Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Blaðsíða 24
24
Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, fór til Úkraínu sl. haust til
kosningaeftirlits á vegum sveitarstjórn-
arþings Evrópuráðsins en hann tók sæti
í ráðinu á árinu 2014. Gunnar Axel
þekkir því vel til sveitarstjórnarmála og
segir að bæði fróðleiks- og ævintýraþrá
hafi legið að baki því að hann sótti um
þátttöku í þessu verkefni. Gunnar Axel
kveðst alveg geta hugsað sér að fara
aftur í slíka för og hvetur sveitarstjórar-
fólk til að taka þátt í alþjóðasamstarfi
ef það hefur tök á því.
A ðdragandinn var sá að ég tók sæti á sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins vorið
2014. Eitt af meginverkefnum Evrópuráðsins
er að gæta að og styðja við þróun lýðræðis
og mannréttinda í aðildarríkjum þess. Inni í
því er eftirlit með kosningum og úttekt á
lýðræðisumbótum almennt sem er veiga-
mikill þáttur í starfsemi ráðsins.“
Hann segir að aðstæður í Úkraínu séu
með þeim hætti að þar ríki í raun stríðs-
ástand á sama tíma og viðkvæmt ferli lýð-
ræðisumbóta standi yfir. „Pólitískur og efna-
hagslegur óstöðugleiki er mikill og landið er
víðfemt. Þar búa einnig um 45 milljónir
manna. Af þessum ástæðum var ákveðið að
senda stærri sendinefnd þangað en þær sem
fara að öllu jöfnu til hefðbundins kosninga-
eftirlits.“
Hann segir að í fyrsta skipti
í sögu Evrópuráðsins hafi bæði
sveitarstjórnaþingið og þing-
mannavettvangurinn tekið
þátt í kosningaeftirliti vegna
sveitarstjórnarkosninga. „Þess
vegna voru bæði sveitarstjórn-
arfólk og þingmenn í þessari
för auk sérfræðinga á vegum
þingsins. Alls voru 57 fulltrúar
í sendinefndinni og mín þátt-
taka atvikaðist þannig að aðal-
fulltrúum á sveitarstjórna-
þinginu er boðin þátttaka. Ég
sótti um að taka þátt í þessu
verkefni, aðallega af einskær-
um áhuga en smá ævintýraþrá
blundaði einnig að baki.“
Farið í gegnum allt
lýðræðiskerfið
Gunnar Axel segir að kosn-
ingaeftirlit og úttekt séu mun
víðtækari en hann hafi gert sér
í hugarlund. „Ég hélt að þetta
snerist einkum um að hafa eft-
irlit með sjálfum kosningunum
en verkefnið er miklu víðtækara
en svo. Þetta snýst ekki bara
um kosningadaginn eða dag-
ana á undan heldur einnig
hvernig staðið er að allri um-
gjörð lýðræðismála, s.s. stöðu
fjölmiðla í landinu. Þess vegna
er svo mikilvægt að sendi-
nefndir fái tækifæri til þess að
GunnarAxelAxelssonbæjarfulltrúi:
Lærdómsríkt að fara
í kosningaeftirlit
til Úkraínu
Lýðræðismál
Gunnar Axel á kosningadaginn í Úkraínu ásamt fulltrúa sveitarstjórnar-
þingsins frá Tyrklandi en þeir unnu saman þann dag.