Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Side 15

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Side 15
15 býlisins í Þorlákshöfn er farið að sækja laugina en við sjáum að í henni og íþróttaaðstöðunni leynist falið leyndarmál því aðstaðan hefur ekki verið kynnt með markvissum hætti. Það er sérstaklega innisundlaugin sem hefur að- dráttarafl yfir vetrartímann – bæði fyrir heimafólk og aðra sem leið eiga um eða koma beinlínis inn í Þorlákshöfn til að bregða sér í sund því fólk kemur aftur og aftur.“ Gunnsteinn segir Þorlákshöfn vaxandi íþróttabæ. „Við höfum náð ótrúlegum ár- angri í ýmsum greinum. Körfubolti og frjálsar íþróttir eru ofarlega á vinsældalistanum og körfuboltalið Þorlákshafnar komst í bikarúrslit í vetur sem var mjög gaman.“ Gróður tekinn að vaxa og dafna Nýtt ráðhús var byggt í Þorlákshöfn fyrir og um síðustu aldamót og tekið í notkun árið 2001. „Þetta er stærðarhús, um 2.400 fer- metrar, og með því sköpuðust möguleikar til þess að koma upp miðbæ. Götunum voru gefin nöfn en engu að síður reynt að halda aðeins í gömlu stafaheitin með því að merkja með bókstöfum. Stafaheitin voru sérstakur kafli í sögu Þorlákshafnar sem á sér fá eða engin önnur dæmi hér á landi.“ Gunnsteinn segir að umhverfi og útlit bæj- arins hafi líka þróast með árunum og nú sé gróður tekinn að vaxa og dafna á stað sem enginn hélt á sínum tíma að þýddi að gróður- setja á eða rækta. „Það þrífast ekki allar plöntur við sjávarsíðuna og velja þarf gróður sem þolir sjávarasaltið vel og getur nýtt sér fremur efnasnauðan og rýran jarðveg. En þetta hefur tekist og gróðurliturinn farinn að vekja eftirtekt.“ Ölfusið er góður búsetuvalkostur Þótt Ölfusið sé með landmeiri sveitarfélögum á suðvesturhorni landsins og þótt víðar væri leitað og innan þess sé stórt sveitahérað er lítið um hefðbundinn búskap. „Það er eitt kúabú og nokkur sauðfjárbú í Ölfusinu en talsvert um hrossarækt. Þá hefur ferðaþjón- ustan verið að skjóta rótum hér eins og víða á landinu.“ „Á hverju lifa íbúarnir þá?“ kann ef til vill einhver að spyrja. Gunnsteinn segir að á síð- ari árum hafi færst í vöxt að fólk kjósi að hafa búsetu í Ölfusinu en starfa á höfuðborgar- svæðinu. „Þetta er einfaldlega góður val- kostur til búsetu og margir setja ekki fyrir sig að aka daglega á milli til og frá vinnu. Svo eru líka komnar almenningssamgöngur eða strætóferðir eftir þjóðvegi 1 sem liggur neðan Hveragerðis.“ Hann segir að yfir veturinn geti Þrengslin verið öruggari leið en þjóðvegur 1. Hún verði síður ófær og veður oft skárra en á Hellis- heiðinni. „Okkur finnst á hinn bóginn að Vegagerðin mætti standa betur að því að halda leiðinni um Þrengslin opinni í stað þess að leggja mun meiri áherslu á heiðina þótt sú leið sé vissulega styttri þegar fólk er að fara til Hveragerðis, Selfoss eða lengra um Suður- land.“ Góð aðstaða til sjávarútvegs Gunnsteinn segir að þótt dregið hafi úr hefð- bundnum atvinnugreinum, landbúnaði og sjávarútvegi, hafi annað komið í staðinn. „Þarna er ég fyrst og fremst að tala um dreifðu byggðina en í Þorlákshöfn hefur einnig orðið umtalsverð breyting á atvinnu- háttum. Lengi vel byggðist atvinnulífið eink- um upp af tveimur útvegsfyrirtækjum; Meitlinum og Glettingi. Þau hafa horfið af vettvangi og besti tíminn í sjávarútvegi og Sumarblíða í Skötubót við Þorlákshöfn. Bókasafnið er stolt íbúa Þorlákshafnar og ungmennin notfæra sér aðstöðuna sem þar er í boði.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.