Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Síða 20

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Síða 20
20 „Þetta er búinn að vera 20 ára ferill, mjög árangursríkur og hefur sett skemmtilegan svip á bæjarlífið vítt og breitt um landið,“ segir Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri Skóla- skrifstofu Hafnarfjarðar og formaður Radda. Ingibjörg er einn af forvígis- mönnum Stóru upplestrarkeppninnar og ein helsta driffjöður hennar í gegn- um árin. Stóra upplestrarkeppnin hefur stöðugt fengið meiri athygli og er orðinn fastur árlegur viðburður í mörgum skólasamfélögum. Ingibjörg segir þetta vera merkisafmæli og nú sé spurning um framtíðina. „Þetta er helsta læsisverkefni á landinu og ekkert verkefni hefur lifað svona lengi. Nú hafa allir áhyggjur af læsi, það er eitt helsta um- fjöllunarefni í skólamálum þessa dagana enda mikið alvörumál ef dregur úr lestrar- getu barna.“ Ingibjörg segir að þegar keppnin fór fyrst af stað, veturinn 1996, hafi þessi umræða ekki verið komin á það stig sem hún er í dag. „Við vorum ekki beinlínis að hvetja til meiri lestrar heldur miklu fremur að lesa betur og læra að koma fram af virðingu og auka sjálfstraust. Auðvitað hefur þetta verkefni borið á góma í þeirri alvarlegu umræðu sem farið hefur fram að undanförnu um vaxandi lestrarvanda og dvínandi lesskilning á meðal barna og ungmenna og er það af hinu góða því lestrarkunnáttan og getan til þess að til- einka sér ritað mál er undirstaða frekara náms.“ Allir sjöundu bekkingar hafa tekið þátt „Keppnin hefst árlega á degi íslenskrar tungu og hefur frá árinu 1996 náð að þroskast og dafna meðal nemenda í sjöunda bekk og lýkur verkefninu í mars ár hvert með mynd- arlegum menningarhátíðum um allt land,“ segir Ingibjörg. Fyrsta upplestrarhátíðin var haldin í Hafn- arfirði þann 4. mars 1997 og fljótt bættust fleiri bæjarfélög í hópinn. Síðustu 16 árin Stóra upplestrarkeppnin –­Frábær­árangur­í­tvo­áratugi Stóra upplestrarkeppnin Frá einni af hátíðum Stóru upplestrarkeppninnar.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.