Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Page 22
22
Stóra upplestrarkeppnin er 20 ára á yfir-
standandi skólaári. Hún hefst árlega á degi
íslenskrar tungu og hefur frá árinu 1996 náð
að þroskast og dafna meðal nemenda í
sjöunda bekk. Verkefninu lýkur í mars ár
hvert með myndarlegum menningarhátíðum
um allt land en alls eru lokahátíðirnar 28 tals-
ins í ár.
Stóra upplestrarkeppnin er menningar-
starf á landsvísu með skýr markmið að leiðar-
ljósi. Í fyrsta lagi er markmiðið að vekja
athygli og áhuga á vönduðum flutningi og
framburði íslensk máls og að allt ungt fólk
læri að njóta þess að flytja texta og ljóð sjálfu
sér og öðrum til ánægju.
Í öðru lagi ber að leggja rækt við virðingu
og vandvirkni. Í samfélagi nútímans er nauð-
synlegt að leggja rækt við færni og kunnáttu
sem nemendur fá þegar þeir taka þátt í Stóru
upplestrarkeppninni. Þar er að mörgu að
hyggja en afar ánægjulegt til þess að vita að
árlega skuli heill árgangur í grunnskóla vanda
sig við að ná þessum markmiðum og stíga
síðan á stokk að vori og lesa af listfengi fyrir
fullum sölum áhugasamra áheyrenda. Loka-
hátíðir í mars eru metnaðarfullt framlag ung-
menna til menningarlífs heimabyggðarinnar
sem er full ástæða til að veita athygli og bera
virðingu fyrir.
Vagga verkefnisins í Hafnarfirði
Að verkefninu standa Raddir, samtök um
vandaðan upplestur og framsögn en vagga
verkefnisins er í Hafnarfirði. Í því sam-
bandi má benda á heimasíðu samtakanna
www.upplestur.hafnarfjordur.is en þar má
finna nytsamar upplýsingar. Í félagsráði
Radda sitja fulltrúar þeirra félaga og stofnana
sem aðild eiga að verkefninu og þar hafa
Heimili og skóli ávallt átt fullrúa.
Stóra upplestrarkeppnin á ýmsa velunnara
sem styrkja verkefnið. Mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytið veitti keppninni sérs-
taka viðurkenningu árið 2000 og árið 2006
fékk Stóra upplestrarkeppnin foreldraverð-
laun Heimilis og skóla.
Ítarlega verður fjallað um Stóru upp-
lestrarkeppnina í næsta tölublaði Sveitar-
stjórnarmála og m.a. rætt við Ingibjörgu Ein-
arsdóttur, skrifstofustjóra Skólaskrifstofu
Hafnafjarðar, en hún er forvígismaður
keppninnar og ein helsta driffjöður hennar
frá upphafi.
Fréttir
Stóra upplestrarkeppnin 20 ára
Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, er forvígismaður keppninnar og ein
helsta driffjöður. Hér afhendir hún þátttakanda verðlaun.
Alls bjuggu 2.462 manns í Hveragerðisbæ
um síðustu áramót. Sé miðað við tölur Hag-
stofu Íslands eru þetta þriðju áramótin í röð
sem sett er met í íbúafjölda í Hveragerðisbæ.
Þetta kemur fram á heimasíðu bæjarfélags-
ins.
Í byrjun árs 1998 bjuggu alls 1.668
manns í Hveragerði og hefur bæjarbúum því
fjölgað um 50% síðan. Íbúum hefur fjölgað
á hverju ári, að utanteknum árunum 2009
og 2011.
Í árslok 2013 voru íbúarnir orðnir 2.333,
árið síðar 2.384 manns og 2.462, sem fyrr
segir, í árslok 2015.
Í nágrannasveitarfélaginu Ölfusi er fjölg-
unin í fyrra tæp 4%. Í báðum sveitarfélög-
unum hefur verð á byggingarlóðum verið
lækkað.
Íbúum Hveragerðis og Ölfuss fjölgar
Horft á Hveragerðisbæ úr lofti og hluta af Ölfusi allt austur að Ölfusá.