Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Qupperneq 13

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Qupperneq 13
13 Enn eitt árið verða öll met slegin í komum skemmtiferðaskipa hingað til lands. Von er á 113 heimsóknum skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur í sumar en þær voru 108 í fyrra. Til Akureyrar koma 48 skip í alls 100 heim- sóknir sem er svipað og 2015. Heimsóknir skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar verða 73 í ár en voru 63 í fyrra. Hálf milljón manna um borð! Búist er við 109 þúsund farþegum til Reykja- víkur, 95 þúsundum til Akureyrar og um 85 þúsund farþegum til Ísafjarðar. Samanlagður farþegafjöldi skipanna er því um 370 þúsund og gera má ráð fyrir að í áhöfn séu a.m.k. 140 þúsund manns. Hér er því alls um rúm- lega hálfa milljón gesta að ræða! Þess má geta að sú nýlunda verður í ár að tvær skipa- komur verða á Þingeyri í september. Af þeim skipum sem koma til Akureyrar munu nokkur að venju hafa viðkomu í Grímsey. Talið er að þessar heimsóknir skili að lág- marki sex milljörðum króna í þjóðarbúið, bæði beint og óbeint. Þær upplýsingar byggj- ast á könnun sem Hafnasamband Íslands og samtökin Cruise Iceland létu gera meðal far- þega árin 2013 og 2014. 433 milljónir í hafnargjöld Samkvæmt fyrrnefndri könnun eyddu far- þegarnir um 5,3 milljörðum króna með við- komu sinni hér á landi. Inni í þeirri tölu eru m.a. flugferðir til og frá landinu. Um 140 milljónir komu af verslun skipverja, 433 millj- ónir fóru í hafnargjöld og 150 milljónir í bein- ar skattgreiðslur til ríkisins. Tekjurnar ráðast eðlilega af stærð skip- anna og fjölda farþega. Farþegar stærri skip- anna hafa í flestum tilvikum keypt fyrirfram ákveðinn pakka, bæði í mat, þjónustu og ferðum í landi. Auknar tekjur hafa skapast af komum minni skipanna, svonefndra leiðsögu- skipa en oftast er flogið með þá farþega til og frá landinu og þeir fara þá í hringferðir um landið með skipinu. Þessi skip stoppa á fleiri stöðum og farþegar þeirra fara gjarnan víðar en þeir sem koma af stóru skipunum. HLUTI AF RPC GROUP SÆPLAST • Gunnarsbraut 12 • 620 Dalvík • Sími 460 5000 • sales.europe@saeplast.com • www.saeplast.com ® Sæplast er skrásett vörumerki í eigu RPC GROUP Byggingarreglugerðir krefjast þess að brunnar séu settir við allar nýbyggingar enda er mikið öryggi og kostnaðar hagkvæmni fólgin í að hafa aðgang að lögnum utanhúss vegna eftirlits og viðhalds. Sæplast framleiðir brunna til frá veitu lagna úr polyethylene-efni (PE). Í Sæplast -vörulínunni er fjölbreytt úrval brunna til að mæta mismunandi notkunar kröfum. Brunnarnir eru fáanlegir í þremur þvermáls stærðum: 400 mm, 600 mm og 1000 mm. ATH. Hægt er að fá upphækkanir á alla brunna. Fást í byggingavöruverslunum um land allt. Sæplast ráðleggur að ætíð sé leitað til fagaðila um niðursetningu á brunnum. Þar sem tvær lagnir koma saman þar ætti að vera brunnur Fréttir Komur skemmtiferðaskipa skila sex milljörðum króna í þjóðarbúið Skemmtiferðaskip á siglingu um Eyjafjörð.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.