Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Side 16
16
fiskvinnslu er liðinn, hvað sem framtíðin ber í
skauti sér.“
Hann segir að þó engin stórútgerð sé í
sveitarfélaginu miðað við það sem áður var,
sé engu að síður nokkur útvegur stundaður.
„Aðstaða til sjávarútvegs er mjög góð. Eina
hafnarstæðið við suðurströndina er í Þorláks-
höfn, ef Grindavík er undanskilin, og eftir að
Suðurstrandarvegurinn kom til sögunnar er
leiðin orðin greið til Keflavíkurflugvallar og
þar með útflutningsleiðin fyrir fiskafurðir.“
Nýjar atvinnugreinar að vaxa
Gunnsteinn segir aðrar atvinnugreinar hafa
vaxið. Í því sambandi megi nefna bæði iðnað-
ar- og þjónustufyrirtæki og nú séu komin
fram áform um hótelbyggingu og rekstur.
„Selvogurinn hefur ákveðið aðdráttarafl
fyrir ferðafólk, einkum vegna náttúrufegurðar
en einnig í ljósi sögunnar. Enn er eftir að
leggja ljósleiðara inn í Selvoginn en ljósleiðari
er í dag undirstaða búsetu og byggðar ekkert
síður en þjóðvegurinn því hver vill vera net-
laus og þannig án samskipta við umheiminn?
Þetta er ekki óskastaða en vissulega er þarna
um nokkra vegalengd en fáa notendur að
ræða og því nokkurn kostnað.“
Gunnsteinn segir að fyrir tveimur árum
hafi verið gerður samningur við Gagna-
veitu Reykjavíkur um að leggja ljósleiðara um
Ölfusið. „Selvogurinn er eina svæðið sem
eftir er og það verður að vinna að því að
tengja þetta svæði umheiminum. Það er alger
forsenda þess að búseta geti aukist þar – til
dæmis í tengslum við ferðaþjónustu. En þetta
er spurning um fjarlægðir og fjölda.“
Hótel á Óseyrartanga
En það er fleira en fegurð og saga Selvogsins
sem dregur ferðafólk að þessu svæði, að
sögn Gunnsteins. „Svarta fjaran, hraunið og
landslagið í kringum Þorlákshöfn hafa heil-
mikið aðdráttarafl. Nú er búið að staðfesta
deiliskipulag fyrir hótelbyggingu á Óseyrar-
tanga þar sem veitingastaðurinn Hafið bláa er
og nýtur mikilla vinsælda. Framkvæmdaaðilar
eru tilbúnir að hefja þetta verkefni og miðað
við þann vöxt sem er í ferðaþjónustunni er lík-
legt að hafist verði handa innan tíðar. Fleiri
verkefni á sviði ferðaþjónustu eru í farvatninu
og verða vonandi að veruleika.“
Sveitarfélagið Ölfus
Þorlákshöfn séð úr lofti.
Þótt dregið hafi úr umsvifum í sjávarútvegi er fiskiðnaður enn talsverður. Hér er verið að gera að ýsu.