Morgunblaðið - 23.11.2017, Side 15

Morgunblaðið - 23.11.2017, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2017 Isavia boðar til morgunfundar þann 28. nóvember næstkomandi á Hilton Nordica kl. 8.30. Á fundinum verður kynnt farþegaspá Keflavíkurflug- vallar fyrir árið 2018, rætt um mikilvægi flugtenginga fyrir þjóðina auk þess sem sérstök kynning verður á viðskiptahraðlinum Startup Tourism. Boðið verður upp á kaffi og létta morgunhressingu. Dagskrá: — Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia, setur fundinn F A R Þ E G A S PÁ 2 0 1 8 — Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar HVER ER ÁVINNINGURINN AF TENGIFARÞEGUM? — Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi hjá Aton STARTUP TOURISM VIÐSKIPTAHRAÐALLINN — Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans Fyrirspurnir úr sal SKRÁNING Á FUNDINN FER FRAM Á : ISAVIA . IS/MORGUNFUNDUR HILTON NORDICA 28. NÓVEMBER KL . 8 .30 TÆ K I FÆ R I N L I G G J A Í F L U G T E N G I N GUM FA R Þ EG A S PÁ 20 1 8 Varðmenn Víkurgarðs, sem svo kalla sig, fá að kynna sjónarmið sín um varðveislu Víkurkirkjugarðs hins forna í miðbæ Reykjavíkur á fundi borgarráðs fyrir hádegi í dag. Hópurinn hélt fjölsóttan fund í Neskirkju í fyrrakvöld þar sem samþykkt var að mótmæla megin- atriðum í umsögn og afgreiðslu Umhverfis- og skipulagsráðs 8. nóvember sl. um framkvæmdir á Landssímareitnum. Búist er við því að á borgarráðsfundinum verði ákveðið að heimila byggingu stór- hýsis, 160 herbergja hótels, á svæði þar sem kirkjugarðurinn var. Málið þarf síðan að fá endanlega af- greiðslu á fundi borgarstjórnar. Aðeins sjálfstæðismenn og fram- sóknarmenn hafa lýst andstöðu við framkvæmdir í þeim hluta kirkju- garðsins þar sem bílastæði Lands- símans var um langt árabil. Forystu fyrir Varðmönnum Vík- urgarðs hafa þeir séra Þórir Steph- ensen, Friðrik Ólafsson og Helgi Þorláksson. Öllum borgarfulltrúum var boðið til fundarins í Neskirkju, en aðeins fjórir mættu, borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins. gudmundur@mbl.is Víkurgarð- ur ræddur í borgarráði  Varðmönnum Víkurgarðs boðið Morgunblaðið/Hanna Víkurgarður Framkvæmdir við hót- elbyggingu gætu hafist von bráðar. Ný áfengisverslun verður opnuð í Garðabæ í dag, fimmtudag, klukk- an 11. Hin nýja verslun verður til húsa í Kauptúni, í verslunarrými sem er á milli Bónuss og Costco. Garðbæingar hafa beðið eftir vín- búð í tæp sjö ár. ÁTVR rak áður vínbúð á Garða- torgi í Garðabæ en henni var lokað frá og með 1. janúar 2011. Ákvörð- unin var tekin í ljósi þess að leigu- samningur um húsnæðið var að renna út, en vínbúðin í Garðabæ hafði verið á þessum stað frá því í maí 2001. ÁTVR gaf þá skýringu á sínum tíma að staðsetning og stærð húsnæðisins á Garðatorgi hefði hentað illa fyrir verslun af þessu tagi og misserin á undan hefðu margar verslanir flust af svæðinu. Þá sagði ÁTVR að sala í Vínbúð- inni í Garðabæ hefði dregist hægt og rólega aftur úr almennri þróun sölu, bæði á landsvísu og á höfuð- borgarsvæðinu Vínbúð ÁTVR í Grafarvogi var lokað í ársbyrjun 2009 en hún opn- uð aftur í lok nóvember 2015. Graf- arvogsbúar þurftu því að bíða lengi eftir nýrri vínbúð. Í Vínbúðinni Kauptúni er upp- röðun með nokkuð óhefðbundnu sniði. Í stað þess að raða eftir lönd- um verður léttvíni raðað eftir bragðeiginleikum sem gerir við- skiptavinum auðvelt að finna rétta vínið. Þannig er víninu skipað í flokka eftir bragði og sætleika og með hverjum flokki eru lýsandi matartákn sem gefa til kynna með hvaða mat vínið hentar, segir í frétt á heimasíðu ÁTVR. sisi@mbl.is Opna vínbúð eftir 7 ára hlé Ljósmynd/ÁTVR Garðabær Hin nýja verslun í Kauptúni verður opnuð í dag.  Ný vínbúð í Kauptúni  Verður á milli Bónuss og Costco Sú vitneskja að húsnæði Háaleitis- skóla við Álftamýri sé að mörgu leyti ekki boðlegt skólahúsnæði hefur legið fyrir í mörg ár, segir Gróa Jónsdóttir, formaður Foreldrafélags Háaleitisskóla. Reykjavíkurborg skoðar nú hvort nauðsynlegt sé að fara í rýmingaraðgerðir vegna ástands byggingarinnar. Gróa segir foreldra hafa heyrt af fyrirhuguðum framkvæmdum í fréttum. Stjórn- endur skólans hafi nú bent borginni á stöðu mála í einhvern tíma en talað fyrir daufum eyrum. Hún segir mál- ið ekki hafa verið tekið upp hjá for- eldrafélaginu að svo stöddu enda hafi þau aðeins heyrt af því um morguninn. Í tilkynningu frá skól- anum segir að fundað verði með þeim sem stjórni verkinu á föstudag. Foreldrar heyrðu af mál- inu í fréttum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.