Morgunblaðið - 30.10.2017, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
KOSNINGAR 2017
Þingmenn átta flokka taka sæti á
Alþingi eftir kosningar helgarinn-
ar, en þar af eru margir að setjast
á þing í fyrsta sinn.
Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, segir fjölda þing-
flokka vissulega skapa einhver
vandamál en ekkert sem starfsfólk
þingsins geti ekki leyst úr.
„Já, þetta er nokkuð snúið og
erfitt. Við leysum hins vegar úr
þessu líkt og við gerðum fyrir ári
þegar flokkarnir voru sjö,“ segir
Helgi en fara þarf í örlitlar breyt-
ingar til að koma öllum flokkum
fyrir. „Þetta eru engar stórvægi-
legar breytingar sem við erum að
ráðast í en það þarf að taka niður
létta veggi og færa til svo koma
megi öllum þingflokkum vel fyrir.“
Þingflokksherbergin eru öll í Al-
þingishúsinu eða skálanum svo-
kallaða. Spurður hvort deilt sé um
bestu herbergin segir Helgi svo
ekki vera.
„Nei, engar deilur. Reglur um
úthlutun þingflokksherbergja eru
nokkuð skýrar frá forsætisnefnd.“
Nýir þingmenn fá kynningu
Fjöldi nýrra þingmanna mun
stíga sín fyrstu skerf á Alþingi á
komandi kjörtímabili og þarf að
skóla þá til í siðum og venjum
þingsins. Helgi vill þó ekki kalla
þetta þingmannaskóla en vissulega
fá nýir þingmenn leiðsögn um
störf þingsins og þann stuðning
sem þingmenn fá frá starfsfólki
þingsins.
„Stefnt er að því að kynning fyr-
ir nýja þingmenn verði haldin 8.
nóvember næstkomandi og hún
verður með hefðbundnu sniði,“
segir Helgi.
Þröngt mega sáttir sitja
Átta þingflokkar munu starfa á Alþingi Taka þarf niður
létta veggi og gera breytingar til að koma öllum fyrir
Morgunblaðið/Golli
Alþingi Helgi Bernódusson skrif-
stofustjóri tekur við nýju fólki.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, hefur boðað til fundar
við sig á Bessastöðum í dag for-
ystumenn þeirra flokka sem náðu
kjöri til Alþingis um helgina.
Fyrstur til fundar við forseta
verður Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, sem
mætir kl. 10. Bjarni hafði áður
skilað umboði sínu til forsetans
eftir að slitnaði upp úr samstarf-
inu við Bjarta framtíð og Viðreisn
og efnt var til kosninga. Síðan þá
hefur ríkisstjórn Bjarna verið
starfsstjórn.
Næst mun Katrín Jakobsdóttir,
formaður Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs, mæta á
Bessastaði í dag, eða kl. 11.
Klukkan 12 verður röðin komin
að Sigurði Inga Jóhannssyni, for-
manni Framsóknarflokksins, kl.
13 mætir Logi Már Einarsson,
formaður Samfylkingarinnar, og
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, hefur ver-
ið boðaður kl. 14.
Á eftir Sigmundi kemur Þór-
hildur Sunna Ævarsdóttir,
fulltrúi Pírata, klukkan 15 og
klukkustund síðar er komið að
Ingu Sæland, formanni Flokks
fólksins.
Síðasti fundur forseta í dag
verður síðan með Þorgerði Katr-
ínu Gunnarsdóttur, formanni Við-
reisnar, eða klukkan 17 síðdegis.
Hver fær svo umboðið?
Að þessum fundarhöldum lokn-
um má gera ráð fyrir að Guðni
Th. Jóhannesson geri upp hug
sinn um hvaða formaður fær
stjórnarmyndunarumboðið fyrst-
ur. Það gæti gerst strax á morg-
un, þriðjudag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðræður Bjarni Benediktsson á
fundi með Guðna Th. Jóhannessyni
þegar hann fékk umboð til stjórnar-
myndunar fyrir ári.
Fundað á
Bessastöð-
um í dag
Guðni kallar
formennina til sín
Gísli Rúnar Gíslason
Jón Birgir Eiríksson
Strax eftir kosninganótt hófu for-
ystumenn flokkanna óformlegar
þreifingar um myndun ríkisstjórnar
með meirihluta á Alþingi, eða stuðn-
ingi þingsins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur mest-
an þingstyrk, 16 þingmenn, en
flokkurinn missti þó fimm þingsæti í
kosningunum um helgina. Bjarni
Benediktsson, formaður flokksins,
vildi ekki tjá sig um niðurstöður
kosninganna eða mögulegar stjórn-
armyndunarviðræður við Morgun-
blaðið.
Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins
sagðist Bjarni gleðjast yfir árangr-
inum að því leyti að flokkurinn hefði
mest fylgi í öllum kjördæmum.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins á lands-
vísu hefur aðeins einu sinni verið
minna frá stofnun lýðveldisins og
raunar frá stofnun flokksins árið
1929 en það var í þingkosningunum
árið 2009.
Stjórnarandstaðan í meirihluta
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð bætti við sig einum manni og
hefur ellefu þingmenn. Katrín Jak-
obsdóttir, formaður VG, segir það
stærstu tíðindin að fráfarandi
stjórnarandstaða hafi nú meirihluta
á þingi. Sú ríkisstjórn yrði fjögurra
flokka stjórn og hefði eins manns
meirihluta. „Mér finnst skynsam-
legt að við förum yfir það í okkar
herbúðum hvort við metum það sem
vænlegan kost,“ segir Katrín.
Spurð hvort hún myndi vilja leiða
stjórn svo margra flokka, með hlið-
sjón af örlögum síðustu ríkisstjórn-
ar, segir hún traust innan ríkis-
stjórnar ekki mælt í fjölda flokka
eða í þingstyrk. „Þetta byggist á
trausti milli fólks í fyrsta lagi. Í
öðru lagi snýst þetta um hvort okk-
ur auðnast að skapa breiðari sam-
stöðu í tilteknum málaflokkum
þannig að það ríki meiri friður í
stjórnmálunum,“ segir hún.
Samfylkingin hefur nú sjö þing-
menn, en Logi Már Einarsson, for-
maður flokksins, telur meirihluta
stjórnarandstöðu vera í spilunum og
finnst eðlilegast að Katrín Jakobs-
dóttir fái að spreyta sig fyrst á
stjórnarmyndun. „Það myndar
ágætis grunn fyrir ríkisstjórn hvort
heldur sem við verðum fjórir flokk-
ar eða tökum einhvern með okkur í
það samstarf.“ Logi útilokar þó ekki
viðræður við aðra flokka en segir
það ekkert leyndarmál að honum
hugnist félagshyggjustjórn best.
Framsóknarflokkurinn vann
varnarsigur og hefur átta þing-
menn, jafn marga og síðast. Stef-
anía Óskarsdóttir stjórnmálafræð-
ingur sagði í samtali við mbl.is í gær
að flokkurinn væri í lykilstöðu, hann
gæti ráðið miklu um hvort mynduð
yrði meirihluti fráfarandi stjórnar-
andstöðu eða hvort leitað yrði til
hægri og mynduð stjórn VG, Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
„Við erum meðvituð um þá stöðu
að við erum miðjuflokkur, en það
eru ekki bara kjósendur sem horfa
til okkar sem fólks sem kann og
getur starfað í ríkisstjórn. Hinir
flokkarnir líta líka til okkar,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson, formað-
ur Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, segir erfitt
að spá um framhaldið eftir að nið-
urstöður liggja fyrir. „Ég held að
það muni taka töluverðan tíma að
púsla þessu saman en vonandi verð-
ur það þá bara á grundvelli málefna
þannig að það verði hægt að mynda
ríkisstjórn sem beitir sér fyrir
ákveðnum framfaramálum, en það
er ekkert að fara að gerast á morg-
un held ég,“ segir hann.
Píratar hafi fest sig í sessi
Píratar misstu fjóra þingmenn og
þingflokkurinn er nú sex menn.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, aðal-
samningamaður Pírata, segir flokk-
inn hafa fest sig í sessi og hann eigi
fullt erindi í ríkisstjórn. „Við erum
komin til að vera og það þarf að
taka okkur alvarlega sem stjórn-
málaafl. Við eigum fullt erindi í rík-
isstjórn, það er klárt mál,“ bætir
hún við. Aðspurð hvort viðræður
hafi átt sér stað milli stjórnarand-
stöðuflokkanna, segir hún að óform-
legar viðræður hafi staðið yfir. „Við
höfum heyrst okkar á milli, en þetta
er allt á samtalsstigi núna. Við
sjáum hvernig næstu dagar þróast,“
segir hún. Á fundi nýs þingflokks
Pírata í gær var ákveðið að flokk-
urinn útilokaði samstarf við Sjálf-
stæðisflokk.
Inga Sæland, formaður Flokks
fólksins, hefur ekki útilokað neinn
flokk hvað varðar ríkisstjórnarsam-
starf, en hefur engan sérstakan
samstarfsflokk í huga heldur. Í
samtali við mbl.is í gær sagði hún
flokkinn eiga fullt erindi í ríkis-
stjórn. Flokkurinn hefur fjóra þing-
menn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
segir það útilokað að segja til um
hvaða flokkar muni mynda ríkis-
stjórn svona stuttu eftir kosningar,
en Viðreisn missti þrjá þingmenn,
en hefur nú fjóra. „Við í Viðreisn
skorumst ekki undan ábyrgð, það er
ekki spurning, en stjórnarandstaða
er óneitanlega aðlaðandi í þessum
aðstæðum,“ segir Þorgerður en
bætir við að flokkurinn sé tilbúinn í
að skoða þá stjórn sem getur tryggt
það að málefni Viðreisnar fái braut-
argengi.
Píratar útiloka samstarf
við Sjálfstæðisflokkinn
Möguleiki á samstarfi stjórnarandstöðunnar Framsóknarflokkur lykilbreyta
Morgunblaðið/Eggert
Umræður Leiðtogar flokkanna komu saman í Silfrinu í gær. Þau fara á fund Guðna Th. Jóhannessonar í dag.
Samfylkingin Nýr þingflokkur kom saman til fundar í gær, allir þingmenn
komust nema Albertína Friðbjörg Elíasdóttir úr Norðausturkjördæminu.