Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Qupperneq 25

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Qupperneq 25
25 hitta alla þá ólíku aðila viðkomandi samfélags sem koma að lýðræðismálum með einhverjum hætti.“ Fyrstu dagana í Úkraínu hitti hópurinn fræðimenn og fulltrúa félagasamtaka sem starfa á sviði lýðræðismála, fulltrúa alþjóða- stofnana í landinu og sendiherra erlendra ríkja sem hafa aðsetur í Úkraínu. „Við hittum einnig fulltrúa stjórnmálaflokka og frambjóð- endur til þess að fá innsýn í stöðu mála og nutum þar aðstoðar aðila sem hafa meðal annars það hlutverk að undirbúa komu sendinefnda.“ Misskiptingin er ógnvekjandi „Fyrst og fremst kom umfang verkefnisins mér á óvart og hversu djúpt við fórum í gegnum hlutina. Varðandi landið sjálft er mjög áhugavert að fá að kynnast því; kynn- ast nýju landi og fá tækifæri til þess á þann hátt sem hefðbundnir gestir og ferðamenn fá alla jafnan ekki tækifæri til. Við fengum tækifæri til þess að heimsækja stjórnarstofn- anir og kynnast mörgum hliðum samfélags- ins.“ Hann segir það hafa komið sér mjög á óvart hversu „misskiptingin í Úkraínu er gríð- arleg og á allan hátt áberandi. Annars vegar er mikið ríkidæmi mjög fárra og hins vegar mikil fátækt mjög margra. Ég held að skort- ur á því sem við köllum venjulega millistétt standi þessu landi verulega fyrir þrifum. Misskiptingin er ógnvekjandi. Það sem gerst hefur í Úkraínu er sambærilegt við það sem gerðist á stjórnartíma Boris Jeltsin í Rússlandi, að eigur sem voru í höndum hins opinbera undir kommúnísku skipulagi lentu í höndum fárra aðila.“ Hann segir að þarna sé að finna svo- nefnda oligarka, sem „eru fámennur hópur en gífurlega auðugur. Þessir menn eiga stjórnmálin í raun og veru, því þarna tala menn um stjórnmálaflokka sem eignir þess- ara manna. Þeir eiga fjölmiðlasamsteypurnar – sína fjölmiðlasamsteypu hver og sitt stjórn- málaafl hver og stjórnmálin litast öll af hags- munum þeirra og hafa gert það í gegnum tíðina allt frá falli Sovétríkjanna. Eins og þetta blasti við mér varð maður var við það með hvað áþreifanlegustum hætti í sjálfu kosn- ingaeftirlitinu.“ Byggingar við hrun Gunnar Axel segir að þjóðin beri þess merki að þar hafa verið átök nær allan þann tíma frá því rússneska keisaradæmið leið undir lok og nú sé tekist á um austurhluta landsins. Krímskaginn hafa verið tekinn undir rússnesk yfirráð að nýju og sagan sé enn og aftur að endurtaka sig; saga átaka á milli austurs og vesturs. „Það sem stakk mig mest er bæði ríki- dæmið og síðan fátæktin sem er almenn á meðal landsmanna. Algengasti húsakostur- inn eru gömlu sovétblokkirnar sem byggðar voru á tíma Sovétríkjanna. Flestar þeirra eru farnar að láta mikið á sjá. Lítið eða ekkert viðhald er til staðar og mikið af húsakynnum eru næstum að hruni komin.“ Atkvæðakaup algeng Eftir þriggja daga dvöl í Kiev hélt Gunnar Axel ásamt tyrkneskum fulltrúa til borgar í vesturhluta Úkraínu sem heitir Ivano- Frankivsk. „Þar mynduðum við ásamt túlki og bílstjóra teymi sem falið var að fylgjast með framkvæmd kosninganna á því svæði. Þar hittum við aðila frá Öryggis- og samvinnu- stofnun Evrópu sem höfðu undirbúið komu okkar. Við áttum einnig fundi með kjörstjórn- um á svæðinu dagana fyrir kosningarnar og á sjálfan kjördaginn hófum við dagsverkið snemma morguns með því að vera viðstaddir opnun kjörstaða og síðan heimsóttum við kjörstaði yfir daginn eða á meðan þeir voru opnir og vorum síðan fram á nótt með kjör- stjórninni við að taka á móti atkvæðum og fylgjast síðan með talningunni.“ Kosningarnar voru sambland af flokka- og persónukjöri og flóknir atkvæðaseðlarnir báru þess skýr merki. „Eitt af því sem stund- að var í tengslum við kosningarnar var stofn- un svokallaðra flokka-eftirlíkinga. Það eru stjórnmálaflokkar sem bera keimlík nöfn og einhver stóru flokkanna. Efsti maður á lista Gunnar Axel ásamt Gudrun Mosler-Toernstroem, varaforseta sveitarstjórnarþingsins og yfirmanni sendinefndarinnar til Úkraínu.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.