Morgunblaðið - 11.01.2018, Side 2
Í HÖLLINNI
Kristófer Kristjánsson
sport@mbl.is
KR mun leika til úrslita í bikarkeppni
karla í körfuknattleik, Malt-bikarnum,
í 21. skipti og fjórða árið í röð á laug-
ardaginn kemur eftir 90:71-sigur á
Breiðabliki í undanúrslitunum í Laug-
ardalshöllinni í gær. KR-ingar geta
þar unnið bikarinn í þriðja sinn í röð,
en það hefur ekki gerst síðan 1990 er
Njarðvíkingar unnu hann í fjórða sinn í
röð.
Blikar, sem leika í næstefstu deild,
voru að spila aðeins sinn annan undan-
úrslitaleik í sögunni og þann fyrsta í
Laugardalshöllinni. Þrátt fyrir hetju-
lega baráttu hafði ungt og efnilegt lið
Kópavogsbúa einfaldlega ekki nóg
gegn stjörnum prýddu liði Íslands- og
bikarmeistara KR en leikurinn var þó
nokkuð óvænt jafn allt fram í fjórða
leikhluta.
Blikar eru í mikilli baráttu um að
komast upp í deild þeirra bestu og er
þeirra besti maður hinn bandaríski Je-
remy Smith sem skorar að jafnaði 30
stig í leikjum liðsins í 1. deildinni.
Hann sýndi í gær að hann getur líka
spilað gegn þeim bestu en hann skor-
aði 29 stig gegn KR og var lang-
stigahæstur í sínu liði. Vandamál Blika
var þó hræðileg skotnýting. Þeir Árni
Elmar Hrafnsson og Ragnar Jósef
Ragnarsson eru tvær öflugar þriggja
stiga skyttur en í gær brást þeim boga-
listin, Árni hitti aðeins úr tveimur og
Ragnar engu en liðið gerði alls þrjár
þriggja stiga körfur úr 25 tilraunum.
Þrátt fyrir þá tölfræði tókst Blikum að
gefa KR-ingum hörkuleik. Hinn ungi
Snorri Vignisson var frábær í vörninni,
átti 15 fráköst og gaf ekkert eftir í bar-
áttu sinni við stóru mennina í KR.
KR fór aldrei í efsta gír
Þó að stigamunurinn á liðunum hafi
ekki verið afgerandi fyrr en í fjórða
leikhluta virtust KR-ingar alltaf vera í
nokkuð þægilegri stöðu. Blikarnir
stríddu þeim á köflum en meistararnir
fóru sennilega aldrei í efsta gír og
nýttu breidd liðsins vel. Margir leik-
menn skiluðu stigum, Kristófer Acox,
Jón Arnór Stefánsson, Sigurður Á.
Þorvaldsson og Orri Hilmarsson
spiluðu allir vel á meðan Pavel Ermol-
inskij var frekur í vörninni að vanda.
Svona leikir reynast oft sýnd veiði en
ekki gefin fyrir stærra liðið enda getur
allt gerst í bikarnum og viðurkenndi
Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR,
að erfitt væri að spila svona leiki.
„Það er allt önnur orka í svona leikj-
um og auðvitað hugsar maður til þess
að ef við lendum í einhverju rugli þá
getur þetta orðið spennandi. Reynslan
gerir okkur þó kleift að vera rólegir í
svona stöðum en það getur alltaf
brugðið til beggja vona í bikar-
leikjum,“ sagði hann við Morgunblaðið
eftir leik.
KR eygir þriðja í röð
Morgunblaðið/Hari
Áfram gakk Jón Arnór Stefánsson sækir gegn Árna Elmari Hrafnssyni í undanúrslitaleik KR og Breiðabliks í gær þar sem Jón og félagar höfðu betur.
Íslands- og bikarmeistarar KR leika til bikarúrslita fjórða árið í röð og í 21. skipti
Breiðablik úr næstefstu deild veitti meisturunum þó mjög harða keppni
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018
Ísland og Indónesía mætast í fyrsta
skipti á knattspyrnuvellinum í dag
þegar þjóðirnar eigast við í vináttu-
landsleik í borginni Yogyakarta. Við-
ureignin hefst klukkan 11.30 að ís-
lenskum tíma sem er 18.30 að staðar-
tíma í fjórða fjölmennasta ríki heims.
Engir af fastamönnum Íslands eru
með en reyndustu menn liðsins eru
Ólafur Ingi Skúlason, Arnór Smára-
son og Arnór Ingvi Traustason og þá
eru sex nýliðar í hópnum sem gætu
fengið sitt fyrsta tækifæri með A-landsliðinu í dag. Það
eru Andri Rúnar Bjarnason, Hilmar Árni Halldórsson,
Mikael Anderson, Samúel Kári Friðjónsson, Felix Örn
Friðriksson og Anton Ari Einarsson.
Indónesar tefla fram tveimur mismunandi liðum í
leikjunum tveimur. Þeirra landslið sem var valið af
spænska landsliðsþjálfaranum Luis Milla, fyrrverandi
leikmanni Real Madrid og Barcelona, mætir Íslandi í
seinni leiknum á sunnudag. Liðið sem mætir Íslandi í
dag var hinsvegar valið af knattspyrnuáhugamönnum í
netkosningu og í því eru nokkrir reyndir leikmenn sem
hafa spilað með landsliðinu á undanförnum árum. Í lið-
in vantar þó leikmenn frá Bali United sem hafnaði í
öðru sæti indónesísku deildarinnar 2017 og er að fara í
forkeppni Meistaradeildar Asíu. Níu leikmenn Bali
United léku með landsliðinu á síðasta ári.
Indónesar voru í banni hjá FIFA
Indónesar eru í 162. sæti á heimslista FIFA en besta
staða þeirra þar var 87. sæti árin 2001 og 1998. Versta
staðan var aftur á móti 179. sætið árið 2015. Ef horft er
til Asíu eru þeir í 31. sæti af þeim 46 FIFA-þjóðum sem
eru í álfunni.
Þeir hafa ekki leikið mótsleiki um skeið. FIFA setti
Indónesíu í bann árið 2015 vegna afskipta stjórnvalda í
landinu af deildakeppninni. Fyrir vikið fengu Indónes-
ar ekki að taka þátt í undankeppni HM 2018 og heldur
ekki í Asíubikarnum 2019 en undankeppni þess mót
stendur nú yfir. Banninu hefur hinsvegar verið aflétt.
Ísland er fyrsta Evrópuþjóðin sem Indónesar mæta
í fjögur ár en þeir sigruðu Andorra, 1:0, í vináttulands-
leik á Spáni árið 2014. Sex ár er síðan evrópskt landslið
sótti landið heim. Hollendingar, fyrrverandi herraþjóð
Indónesa, unnu þá 3:0 í vináttuleik í Jakarta árið 2013
þar sem Siem de Jong skoraði tvö mörk og Arjen Rob-
ben eitt. vs@mbl.is
Ísland mætir tveimur liðum Indónesa
Ólafur Ingi
Skúlason
England
Deildabikar, undanúrslit, fyrri leikur:
Chelsea – Arsenal..................................... 0:0
Spánn
Bikarinn, 16-liða úrslit, seinni leikir:
Alavés – Formentera ............................... 2:0
Alavés áfram, 5:1 samanlagt.
Villarreal – Leganés................................. 2:1
Leganés áfram, 2:2 samanlagt.
Real Madrid – Numancia......................... 2:2
Real Madrid áfram, 5:2 samanlagt.
KNATTSPYRNA
Noregur
Tertnes – Byåsen................................. 20:21
Helena Rut Örvarsdóttir skoraði 1 mark
fyrir Byåsen sem er í 6. sæti af 12 liðum
með 12 stig eftir 11 umferðir.
Vináttulandsleikir karla
Katar – Óman ....................................... 38:18
Slóvenía – Serbía .................................. 33:25
Undankeppni HM karla
5. riðill:
Belgía – Tyrkland................................. 27:21
Belgía 7 stig, Holland 6, Tyrkland 5,
Grikkland 0. Holland mætir Grikklandi í
fimmtu umferð af sex í dag.
6. riðill:
Sviss – Bosnía ....................................... 21:24
Sviss 4 stig, Bosnía 4, Eistland 2. Einum
leik er ólokið, Bosnía – Sviss.
HANDBOLTI
Maltbikar karla
Undanúrslit í Laugardalshöll:
KR – Breiðablik.................................... 90:71
Haukar – Tindastóll ............................. 75:85
KR og Tindastóll mætast í úrslitaleik í
Laugardalshöll á laugardaginn klukkan
13.30.
NBA-deildin
Toronto – Miami ................................... 89:90
Oklahoma City – Portland............... 106:117
Dallas – Orlando ................................. 114:99
LA Lakers – Sacramento .................... 99:86
Staðan í Austurdeild:
Boston 33/10, Toronto 28/11, Cleveland 26/
14, Miami 23/17, Washington 23/17, Mil-
waukee 21/18, Detroit 21/18, Indiana 20/19,
Philadelphia 19/19, New York 19/21, Char-
lotte 15/23, Brooklyn 15/25, Chicago 14/27,
Orlando 12/29, Atlanta 10/30.
Staðan í Vesturdeild:
Golden State 33/8, Houston 28/11, San Ant-
onio 28/14, Minnesota 26/16, Portland 22/
18, Oklahoma 22/19, Denver 21/19, New Or-
leans 20/19, LA Clippers 18/21, Utah 16/24,
Phoenix 16/26, Dallas 14/28, Sacramento
13/27, LA Lakers 13/27, Memphis 12/27.
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Maltbikar kvenna, undanúrslit:
Laugardalshöll: Skallagr. – Njarðvík...... 17
Laugardalshöll: Keflavík – Snæfell ......... 20
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66 deildin:
Austurberg: ÍR – Afturelding ............. 19.30
Víkin: Víkingur – Fram U.................... 19.45
KNATTSPYRNA
Faxaflóamót kvenna:
Fífan: Breiðablik – Stjarnan .................... 20
Í KVÖLD!
Laugardalshöll, Maltbikar karla, und-
anúrslit, miðvikudag 10. janúar 2018.
Gangur leiksins: 6:1, 9:5, 18:7,
22:12, 34:16, 36:26, 44:34, 47:39,
49:41, 54:45, 57:50, 65:54, 70:61,
77:64, 86:66, 90:71.
KR: Kristófer Acox 18/11 fráköst, Jón
Arnór Stefánsson 16/5 stoðsend-
ingar, Sigurður Á. Þorvaldsson 13/6
fráköst, Darri Hilmarsson 12, Jalen
Jenkins 9/9 fráköst, Brynjar Þór
Björnsson 7, Björn Kristjánsson 5,
Pavel Ermolinskij 5/12 fráköst/13
stoðsendingar, Zaccery Alen Carter
3, Andrés Ísak Hlynsson 2.
Fráköst: 30 í vörn, 12 í sókn.
Breiðablik: Jeremy Herbert Smith
29/4 fráköst, Snorri Vignisson 14/15
fráköst, Árni Elmar Hrafnsson 14, Hall-
dór Halldórsson 4/7 fráköst, Svein-
björn Jóhannesson 3, Erlendur Ágúst
Stefánsson 3, Leifur Steinn Arnason 2,
Brynjar Karl Ævarsson 2.
Fráköst: 24 í vörn, 12 í sókn.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson,
Jón Guðmundsson, Gunnlaugur
Briem.
Áhorfendur: 1.100.
KR – Breiðablik 90:71
Danskir knattspyrnuáhugamenn
vörpuðu öndinni léttar í gær þegar
ljóst varð að besti leikmaður
danska landsliðsins, Christian Er-
iksen, gæti að öllum líkindum tekið
fullan þátt á HM í Rússlandi þrátt
fyrir að verða pabbi næsta sumar.
Eriksen greindi frá því í desem-
ber að þau Sabrina Kvist Jensen
ættu von á sínu fyrsta barni en í við-
tali við leikmannasamtök Dan-
merkur í gær sagði hann það ekki
koma til með að trufla HM í júní:
„Ég fer með á HM, svo lengi sem
ég verð valinn. Sabrina er sett í lok
maí, svo það ætti að vera tími til
þess,“ sagði Eriksen, sem var í al-
gjöru lykilhlutverki og skoraði 11
mörk í 12 leikjum fyrir Dani í und-
ankeppni HM.
Von á barninu
í tæka tíð
fyrir HM