Morgunblaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2018
Að miðla, kenna og segja frá er áhugavert. Ég hef flutt
fyrirlestra um til dæmis mínimal-
isma, fjármálalæsi, foreldra-
hlutverkið og stefnumót-
unarvinnu, tala þar skýrt og
forðast glærusýningar. Þannig
næst athygli hlustenda.
Þórdís V. Þórhallsdóttir, verk-
efnalóðs hjá Landsvirkjun.
DRAUMASTARFIÐ
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar í
Síðumúla 32, Reykjavík. Ekki yngri en 30 ára.
Vinnutími frá 10-18 alla virka daga.
Áhugasamir sendi á ellert@alnabaer.is
Alcoa hefur verið leiðandi í áliðnaði frá því að fyrirtækið var stofnað árið 1888 og álver Fjarðaáls við
Reyðarfjörð er meðal þeirra fullkomnustu í heiminum. Öryggi er í fyrirrúmi og mikið er lagt upp úr góðum
aðbúnaði starfsmanna, öflugu félagsstarfi og stuðningi við samfélagið.
Spennandi sumarstörf
hjá traustu fyrirtæki
Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum
20. febrúar. Áhugasamir eru hvattir til að sækja
um sem fyrst. Umsóknir eru trúnaðarmál og er
þeim öllum svarað.
Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í álverinu við Reyðarfjörð.
Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum í kerskála, skautsmiðju og steypu-
skála Fjarðaáls. Sumarstarfsmenn þurfa að geta unnið samfellt í að minnsta kosti tvo og hálfan
mánuð. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.
Almennar hæfniskröfur
Sterk öryggisvitund og árvekni.
Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni.
Heiðarleiki og stundvísi.
Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í hóp.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin. Frekari upplýsingar veitir
Valgerður Vilhelmsdóttir, valgerdur.vilhelmsdottir@alcoa.com eða í síma 470 7700.
Skriflegum umsóknum skal skilað á www.alcoa.is.
•
•
•
•
Kjötsmiðjan ehf
óskar eftir að ráða öflugan starfskraft í
framleiðsludeild fyrirtækisins.
Vinnutími er frá kl 07:00 - 15:15 virka daga.
Umsóknir skal senda á netfangið
birgir@kjotsmidjan.is eða hafa samband í síma
557-8814 á skrifstofutíma.
ATVINNA