Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
ÍÞRÓTTIR
Handbolti Kvennalandsliðið í handknattleik sá ekki til sólar gegn sterku liði Dana í undankeppni Evrópu-
mótsins í Laugardalshöllinni í gær. Danir lönduðu 15 marka sigri. Ísland án stiga eftir tvo leiki 6
Íþróttir
mbl.is
Torfi Tímoteus Gunnarsson, varn-
armaður úr Fjölni, hélt í gær utan
til Englands þar sem hann verður
við æfingar hjá enska knatt-
spyrnuliðinu Wolves.
Þetta kemur fram á instagram-
síðu Fjölnis, en í sömu færslu
kemur fram að Torfi Tímoteus
hafi verið valinn efnilegasti leik-
maður liðsins á lokahófi félagsins
sem haldið var um helgina.
Torfi Tímoteus sem er 18 ára
gamall spilaði 11 deildarleiki fyrir
Fjölni í sumar, en hann hefur þar
að auki leikið með bæði U-17 og
U-19 ára landsliði Íslands, fimm-
tán leiki með U-17 og tvo leiki
núna í september með U-19 ára
liðinu.
Torfi Tímoteus
æfir hjá Wolves
LANDSLIÐIÐ
Guðmundur Hilmarsson
Víðir Sigurðsson
Karlalandsliðið í knattspyrnu kemur saman í
Tyrklandi í dag en á föstudagskvöldið mætast
Tyrkland og Ísland í afar mikilvægum leik í
næstsíðustu umferð í undankeppni HM.
Íslenska liðið verður við æfingar í Antalya
fram til miðvikudags en þá heldur það til Esk-
isehir þar sem leikurinn fer fram á nýlegum leik-
vangi sem tekur 35.000 áhorfendur.
Flestir af landsliðsmönnunum voru á ferðinni
með liðum sínum um nýliðna helgi og segja má að
þeir hafi haft frekar hægt um sig. Björn Berg-
mann Sigurðarson var sá eini sem var á skot-
skónum en hann skoraði sitt 13. mark á tíma-
bilinu í norsku úrvalsdeildinni þegar Molde gerði
2:2 jafntefli við Sogndal í gær.
Gylfi skástur í tapi Everton
Miðjumenn landsliðsins spiluðu minnst um
helgina. Gylfi Þór Sigurðsson og Ólafur Ingi
Skúlason voru þeir einu sem voru í byrj-
unarliðum sinna liða, með Everton og Karab-
ükspor. Gylfi var sprækastur í annars döpru liði
Everton sem tapaði 0:1 fyrir Burnley á heimavelli
í gær. Arnór Ingvi Traustason spilaði í 20 mín-
útur með AEK í Grikklandi en aðrir miðjumenn
sem spilað hafa undanfarna landsleiki komu ekk-
ert við sögu í sínum liðum. Jóhann Berg Guð-
mundsson kom ekkert inn á hjá Burnley gegn
Everton, Birkir Bjarnason var í sömu stöðu hjá
Aston Villa, Aron Einar Gunnarsson er meiddur
og lék ekki með Cardiff og Rúrik Gíslason lék
ekki með Nürnberg. Tveir miðjumenn í hópnum,
Rúnar Már Sigurjónsson og Arnór Smárason,
spiluðu með Grasshoppers og Hammarby en þeir
eru báðir mjög ólíklegir til að koma við sögu gegn
Tyrkjum.
Þá lék Emil Hallfreðsson ekki með Udinese
gegn Sampdoria vegna meiðsla. Hann verður
ekki með í Tyrklandi vegna leikbanns en gæti
spilað gegn Kósóvó þremur dögum síðar.
Varnarmenn spiluðu í 90 mínútur
Varnarmenn landsliðsins spiluðu hinsvegar all-
ir í 90 mínútur með sínum liðum um helgina,
nema Hörður Björgvin Magnússon sem var á
bekknum hjá Bristol City.
Sverrir Ingi Ingason og Ragnar Sigurðsson,
sem léku saman í hjarta varnarinnar gegn Úkra-
ínumönnum, voru báðir í tapliði í Rússlandi, með
Rostov og Rubin Kazan. Kári Árnason hefur spil-
að vel með liði Aberdeen í síðustu leikjum og eng-
inn breyting var á því um helgina. Hann lék í
vörn liðsins sem vann 3:0 sigur á St. Johnstone.
Kári og félagar eru jafnir meisturum Celtic á
toppi skosku úrvalsdeildarinnar. Hjörtur Her-
mannsson var að vanda í byrjunarliði Bröndby í
4:0 sigri gegn SönderjyskE í gær og sama er að
segja um Jón Guðna Fjóluson sem spilar alla leiki
Norrköping og var í hjarta varnarinnar í gær
þegar liðið hafði betur gegn Hammarby. Birkir
Már Sævarsson var á sínum stað í vörn Hamm-
arby. Ari Freyr Skúlason lék með Lokeren í góð-
um útisigri á Zulte-Waregem í gærkvöld.
Björn skoraði fyrir Molde eins og áður sagði.
Alfreð Finnbogason og Viðar Örn Kjartansson
léku með Augsburg og Maccabi Tel Aviv og Jón
Daði Böðvarsson spilaði í 25 mínútur með Read-
ing.
Markverðirnir voru allir á sínum stað, Hannes
Þór Halldórsson spilaði á föstudag, Ögmundur
Kristinsson á laugardag og Rúnar Alex Rún-
arsson í gær. Nánar um alla íslensku leikmennina
erlendis í úrslitadálkunum á bls. 2, 4 og 5.
Miðjumenn spiluðu lítið
Fæstir miðjumanna landsliðsins voru með liðum sínum um helgina Flestir
aðrir spiluðu Björn sá eini sem skoraði Liðið kemur saman í Antalya í dag
Andri Rúnar
Bjarnason, fram-
herji Grindvík-
inga, var valinn
besti leikmað-
urinn í Pepsi-
deild karla í
knattspyrnu af
leikmönnum
deildarinnar.
Andri Rúnar
varð markakóng-
ur Pepsi-deildarinnar í ár með 19
mörk og fékk hann afhentan
gullskó Adidas eftir lokaleik Grind-
víkinga gegn Fjölni en Bolvíking-
urinn jafnaði markametið í efstu
deild.
Pétur Pétursson setti metið árið
1978 þegar hann skoraði 19 mörk
fyrir Skagamenn. Guðmundur
Torfason jafnaði það 1986 með því
að skora 19 mörk fyrir Fram, Þórð-
ur Guðjónsson gerði það 1993 með
19 mörkum fyrir Skagamenn og
loks skoraði Tryggvi Guðmundsson
19 mörk fyrir Eyjamenn árið 1997.
gummih@mbl.is
Bestur og
markahæstur
Andri Rúnar
Bjarnason
Agla María Al-
bertsdóttir og
Alex Þór Hauks-
son, bæði úr
Stjörnunni, voru
valin efnilegustu
leikmenn í Pepsi-
deildunum í
knattspyrnu á
nýafstöðnu tíma-
bili. Agla María,
sem er 18 ára
gömul landsliðskona, kom við sögu
í 17 af 18 leikjum Stjörnunnar í
deildinni og skoraði í þeim 6 mörk.
Alex Þór sem er 18 ára gamall
var í stóru hlutverki með Stjörnu-
mönnum í sumar. Hann lék 19 leiki
með Garðabæjarliðinu, flesta
þeirra í byrjunarliðinu.
gummih@mbl.is
Agla og Alex
efnilegust
Agla María
Albertsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Meistarar Fyrliðinn Haukur Páll Sigurðsson og Bjarni Ólafur Eiríksson lyfta hér saman bikarnum á loft eftir að Valsmenn voru krýndir Íslandsmeistarar
karla í knattspyrnu á laugardaginn. Valsmenn enduðu með 50 stig, tólf stigum meira en Stjarnan sem hafnaði í öðru sæti Pepsi-deildarinnar. »4-5