Muninn - 01.08.1906, Blaðsíða 11
MUNINN.
9
Til stúknanna i nnðæninn.
Eins og oft hefir áður borið við, kemur „Muninn“
á eftir áætluðum tíma. En ástæðr liggja til þess.
Stúkurnar eru, margar hverjar, mjög hirðulausar um að
senda liagnefndarskrár sínar í tæka tíð, og í þetta sinn
sendu að eins stúkurnar Verðandi nr. 9., Dröfn nr. 55
og Vikingr nr. 104 skrárnar á réttum tíma til mín,
og þær biðjast afsökunar á drættinum. Eg beið svo,
að sjá hverju fram færi, og það batnaði nokkuð með
biðinni. Sem dæmi þess, live afskaplega hagnefndirnar
eru opt og tíðum hirðulausar og vanrækja starf sitt,
skal eg hér geta þess, að ein hagnefndin, er var marg-
krafin — byrjað á því síðast í Júní — kom fyrst á
annan eða þriðja fund stúkunnar i þ. m. með uppkast
er vera átti hagnefndarskrá, en það var svo úr garði
gert, að stúkan varð að breyta því öllu, og einn hag-
nefndarmaðrinn samdi — sem eigi hafði mætt á fund-
um(?) hennar — þe^sar breytingartillögur. Síðan er
nokkur tími, en ekki hefir nefndin eða stúkan haft enn
tíma til að afrita hana og senda mér til birtingar.
Auðsætt er það öllum, að á þennan veg má þetta
eigi ganga, og eg vil enn brýna fyrir stúkunum, að
ganga fast eftir því, að liagnefndirnar ræki starf sitt.
Einkum er það mikilsvarðandi, að þær komi næst á
réttum tíma, því þá verður ekkert beðið eftir þeim.
Bróðurlegast.
Keykjavík, 28. Ágúst 1906.
Pétr Zophoníasson,
u. æ. t.