Morgunblaðið - 15.01.2018, Síða 1
Í SPLIT
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Ég er drullusvekktur yfir þessum
fyrstu tíu mínútum í síðari hálfleik.
Þar töpuðum við leiknum,“ sagði Ar-
on Pálmarsson í samtali við Morg-
unblaðið í Spaladium-höllinni í Split í
gærkvöldi eftir tap fyrir Króatíu
29:22. Að loknum fyrri hálfleik var
staðan 14:13 en snemma í síðari hálf-
leik skoruðu Króatar fimm mörk í
röð og lögðu grunninn að sigrinum
eins og Aron nefndi. „Við spiluðum
mjög vel en nýttum ekki þær opn-
anir sem við fengum. Það er svo
skrítið að þetta var vel spilað hjá
okkur í sókninni en tókst ekki að
ljúka þeim nógu vel. Í 90% tilfella
spiluðum við sóknirnar vel en klikk-
uðum á skotunum eða síðustu send-
ingunni sem er ekki nógu gott,“
sagði Aron ennfremur.
Króatar fengu gríðarlegan stuðn-
ing í troðfullri 12 þúsund manna
höllinni í Split en Aron er orðinn
ýmsu vanur með landsliðinu og fé-
lagsliðum. Hann kippti sér því ekki
of mikið upp við andrúmsloftið.
„Maður er orðinn svolítið vanur að-
stæðum sem þessum og maður reyn-
ir að útiloka þetta. En auðvitað er
þetta mikill meðbyr sem Króatar fá
og það sést glögglega. Við spiluðum
vel í fyrri hálfleik og héldum haus.
Mér fannst við vera einbeittir í því
sem við vildum gera í leiknum og
taktískt flottir,“ sagði Aron.
Margir hafa komið við sögu
Framundan er úrslitaleikur við
Serbíu um að komast áfram í milli-
riðil í Zagreb. Þjálfarinn Geir
Sveinsson hefur nú þegar spilað á
mörgum mönnum sem ætti að koma
sér vel þegar kemur að þriðja leik.
Margir leikmenn eru búnir að
stimpla sig inn í mótið og ná úr sér
hrollinum sem er væntanlega já-
kvætt. „Jú ég myndi telja það. Ég
hef alltaf sagt og segi aftur að þessir
sextán leikmenn eru hérna vegna
þess að ég treysti þeim fullkomlega.
Þeir hafa getuna til að vera hérna og
vita að þeir eru með hlutverk í lið-
inu,“ sagði Geir þegar Morgunblaðið
spurði hann út í þetta atriði.
Á mbl.is er einnig að finna við-
töl við Geir, Ágúst Elí Björgvinsson,
Janus Daða Smárason, Ómar Inga
Magnússon og Bjarka Má Elísson
frá því í gærkvöldi.
Ljósmynd/Uros Hocevar
„Þar töpuðum við leiknum“
Aron Pálmarsson „drullusvekktur“ yfir fyrstu tíu mínútunum í síðari hálfleik í
tapleiknum gegn Króatíu á EM Geir sýndi að hann treystir öllum í hópnum
Ósigur Arnar Freyr Arnarsson
býr sig undir að skjóta á markið
í tapleiknum gegn Króötum á
EM í gærkvöld.
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018
ÍÞRÓTTIR
Körfubolti Tindastóll vann sinn fyrsta stóra titil í körfuknattleik karla. Stólarnir tóku Íslandsmeistara
KR í bakaríið í úrslitaleik Maltbikarsins. Keflavík vann í kvennaflokki annað árið í röð 4-5
Íþróttir
mbl.is
Albert Guð-
mundsson varð í
gær tíundi leik-
maðurinn í sögu
íslenska karla-
landsliðsins í
knattspyrnu til að
skora þrjú mörk
eða fleiri í A-
landsleik þegar
Ísland vann 4:1-
sigur gegn
Indónesíu. Hann er jafnframt sá
fyrsti sem gerir það eftir að hafa
komið inná sem varamaður en Al-
bert kom inná eftir 25 mínútna leik,
jafnaði í 1:1 á lokasekúndum fyrri
hálfleiks og skoraði tvö eftir hlé. Áð-
ur hafa tveir skorað fjögur mörk í
landsleik, Ríkharður Jónsson og
Arnór Guðjohnsen, og nú hafa átta
til viðbótar skorað þrjú. Þá er þetta
fyrsta þrenna í landsleik Íslands síð-
an Jóhann Berg Guðmundsson gerði
þrennu gegn Sviss í 4:4-jafntefli í
undankeppni HM 2013. vs@mbl.is
Albert með
fyrstu þrennu
varamanns
Albert
Guðmundsson
Hvað fannst þeim um frammistöðu íslenska liðsins gegn Svíum á EM karla í handbolta í gærkvöld?
„Þetta voru tveir ólíkir hálfleikir. Íslenska
liðið var mjög gott í fyrri hálfleik og það
var augljóst að leikmenn voru vel und-
irbúnir fyrir þennan leik. Króatíska liðið er
hins vegar vant því að ná mjög góðum kafla
einhvers staðar í leikjum sínum og ganga
þannig frá andstæðingnum og þeir gerðu
það í upphafi seinni hálfleiks að þessu
sinni,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson,
þjálfari karlaliðs Akureyrar í handbolta, í
samtali við Morgunblaðið eftir tap Íslands
gegn Króatíu í gær.
„Það er hins vegar jákvætt að sjá að Geir [Sveinsson]
treystir mögum leikmönnum og ábyrgðin dreifist milli
margra. Ég held að við munum græða á því þegar við mætum
Serbum og ég er bjartsýnn fyrir þann leik,“ sagði Sverre um
framhaldið.
Förum brattir í leikinn við Serbana
Sverre
Jakobsson
„Þegar leikurinn er skoðaður í heild sinni þá
er frammistaðan góð. Leikskipulagið var gott
og við framkvæmdum okkar aðgerðir vel lung-
ann úr leiknum,“ sagði Einar Andri Einars-
son, þjálfari karlaliðs Aftureldingar í hand-
bolta, í samtali við Morgunblaðið eftir tapið
gegn Króatíu í kvöld.
„Það má ekki gleyma því að íslenska liðið
var að spila við gríðarlega sterkt lið sem gæti
hæglega farið alla leið í mótinu. Það voru
margir leikmenn að spila vel þrátt fyrir erfiðar
aðstæður í þessum leik,“ sagði Einar Andri
enn fremur. „Þetta var svolítið stöngin út að þessu sinni. Íslenska
liðið klikkaði í mörgum dauðafærum og það var eitt af því fáa sem
betur hefði mátt fara. Nú er bara leikur við Serba fram undan og
hagstæð úrslit þar, sem er góður möguleiki á, kæmu okkur áfram
í milliriðil,“ sagði Einar Andri um framhaldið.
Leikskipulagið gott og staðan enn góð
Einar Andri
Einarsson
„Það er skrýtið að segja það eftir sjö marka
tap, en mér fannst margt jákvætt í leik íslenska
liðsins í þessum leik,“ sagði Einar Jónsson,
þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í handbolta, í
samtali við Morgunblaðið eftir tapið gegn Kró-
atíu í gær.
„Íslenska liðið spilaði frábærlega í fyrri hálf-
leik og ef dómgæslan hefði ekki hallað jafn mik-
ið á okkur og hún gerði að mínu mati hefðum
við verið í betri stöðu í hálfleik,“ sagði Einar
ennfremur. „Það var stuttur slæmur kafli í
upphafi seinni hálfleiks sem varð okkur að falli.
Króatar breyttu yfir í 5+1-vörn og við réðum illa við hana. Íslenska
liðið hefði kannski átt að spila sjö á sex fyrr til að bregðast við því.
Geir [Sveinsson] hefur dreift álaginu vel og það ber að hrósa hon-
um fyrir það. Við mætum ferskir í leikinn við Serba, vinnum þar og
förum áfram í milliriðil,“ sagði Einar um brattur um framhaldið.
Margt jákvætt þrátt fyrir stórt tap
Einar
Jónsson
Steve Bruce,
knattspyrnu-
stjóri Aston
Villa, hrósaði
Birki Bjarnasyni
fyrir frammi-
stöðuna eftir 1:0-
útisigur liðsins
gegn Notting-
ham Forest í
ensku B-deild-
inni á laugar-
dagskvöldið. Birkir lék allan seinni
hálfleikinn á miðjunni og fékk góða
umsögn. „Ég var mjög ánægður
með hann. Ég vildi sjá hvort hann
gæti spilað í þessari stöðu og hann
gerði það vel. Ég var ánægður fyrir
hans hönd því hlutirnir hafa ekki
gengið eins vel hjá honum og við
vildum frá því hann kom,“ sagði
Bruce eftir leikinn. gummih@mbl.is
Stjórinn
hrósaði Birki
Birkir
Bjarnason