Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 1
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 ÍÞRÓTTIR Körfubolti Benedikt Guðmundsson fjallar um undanúrslitin í bikarkeppni kvenna í körfubolta sem fara fram í kvöld. Skallagrímur og Keflavík vinna ef allt fer eftir bókinni. Njarðvík og Snæfell hafa unnið óvænta sigra í keppninni 4 Íþróttir mbl.is Morgunblaðið/Golli Varnarpar? Arnar Freyr Arnarsson og Ýmir Örn Gíslason eiga stuttan feril í landsliðinu en gætu látið til sín taka í miðri vörn þess um langt árabil. verkefni sem létta á starfsliðinu í kringum liðið. „Já já, ég sé um boltana, sé til þess að harpixið sé til staðar og fótbolti sé á svæðinu ef nota á hann í upphitun. Þetta má ekki klikka. Hefðin gengur út á leikjafjölda en ekki aldurinn en ég er hvort sem er bæði yngstur og með fæsta leiki þannig að ég tek þetta á mig,“ sagði Ýmir léttur. Gæti leikið í miðri vörninni Ýmir fékk að spreyta sig töluvert í miðri vörninni gegn Þýskalandi á dögunum og hann segist tilbúinn í slaginn þegar kallið kemur. „Ég ætla að nýta hverja einustu mínútu sem í boði verður. Vonandi fæ ég að spila sem mest og get von- andi gert sem mest fyrir liðið. EM leggst því bara vel í mig. Split er frá- bær vettvangur fyrir riðilinn. Við sem lið gætum verið komnir lengra á þessum tímapunkti en staðan er í lagi. Við höfum ennþá tíma til að slípa okkur saman og vonandi geng- ur það vel upp,“ sagði Ýmir Örn Gíslason sem lék stórt hlutverk með Val á síðustu leiktíð þegar liðið vann tvöfalt og komst í undanúrslit í Evr- ópukeppni. Nýliði nýtir mínúturnar  Ýmir Örn Gíslason afslappaður á leið á fyrsta stórmótið sitt  Innir af hendi nýliðaverkefni sem langar hefðir eru fyrir í íslenska landsliðshópnum Í SPLIT Kristján Jónsson kris@mbl.is Valsarinn efnilegi, Ýmir Örn Gísla- son, er mættur til Split í Króatíu til að taka þátt í sínu fyrsta stórmóti með A-landsliðinu í handbolta. Ýmir hefur verið í stóru hlutverk í yngri landsliðunum og var til að mynda í 18 ára landsliðinu sem vann til brons- verðlauna á HM í Rússlandi sumarið 2015. Ekki er langt síðan Ýmir fékk tækifæri í landsliðinu en Geir Sveins- son hefur greinilega trú á honum og valdi Ými í lokahópinn, en hann er sérlegur lunkinn varnarmaður miðað við aldur. Ýmir var brattur en merkilega af- slappaður þegar Morgunblaðið ræddi stuttlega við hann í gær. „Mér hefur gengið mjög vel að aðlagast landsliðshópnum. Mjög vel hefur verið tekið á móti manni. Ég bjóst við einhverju góðu gríni gagnvart nýliðanum en ekkert slíkt er í gangi. Hér eru allir jafnir og ekkert flókn- ara en það,“ sagði Ýmir en hefðir skipa ríkan sess í A-landsliðum Ís- lands og ein er sú að nýliðar fái ýmis Íslands- og bik- armeistarar Keflavíkur í körfubolta kvenna hafa orð- ið fyrir öðru áfalli á skömm- um tíma. Lands- liðskonan Emelía Ósk Gunnars- dóttir sleit kross- band í hné í síð- asta mánuði og í sigrinum á Snæfelli á laugardaginn meiddist Þóranna Kika Hodge-Carr einnig alvarlega í hné. Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, sagði við Morgunblaðið í gær ekki orðið ljóst hve alvarleg meiðsli Þórönnu væru. Í „besta falli“ væri hún með rifinn liðþófa en yrði þá frá keppni í meira en mán- uð, en ekki er hægt að útiloka krossbandsslit. Þóranna fylgist því með bikarslagnum við Snæfell í Laugardalshöllinni í dag sem áhorfandi. sindris@mbl.is Þóranna lengi frá keppni Þóranna Kika Hodge-Carr Í SPLIT Kristján Jónsson kris@mbl.is Karlalandsliðið í handknattleik skilaði sér á keppnisstað í Split um þrjúleytið í gær. Flaug liðið frá Frankfurt eftir að hafa dvalið í Þýska- landi undanfarna daga við æfingar og keppni. Framkvæmdastjórinn, Róbert Geir Gíslason, stóð þó í ströngu á flugvellinum í Frankfurt. Starfsmenn flugfélagsins signdu sig og fóru með Maríubænirnar þegar þeir áttuðu sig á far- angrinum sem fylgir A-landsliði í handbolta. Væntanlega hefur Róbert útskýrt fyrir þeim að í aðdraganda stórmóts eigi öll dýrin í skóginum að vera vinir. Í það minnsta komst landsliðið á leiðarenda og farangurinn einnig. Viðmótið sem mætti landsliðsmönnunum var öllu alúðlegra á flugvellinum í Split heldur en í Frankfurt. Gestgjafarnir tóku á móti okkar mönnum með borgarstjórann í broddi fylk- ingar. Landsliðsþjálfarinn, Geir Sveinsson, er fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík og hefur því væntanlega ekki verið í vandræðum með að ræða borgarmál við borgarstjórann í Split. Landsliðsmennirnir voru leystir út með gjöfum og stilltu sér upp í myndatöku án þess þó að at- höfnin tæki óþarflega langan tíma. Króatískir fjölmiðlamenn eru vel að sér í handboltafræðunum og svifu á landsliðsþjálf- arann um leið og hann skilaði sér í gegn á flug- vellinum. Geir tók heimamönnum vel og veitti þeim viðtal á ensku en meðfylgjandi mynd var tekin við það tilefni. Landsliðið æfði í gærkvöldi og hafa landsliðs- mennirnir því væntanlega náð úr sér flugþreyt- unni. Mun liðið að líkindum æfa einu sinni í dag en á morgun er fyrsti leikurinn á EM á dagskrá gegn Svíum. Aron Pálmarsson gat beitt sér á æfingu í Þýskalandi á þriðjudagskvöldið. Í gær voru bæði Geir og sjúkraþjálfarinn, Elís Þór Rafnsson, bjartsýnir á að meiðslin væru minni- háttar þegar Morgunblaðið spjallaði við þá. Hafi Aron komist vel frá æfingunni í gærkvöldi þá verður hann væntanlega leikfær gegn Sví- um. Alúðlegar móttökur í Split  Borgarstjórinn tók á móti landsliðshópnum Morgunblaðið/Kris Split Geir Sveinsson veitir króatískum fjölmiðlum viðtal á flugvellinum í Split. Martin Atkinson dómari nýtti sér það að geta látið skoða umdeilanleg atvik á myndbandi þegar Chelsea og Arsenal gerðu markalaust jafn- tefli í fyrri leik sínum í undan- úrslitum enska deildabikarsins í knattspyrnu í gær. Atkinson skoð- aði þó ekki nein atvik sjálfur, eins og hann hafði rétt á, heldur kallaði eftir staðfestingu myndbandsdóm- ara á því að mat hans hefði verið rétt, til að mynda í tveimur atvikum þar sem sumir vildu sjá dæmda vítaspyrnu. Arsenal kallaði eftir vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Chelsea undir lok leiksins, en í bæði skiptin reyndist rétt ákvörðun hjá Atkinson að dæma ekkert. „Mér fannst þetta taka of langan tíma,“ sagði Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, um það þegar Atkinson velti fyrir sér seinna „vítaspyrnu“-atvikinu. Þetta var aðeins annar leikurinn í enskum fótbolta þar sem myndbands- dómgæsla er leyfð, en sá fyrsti var bikarleikur Brighton og Crystal Palace á mánudag. Chelsea og Ars- enal mætast aftur 24. janúar. Myndböndin breyttu engu hjá Atkinson AFP Jafnt Alexis Sánchez og Andreas Christensen í baráttunni í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.