Morgunblaðið - 30.10.2017, Blaðsíða 31
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017
en þær systurnar eru miklar vin-
konur. Hún er í þremur sauma-
klúbbum og frænkuklúbbi, þau
hjónin hafa verið í samkvæmisdansi
í rúm 15 ár og eru nýkomin úr ferð
með danshópnum til Varsjár.
Kolbrún hefur sungið með Jóru-
kórnum, kvennakór á Selfossi, frá
1997. Hún hefur hjólað í hjólahóp
Sjúkrahússins á Selfossi: „Þær
þóttu ekki alveg í lagi konurnar á
sjúkrahúsinu þegar þær ákváðu fyr-
ir 23 árum að hjóla frá Selfossi á
Hvolsvöll á einum degi. Síðan hefur
hópurinn farið árlega í hjólaferðir
og Kolbrún fór í sína fyrstu hjóla-
ferð erlendis núna í september þeg-
ar hún gaf sjálfri sér í afmælisgjöf
hjólaferð um Provence-hérað í Suð-
ur-Frakklandi. Eiginmanninum var
að sjálfsögðu boði með og ferðirnar
eiga líklega eftir að verða fleiri.
Kolbrún verður ekki með mikið
tilstand í tilefni afmælisins en aldrei
að vita hvað hún gerir í vor. En nán-
ustu fjölskyldu verður boðið í
Grafninginn um næstu helgi.
Fjölskylda
Eiginmaður Kolbrúnar er Magn-
ús Ólason, f. 5.10. 1964, bygginga-
tæknifræðingur og framkvæmda-
stjóri Fossvéla á Selfossi. Foreldrar
hans eru Halldóra Valgerður
Steinsdóttir, f. 6.3. 1939, dagmóðir í
Reykjavík, og m.h., Óli Karló Olsen,
f. 28.4. 1935, slökkviliðsmaður.
Börn Kolbrúnar og Magnúsar eru
1) Guðrún Björk, f. 20.2. 1986,
(stjúpdóttir) starfar á Ljósmynda-
stofunni Stúdíó Stund en maður
hennar er Gunnar Óli Guðjónsson
landslagsarkitekt og er sonur þeirra
Eyvindur Áki, f. 2015; 2) Laufey
Ósk, f. 12.1. 1988, ljósmyndari á
Stúdíó Stund en maður hennar er
Guðmundur Kristinn Sigurðsson,
verslunar- og þjónustustjóri Toyota
á Selfossi; 3) Viktor Elís, f. 19.8.
1994, starfsmaður hjá JÁ Verktök-
um, og 4) Halldóra Íris, f. 27.1.
1996, starfsmaður á leikskólanum
Árbæ.
Systur Kolbrúnar: Jóhanna Guð-
rún, f. 4.2. 1964, lífeindafræðingur
og hjúkrunarfræðingur í Reykjavík;
Halldóra, f. 3.3. 1965, skrifstofu-
stjóri á fjármálaskrifstofu Reykja-
víkurborgar, og Helena Ragnhildur,
f. 14.9. 1969, tónmenntakennari og
bókari í Reykjavík.
Foreldrar Kolbrúnar eru Guð-
borg Bjarnadóttir, f. 17.11. 1940,
bókavörður á Selfossi, og m.h., Kári
Jónsson, f. 6.1. 1944, framkvæmda-
stjóri Fossvéla á Selfossi.
Kolbrún
Káradóttir
Gísli Brynjólfsson
b. á Haugi
Kristín Jónsdóttir
húsfr. á Haugi í
Gaulv.bæjarhr.
Jón Gíslason
b. á Eystri-Loftsstöðum
Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir
húsfr. á Eystri-Loftsstöðum
Gaulverjabæjarhr., síðar í Rvík
Kári Jónsson
framkv.stj. á Selfossi Kristján Ólafsson
b. og trésmiður í Sigtúnum
og Bár í Hraungerðishr.
Kristjana Jóakimsdóttir
frá Norðurbænum, Selfossi,
húsfreyja í Sigtúnum, Selfossi
Kristjana Kristjánsdóttir
húsfr. í Rvík
Gróa
Guðjónsdóttir
húsfr. í Rvík
Elín
Guðjónsdóttir
húsfr. á
Sandlæk
Sigríður Tómasdóttir
frá Brattholti sem barðist gegn virkjun Gullfoss
Gísli Gíslason
verslunarm. í Rvík
Jóhanna
Guðmundsdóttir
tónlistarkennari
og skólastj. í
Stykkishólmi
Trausti Valsson
arkitekt, skipulagsfr.
og prófessor við HÍ
Loftur
Erlingsson
söngvari,
tónlistar-
kennari og
kórstjóri
Erlingur
Loftsson
b. á
Sandlæk
Valgerður
Bjarnadóttir
aðstoðarm.
iðjuþjálfa, Rvík
Helga
Kristinsdóttir
sjóntækja-
fræðingur,
Rvík
Berglind
Kristinsdóttir
iðjuþjálfi, Rvík
Bryndís Brynjólfsdóttir
verslunarm. í Lindinni,
Selfossi
Guðrún Þórunn
Ingimundardóttir
lífeindafr. í Rvík
Guðmundur
Jónsson
járnsmiður
og framkv.
stj. á Selfossi
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
fyrrv. borgarstjóri og ráðherra
og nú framkv.stj. ODIHR
Brynjólfur Gíslason
veitingam. í
Tryggvaskála á Selfossi
Sigrún
Guðmundsdóttir
framkv.stj.
Heilbrigðis-
eftirlits
Suðurlands,
Selfossi
Guðjón Jónsson
b. í Unnarholti
Elínborg Pálsdóttir
húsfr. í Unnarholti
Bjarni Guðjónsson
b. í Unnarholti, síðar á Selfossi
Halldóra Þorsteinsdóttir
húsfr. í Unnarholti í Hrunam.hr., síðar Selfossi
Þorsteinn Jónsson
b. á Drumboddsstöðum
Guðrún Tómasdóttir
frá Brattholti, húsfr. á Drumboddsstöðum í Biskupstungum
Úr frændgarði Kolbrúnar Káradóttur
Guðborg Bjarnadóttir
bókavörður á Selfossi
Ólafur Gísli Guðmundssonfæddist 30. október 1907 aðTröð í Kolbeinsstaðahreppi,
Hnapp. Foreldrar hans voru Guð-
mundur Tómas Eggertsson, bók-
bindari og bóndi þar, síðar verka-
maður í Reykjavík, og k.h. Pálína
Matthildur Sigurðardóttir ljósmóðir.
Gísli varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík, hann hóf nám
í rafmagnsverkfræði í Winnipeg í
Kanada 1928, en hvarf frá því námi í
kreppunni 1930. Hann tók námskeið
í vörufræði hjá J.E. Vestdal 1939-
1941 og síðar í sömu fræðum í Eng-
landi og Bandaríkjunum.
Gísli stundaði margs konar störf í
Kanada 1928-38, var tollvörður í
Reykjavík 1939-55 og starfaði við
Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna
1955-64. Hann var stundakennari
við Verzlunarskóla Íslands frá 1952,
kenndi vörufræði og síðar ensku, og
var fastur kennari þar 1968-78.
Hann var fararstjóri og leiðsögu-
maður innanlands og utan 1945-
1981.
Gísli var formaður Samkórs
Reykjavíkur í sex ár, formaður
Landssambands blandaðra kóra í
sjö ár, formaður Félags Snæfellinga
og Hnappdæla í átta ár og formaður
stjórnar Nemendasambands MR í
átján ár. Hann sat í stjórn Tollvarða-
félags Íslands í fimm ár og var ritari
Þjóðræknisfélags Íslendinga í sjö ár.
Gísli samdi kennslubók í vöru-
fræði og skrifaði um ökuleiðir um Ís-
land í Ferðahandbókinni. Hann hélt
fjölda fyrirlestra um Ísland og ís-
lensk málefni og skrifaði dálka um
ferðamál í dagblöð og tímarit.
Kona Gísla var Ingibjörg Jóns-
dóttir húsmæðraskólakennari, f.
1915, d. 1997, þau skildu. Börn
þeirra: Jón Halldór, Brandur, Guð-
mundur, Atli, Ásmundur og Guðrún.
Sambýliskona Gísla var Nanna
Magnúsdóttir, f. 1915, d. 1980, verk-
stjóri, og sambýliskona Gísla þegar
hann lést var Anna M. Guðjóns-
dóttir, f. 1928, d. 2015, húsvörður í
Álftamýrarskóla.
Gísli lést 29. desember 1989.
Merkir Íslendingar
Gísli Guð-
mundsson
90 ára
Hörður Björnsson
85 ára
Anna Jóhanna Oddgeirs
Bjarni Einarsson
Hákon Arnar Jónsson
80 ára
Haukur F. Leósson
Steinþóra Ingimarsdóttir
Vilhelm Ágústsson
75 ára
Anna Lísbet Axelsdóttir
Ásgeir Jóhannes Axelsson
Helga Haraldsdóttir
Marsibil Jóna Tómasdóttir
Ólafía Ásthildur
Sveinsdóttir
Pálína Esther Guðjónsdóttir
Sigrid E. Guðmundsdóttir
Hammer
70 ára
Gertha Germain
Guðmundur Björn
Kristmundsson
Ingibjörg Ólína Hafberg
Karólína Árnadóttir
Kristinn Ágústsson
Magdalena Kristinsdóttir
Vilhjálmur Svanberg
Arngrímsson
60 ára
Gísli Valgeirsson
Gunnhildur J.
Brynjólfsdóttir
Haraldur M. Kristjánsson
Kristinn Guðmundsson
Marta Sigvaldadóttir
Salvör Jóhannesdóttir
Sesselja Björnsdóttir
Sigurður Aðalsteinsson
Stefán Snorri Stefánsson
Særún Þorláksdóttir
50 ára
Bente Hansen
Danuta Miekiszewska
Elínborg Íris Samúelsdóttir
Gísli Valdimarsson
Guðbjörg Ása Gylfadóttir
Gunnar Þór Jóhannesson
Jun Zheng
Kolbrún Káradóttir
Kristján Þórisson
Kristrún Linda Björnsdóttir
Krzysztof Dzedzej
Ruth Guðmundsdóttir
Sigrún Hulda
Sæmundsdóttir
Sigurður Kristján
Salmannsson
Sigurjón Eðvarð Karlsson
Tomasz Kazimierz Drapala
Ægir Jóhannesson
40 ára
Hrafnhildur Stefánsdóttir
Joana de Castro Lobo
Vilhena
Jón Þröstur Jónsson
Linda Hrönn Guðnadóttir
Ólöf Elsa Björnsdóttir
Sonia Matilde Petros
Contreras
Thi Thu Huong Dang
30 ára
Angus Jon Rocca
Ingvar Gíslason
John Arnar Sveinbjörnsson
Jóhanna Hauksdóttir
Nathaniel Doyle Muncie
Sigrún Erla Karlsdóttir
Til hamingju með daginn
50 ára Sigurjón ólst upp
á Skagaströnd en býr á
Sauðárkróki. Hann er
húsasmíðameistari hjá
Trésmiðjunni Borg.
Maki: Steinunn Svava
Fjólmundsdóttir, f. 1971,
sjúkraliði á HSN.
Börn: Arnar Freyr, f. 1992,
og Kristófer Dagur, f.
2000.
Foreldrar: Karl Lúðvíks-
son, f. 1951, og Anna Bára
Sigurjónsdóttir, f. 1948.
Þau eru bús. í Varmahlíð.
Sigurjón Eðvarð
Karlsson
30 ára Sigrún býr í Kópa-
vogi, er fædd þar og upp-
alin. Hún er listamaður og
myndskreytir barnabæk-
ur og er einnig stuðnings-
fulltrúi í grunnskólum.
Maki: Tyggvi Níelsson, f.
1983, kerfisfræðingur hjá
Tern Systems.
Foreldrar: Karl Jónsson,
f. 1948, rútubílstjóri og fv.
sérkennslukennari og
Katrín Valgerður Karls-
dóttir, f. 1961, keramik-
listamaður og leikskólak.
Sigrún Erla
Karlsdóttir
40 ára Joana er frá
Lissabon í Portúgal en
fluttist til Íslands árið
2007 og býr í Reykjavík.
Hún gekk í háskóla í
Lissabon, en lauk ekki
námi. Hún vinnur sjálf-
stætt við heimaþjónustu.
Börn: Hartmann Rafael, f.
2011.
Foreldrar: Joaquim Vil-
hena, f. 1949, og Maria
Claudia de Castro Lobo, f.
1951. Þau eru búsett í
Lissabon.
Joana de Castro
Lobo Vilhena
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
CANGURO
LEÐUR VETRARSKÓR
12.995
ST. 36-46