsla við samgönguæðar,
útivist og þjónustu og að leitast verði við að
styrkja tengsl miðbæjar við svæðið við Hafn-
arfjarðarveg og norðan hans. Í samkeppnis-
lýsingu er tekið fram að við mótun tillög-
unnar skuli horft til þess að stuðla að lægra
íbúðaverði fyrir unga kaupendur og leigj-
endur.
Heimildir: Vefsíða Garðabæjar, afmælisblað
í tilefni afmælisins og tímaritið Sveitarstjórnarmál.
Hönnunarsafn Íslands er í miðbæ Garðabæjar. Hér má sjá Erling Ásgeirsson, þáverandi formann bæjarráðs, Gísla B. Björnsson, grafískan hönnuð, Hörpa Þórsdóttir,
forstöðumann Hönnunarsafnsins, Ármann Agnarsson sýningarstjóra og Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, sem varð einn af íbúum Garðabæjar skömmu síðar.
Myndin var tekin við opnun á yfirlitssýningu á verkum Gísla B. Björnssonar í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ.