Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
David James, nýráðinn þjálfari ind-
verska knattspyrnuliðsins Kerala
Blasters, hefur staðfest að hann sé
að fá Hermann Hreiðarsson í þjálf-
arateymi sitt en mbl.is greindi frá
því á dögunum að Hermann væri á
leið til Indlands og yrði líklega að-
stoðarmaður fyrrverandi liðsfélags
síns hjá Portsmouth og ÍBV.
„Hermann er góður vinur minn og
ég mun fá hann í lið mitt á næstu
dögum. Áður en ég kom hættu tveir
aðstoðarþjálfarar svo aðeins ég og
Thangboi Singto erum til staðar.
Svo ég mun fá hann fljótlega,“ segir
James við The News í Portsmouth.
Hermann og James léku saman í
þrjú tímabil með Portsmouth og
urðu bikarmeistarar árið 2008 og
leiðir þeirra lágu svo aftur saman ár-
ið 2013 þegar James léki í marki
ÍBV undir stjórn Hermanns og var
einnig í þjálfarateymi liðsins.
Hermann stýrði síðast kvennaliði
Fylkis, en liðið féll úr Pepsi-deild
kvenna síðasta haust og í kjölfarið
hætti hann þjálfun liðsins. Þar áður
stýrði Hermann karlaliði IBV árið
2013 og síðan karlaliði Fylkis frá
2015 til 2016. gummih@mbl.is
James staðfestir
ráðningu Hermanns
Engar bækur í bikarnum
Skallagrímur og Keflavík ættu að vinna undanúrslitaleiki bikarsins í
Laugardalshöll Njarðvík og Snæfell hafa unnið óvænta sigra í keppninni
Það eru konurnar sem sjá um
hátíðahöldin í Höllinni í dag og má
reikna með mikilli veislu sem eng-
inn ætti að láta framhjá sér fara. Í
fyrri leiknum eigast við Skallagrím-
ur og Njarðvík klukkan 17 og síðan
taka Keflavík og Snæfell við klukk-
an 20.
Njarðvík hefur tapað öllum 15
leikjum sínum í deildinni í vetur og
mörgum þeirra stórt. Liðið er í
langneðsta sæti og ekkert annað en
fall blasir við því í vor. Hins vegar
hefur liðið unnið tvo fantasigra í
bikarnum gegn Stjörnunni og
Breiðabliki sem kemur þeim óvænt
í Höllina í dag. Einhvern veginn
nær Njarðvíkurliðið að gíra sig
svona vel upp fyrir bikarleiki, því
að bæði Stjarnan og Blikar eru
hörkulið sem eru í bullandi baráttu
um sæti í úrslitakeppni.
Það er ljóst að Njarðvík þarf að
halda áfram að spila sinn besta
bolta í bikarleiknum í dag, eins og í
hinum tveimur, ef liðið ætlar að
eiga möguleika gegn sterku liði
Skallagríms. Þetta virðist snúast
um eitthvert hugarástand sem leik-
mennirnir ná að koma sér í, í bikar
en ekki í deildinni. Ef það tekst þá
á Njarðvík möguleika í leiknum í
dag. Ef ekki, þá gæti farið illa.
Þessi sömu lið mættust síðustu
helgi þar sem Skallagrímur vann 15
stiga sigur og það er klárt mál að
öllu eðlilegu á Skallagrímur að
vinna í dag.
Enginn smá liðstyrkur
hjá Skallagrími
Borgnesingar hafa ekki verið
neitt sérstaklega sannfærandi í vet-
ur. Liðið er í 6. sæti í átta liða deild
en á ennþá möguleika á sæti í
úrslitakeppninni. Sigrún Ámunda-
dóttir hefur átt við meiðsli að stríða
og munar um minna, en Skallar
hafa sótt liðstyrk til útlanda og það
engan smá liðstyrk. Sú heitir Ziom-
ara Morrison og er 194 cm á hæð.
Hún er ekki bara há heldur mjög,
mjög góð. Síðasta vetur var hún
með 12,3 stig og 6,4 fráköst í
Meistaradeild Evrópu! Hún hefur
leikið í sumum af bestu deildum
Evrópu ásamt því að spila í
WNBA-deildinni. Mér er sagt að
hún spili bara með Sköllum í jan-
úar og haldi síðan til stærri verk-
efna. Hún mun án efa hjálpa liðinu
í bikarnum en fyrir er Carmen
Tyson-Thomas sem getur unnið
leiki upp á sitt eindæmi ef því er að
skipta. Ég held líka að hún sé sér-
staklega einbeitt þegar hún mætir
Njarðvík, sem rak hana í fyrra fyr-
ir að vera ekki nógu góður liðs-
maður. Þær mega samt ekki vera
saman inná vellinum og þurfa því
að skipta með sér 40 mínútum.
Furðuleikur Snæfells og
Keflavíkur
Það er alltaf þannig að þegar
dregið er í bikarnum á dragast
saman liðin sem eiga að spila í um-
ferðinni á undan bikarleiknum eða
liðin sem eiga næsta leik á eftir. Al-
veg eins og Skallagrímur og Njarð-
vík mættust síðustu helgi þá mætt-
ust líka Snæfell og Keflavík í
Hólminum, í stórfurðulegum leik
þar sem Snæfell var betra liðið í
fyrri hálfleik en Keflavík pakkaði
síðan heimastúlkum saman í þeim
seinni. Sá fáheyrði atburður gerðist
í 4. leikhluta að Snæfell náði ekki
að skora stig allan fjórðunginn.
Snæfell er ekki sama öfluga liðið og
undanfarin ár. Liðið virðist vera
búið að stimpla sig út úr baráttunni
um sæti í úrslitakeppninni á meðan
Keflavík er á góðu skriði eftir ró-
lega byrjun í haust. Þessi lið mætt-
ust í lokaúrslitum á síðasta tímabili
þar sem Keflavík hafði betur svo
eftirminnilega. Á meðan Keflavík
hélt nánast sama liði hefur Snæfell
veikst töluvert. Það má þó ekki af-
skrifa Snæfell í þessum leik því allt
getur gerst í bikar. Snæfell gerði
sér t.d. lítið fyrir og sló út topplið
Vals mjög óvænt á leið sinni í Höll-
ina ef það er hægt að tala um að
eitthvað sé óvænt í bikarkeppni.
McCarthy og Dinkins frábærar
Bæði lið eru með frábæra er-
lenda leikmenn sem geta tekið leiki
yfir. Kristen McCarthy er geggj-
aður leikmaður og karakter sem
allir Hólmarar elska. Ég er líka of-
boðslega hrifinn af Brittany Dink-
ins í liði Keflavíkur, sem er minn
uppáhaldsleikmaður í deildinni.
Keflavík missti á dögunum Emelíu
Ósk Gunnarsdóttur í meiðsli en
Emelía er einn besti leikmaður liðs-
ins. Keflavík mun sérstaklega
sakna hennar varnarlega. Í staðinn
hefur Sverrir Þór Sverrisson (ekki
Sveppi) náð í Emblu Krist-
ínardóttur til að fylla hennar skarð.
Þá hefur Birna Valgerður Benón-
ýsdóttir einhverra hluta vegna ekki
náð sér jafn vel á strik í vetur og
síðasta vetur. Hún var mögnuð í
fyrra og ég var að vona að þessi
unga og hæfileikaríka stelpa myndi
bæta við sig snúningi í vetur.
Stjörnuleikur úr óvæntri átt?
Snæfell hefur endurheimt Gunn-
hildi Gunnarsdóttur úr barneign-
arleyfi en það er ekki hægt að ætl-
ast til að hún taki bara upp þráðinn
og spili á sama styrk. Hún þarf
meiri tíma en mun eflaust hjálpa
liðinu eins og hægt er. Kristen og
Berglind Gunnarsdóttir þurfa að
draga vagninn og svo þarf Ingi Þór
Steinþórsson, þjálfari liðsins, að fá
stjörnuleik úr óvæntri átt. Svoleiðis
hefur nokkrum sinnum gerst í
Höllinni enda er sagt að stjörnur
fæðist á stóra sviðinu. Þessi körfu-
boltahátíð er svo sannarlega eitt af
stærri sviðunum í íslenskum körfu-
bolta.
Bókin segir manni að Skalla-
grímur og Keflavík mætist í úrslit-
um og ef maður flettir yfir á síð-
ustu blaðsíðu þá stendur þar að
Keflavík fari alla leið. En þetta er
bikar og í bikarkeppni er ekki að
marka neinar bækur og því er allt
upp í loft í kvöld.
Morgunblaðið/Eggert
Öflug Brittanny Dinkins hefur leikið mjög vel með Keflavík í vetur og liðið er
sigurstranglegri aðilinn í viðureigninni gegn Snæfelli í kvöld.
SÉRFRÆÐINGUR MORGUNBLAÐSINS
Benedikt Guðmundsson
benediktrunar@hotmail.com
Benedikt Guðmundsson er reyndur körfuboltaþjálfari og fyrrverandi íþrótta-
fréttamaður sem er sérfræðingur Morgunblaðsins í körfubolta í vetur. Í dag fer hann
yfir undanúrslitaleikina í Maltbikar kvenna sem fram fara í Laugardalshöll í kvöld.
Guðjón Valur Sigurðsson
varð á síðasta sunnudag marka-
hæsti landsliðsmaður hand-
knattleikssögunnar, eða eftir því
sem næst verður komist. Á
nærri 19 ára ferli með íslenska
landsliðinu hefur hann skorað
1.798 mörk í 343 leikjum, eða
5,24 mörk að jafnaði í hverjum
leik.
Auk þess bendir margt til
þess að Guðjón Valur sé þriðji
markahæsti leikmaður í sögu
heimsmeistaramóta, á eftir
Kyung-shin Yoon frá Suður-
Kóreu og Makedóníumanninum
Kiril Lazarov. Fyrrgreindur Yoon
er hugsanlega sá eini sem hefur
skorað fleiri mörk fyrir landslið
en Guðjón Valur. Upplýsingar um
hans feril með landsliði Suður-
Kóreu frá 1992 til 2012 eru á
reiki og ekki einu sinni hægt að
fullyrða hversu mörgum lands-
leikjum Yoon tók þátt í. Hvað þá
um fjölda markanna fyrir lands-
liðið.
Torsótt hefur reynst að
grafast fyrir um markahæstu
leikmenn lokakeppni Evr-
ópumóta vegna þess að marka-
skor allra leikja mótanna liggur
ekki fyrir á einu stað heldur á víð
of dreif.
Sömu sögu má reyndar segja
um markaskorara á heimsmeist-
aramótum og því er ekki með
vissu hægt að fullyrða að þeir
þrír sem að ofan er getið séu
þrír efstu þótt leiða megi að því
líkum.
Þannig er reyndar með töl-
fræði í kringum handboltann Al-
þjóða sérsambandið virðist lítið
leggja upp úr henni. Þar hefur
fjármunum og starfskröftum
verið eytt í annað. Sömu sögu er
að segja um Handknattleiks-
samband Evrópu eins og sést
best þegar flett er upp leik-
skýrslum frá lokakeppni EM frá
því fyrir fáeinum árum. Oft og
tíðum er gripið í tómt.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is