Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Qupperneq 22

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Qupperneq 22
22 þátt í Stóru upplestrarkeppninni,“ segir Ingi- björg. Hún segir að mörgu að hyggja í þessu sambandi en afar ánægjulegt sé til þess að vita að árlega skuli heill árgangur í grunn- skóla vera að vanda sig við að ná þessum markmiðum og stíga síðan á stokk að vori og lesa af listfengi fyrir fullum sölum áhuga- samra áheyrenda. „Lokahátíðir í mars eru metnaðarfullt framlag ungmenna til menningarlífs heima- byggðarinnar sem er full ástæða til að veita athygli og bera virðingu fyrir.“ Litla upplestrarkeppnin fyrir fjórðu bekkinga Ingibjörg segir að á fimmtán ára afmæli Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði hafi verið ákveðið að fara af stað með annað verkefni sem byggt er á sömu hugmynda- fræði og sú stóra en sniðið að nemendum í fjórða bekk. „Þar taka líka allir þátt og í keppnishug- takinu felst að keppa að því að verða betri í lestri í dag en í gær. Allir eru sigurvegarar og verkefninu lýkur í apríl með hátíðum þar sem allir koma fram, ýmist í talkórum eða sem einstaklingar. Þetta verkefni er afar skemmti- legt og eru allar líkur á að það nái að dafna á næstu árum enda voru í vetur skráðir 60 skólar til verkefnisins.“ Nauðsynlegt að tengja þessi verkefni við heimilin Ingibjörg segir að það sé mikils virði að tengja bæði þessi verkefni við heimilin því fá verkefni séu betur til þess fallin og mætti svo sannar- lega styrkja það samstarf enn frekar. Stóra upplestrarkeppnin á ýmsa velunn- ara sem styrkja verkefnið. Mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið veitti keppninni sér- staka viðurkenningu árið 2000 og árið 2006 fékk Stóra upplestrarkeppnin foreldraverð- laun Heimilis og skóla. „Reynsla undanfarinna tveggja áratuga sýnir hversu nauðsynlegt er að halda verkefn- inu áfram og efla það,“ segir Ingibjörg að lokum. Stóra upplestrarkeppnin Ingibjörg Einarsdóttir skrifstofustjóri á einum af viðburðum Stóru upplestrarkeppninnar. Að einni upplestrarhátíð lokinni.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.