Morgunblaðið - 30.10.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.10.2017, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017 Vilhelm Ágústsson heldur uppá 80 ára afmælið sitt í dag íReykjavík með fjölskyldu sinni og flýgur á morgun til Orlando þar sem þau hjónin eiga hús með vinafólki. Vilhelm fæddist á Þórshöfn á Langanesi og ólst þar upp til 10 ára aldurs. Þar var gott að vera fyrir at- hafnasama stráka. Fjölskyldan flutt- ist síðan til Akureyrar þar sem betri skilyrði voru til menntunar. For- eldrar hans voru Ágúst Steinsson bókhaldari hjá KEA og Helga Ágústsdóttir húsmóðir. Þeir eru fimm bræðurnir; Baldur, Vilhelm Birgir, Skúli og Eyjólfur. Vilhelm varð gagnfræðingur árið 1954 frá Gagnfræðaskóla Akur- eyrar. Að námi loknu starfaði hann hjá KEA við verslunarstörf. Nítján ára gamall fluttist hann til New York í Bandaríkjunum á vegum Scandinavian American Foundation. Þar bæði starfaði hann og lærði uppsetningu kjörbúða sem um þetta leyti voru að byrja á Íslandi. Eftir tveggja ára búsetu erlendis hélt hann heim og hóf störf fyrir KEA, fyrst sem útibússtjóri og síðan sem eftirlits- maður matvörubúða og útibúa KEA. Árið 1966 hófu bræðurnir Vilhelm, Birgir og Skúli útleigu á bílum sem var fyrsti vísir að Bílaleigu Akureyrar. Um svipað leyti tóku þeir við rekstri þriggja bensínstöðva af Olíufélaginu. Bílaleigan opnaði fljót- lega útibú í Reykjavík sem elsti bróðirinn Baldur stýrði. Hinn 1. apríl 1974 var fyrirtækið Höldur stofnað utan um þann rekstur sem bræð- urnir voru búnir að stofna til auk reksturs bílaverkstæðis og bílasölu með nýja og notaða bíla. Í apríl 2003 skipti fyrirtækið um eigendur þeg- ar bræðurnir seldu félagið til nokkurra lykilstarfsmanna sinna. Vilhelm starfaði mikið með skátunum á unglingsaldri. Seinna tóku vélsleðarnir við og var hann í hópi frumkvöðla í hálendisferðum að vetr- arlagi þar sem notast var við þessa tiltölulega nýtilkomnu farskjóta. Hann var einn af stofnendum Landssambands íslenskra vélsleðamanna (LÍV) og fyrsti formaður þess. Hann ferðaðist mikið um hálendi Íslands bæði sumar og vetur og hefur alla tíð haft dálæti á ferðalögum hvort heldur innanlands eða utan. Árið 1961 kvæntist hann Eddu Vilhjálmsdóttur frá Hjalteyri, dóttur Vilhjálms Árnasonar skipstjóra og Svanhildar Sigmundsdóttur hús- móður. Þau eiga tvö börn og fjögur barnabörn. „Ég er þakklátur á þess- ari stundu,“ segir Vilhelm. „Ég á góða fjölskyldu, góða vini og er við góða heilsu. Það er ekki hægt að biðja um meira.“ Afmælisbarnið Vilhelm. Er þakklátur á þessari stundu Vilhelm Ágústsson er áttræður í dag K olbrún Káradóttir fæddist á Selfossi 30.10. 1967 og hefur búið þar lengst af. Hún var í grunnskól- anum þar, FSU og lauk stúdents- prófi 1986: „Ég er Selfyssingur í húð og hár en langafi minn byggði Sóltún sem var fyrsta húsið á Sel- fossi, eftir Tryggvaskála. Á bernskuárum mínum þekktu allir alla á Selfossi og stutt í alla þjón- ustu. Ég var mikið í handbolta og badminton, lærði á píanó í mörg ár og söng í kór frá 10 ára aldri. Árin í fjölbraut voru afar skemmtileg, snérust einkum um kórinn og fé- lagsskap í kringum hann enda ógleymanleg fyrsta utanlandsferðin mín, farin með kórnum til Dan- merkur og Svíþjóðar 1986.“ Kolbrún vann í fiski á Stokkseyri og Eyrarbakka á unglingsárunum, í garðyrkju og síðan hjá Kaupfélagi Árnesinga á sumrin og í jólafríum þar til hún fór til Reykjavíkur 1987. Í Reykjavík starfaði Kolbrún við Verslunarbankann fram á haust 1989, hóf þá nám í lífeindafræði í Tækniskóla Íslands og útskrifaðist haustið 1992. Hún hóf þá störf á Rannsóknastofunni í Fossvoginum en fjölskyldan flutti á Selfoss haust- ið 1994 er Kolbrún var í fæðingar- orlofi. Hún hóf störf á Rannsóknar- stofunni á Sjúkrahúsinu Selfossi í ársbyrjun 1998, varð yfirlífeinda- fræðingur á rannsóknastofunni í ársbyrjun 2000 og hefur gegnt þeirri stöðu síðan. „Rannsóknartæknin hefur þróast feikilega frá því ég hóf störf í fag- inu, ekki síst tölvuvæðingin en frá 2009 höfum við verið samtengd tölvukerfi LSH og notum því að mestu sömu rannsóknaraðferðir þó að okkar tæki séu aðeins smærri í sniðum.“ Kolbrún var ritari í stjórn og í samninganefnd Félags lífeindafræð- inga 2003-2006 og í fagráði fyrir líf- eindafræði á námsárunum. Stórfjölskylda Kolbrúnar hittist reglulega á bænum Hlíð í Grafn- ingnum sem foreldrar hennar eiga, Kolbrún Káradóttir lífeindafræðingur – 50 ára Fjölskyldan Kolbrún og Magnús með dætrum, syni, tengdasonum og fjölskylduljósinu honum Eyvindi Áka. Sunnlendingur sem syngur og hjólar Í Pont du Gard Kolbrún og Magnús. Hafdís Marvinsdóttir, Katla Andradóttir og Sóley Andradóttir héldu tombólu fyrir utan Hagkaup í Garðabæ þar sem þær seldu perlið sitt. Þar söfnuðu þær 21.911 kr. sem þær gáfu Rauða krossinum. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... VIFTUR Í MIKLU ÚRVALI Það borgar sig að nota það besta! • Bor›viftur • Gluggaviftur • I›na›arviftur • Loftviftur • Rörablásarar • Ba›viftur • Veggviftur Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.