Morgunblaðið - 15.01.2018, Qupperneq 8
FÓTBOLTI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Það hefur lengi verið vitað að hinn
tvítugi Albert Guðmundsson er
einn efnilegasti knattspyrnumaður
Íslands, en hann sannaði það í gær
að hann er búinn að taka skrefið
fram á við. Albert skoraði þrennu í
4:1-sigri Íslands gegn Indónesíu í
Jakarta í öðrum vináttulandsleik
þjóðanna og sýndi það að hann er
framarlega á merinni í hópi þeirra
sem gera tilkall til að fara með á
HM í Rússlandi næsta sumar.
Albert byrjaði þó á bekknum í
gær en leysti Arnór Ingva Trausta-
son af hólmi eftir tæplega hálftíma
leik. Með innkomu Alberts einfald-
lega gjörbreyttist leikur Íslands.
Auk þrennunnar kom hann einnig
að fjórða markinu í gær og þá átti
hann einnig þátt í fjórum mörkum í
fyrri leiknum. Ekki slæmar heimt-
ur það. Kraftur hans og áræði
smita út frá sér og hann var ávallt
líklegur til þess að búa eitthvað til.
Sjálfstraustið er ekki síður mik-
ilvægur þáttur í hans leik, enda
hefðu sennilega ekki margir vippað
á vítapunktinum í sínum þriðja
landsleik. Þegar Albert geystist svo
frá miðju og fram til þess að full-
komna þrennuna sagði ánægjan í
andliti hans líka allt sem segja
þarf.
Leikurinn í gær var allt annar en
gegn úrvalsliði Indónesíu þar sem
Ísland vann 6:0 við skelfilegar að-
stæður á fimmtudag. Nú var um
mun sterkari andstæðing að ræða
og ætti landsliðsþjálfarinn Heimir
Hallgrímsson betur að geta metið
frammistöðu manna í þessum leik.
Klaufaleg mistök Rúnars Alex
Rúnarssonar í markinu voru svo að
segja það eina sem skyggði á
frammistöðu íslenska liðsins í leikn-
um, sem annars hafði tögl og
hagldir gegn þó sprækum Indónes-
um.
Allir eru á radarnum fyrir HM
Vináttulandsleikirnir sem Ísland
hefur spilað í janúar síðustu ár
hafa verið mikilvægir til þess að
leyfa þeim að spreyta sig sem ann-
ars hafa ekki tækifæri til þess. Jón
Daði Böðvarsson er einn þeirra
sem komu fram á sjónarsviðið á
þennan hátt og hefur síðan orðið
fastamaður í A-landsliðinu.
„Það er sérstaklega jákvætt fyrir
strákana að vita hvað við viljum,
hvernig þeir haga sér í leikjum og
slíkt sem var einna mikilvægast í
þessari ferð. Þeir vita nú líka hvað
við erum að horfa á og geta unnið
með það hjá sínum félagsliðum. Við
munum að sjálfsögðu fylgjast með
öllum fram á sumar. Það getur allt
gerst í fótboltanum,“ sagði Helgi
Kolviðsson aðstoðarlandsliðsþjálfari
meðal annars við mbl.is eftir leik
aðspurður hvort einhverjir hefðu
gert sterkara tilkall en áður til
þess að vera inni í myndinni fyrir
HM.
Albert ætti að vera kominn inn
fyrir landsliðsdyrnar eftir þessa
frammistöðu en það eru ekki síður
aðrir sem vöktu verðskuldaða at-
hygli.
Ef það er eitthvað sem Ísland
skortir ekki þá eru það kraftmiklir
framherjar. Andri Rúnar Bjarna-
son spilaði sína fyrstu landsleiki og
komst afar vel frá sínu. Kristján
Flóki Finnbogason og Óttar Magn-
ús Karlsson voru svo ekki síður
hættulegir. Samúel Kári Frið-
jónsson var bæði prófaður á miðj-
unni og í bakverði og er framtíð-
armaður í liðinu. Miðvörðurinn Jón
Guðni Fjóluson var með eldri
mönnum í hópnum en sýndi það í
gær að hann er mjög traustur.
Helgi Kolviðsson minntist sér-
staklega á að U21-árs landsliðið
mun án efa græða á verkefni sem
þessu. Ungu strákarnir eru komnir
með smjörþefinn af hugmyndafræði
A-landsliðsins og nú er undir þeim
sjálfum komið að vinna frekar eftir
henni og heilla landsliðsþjálfarana
á ný.
Albert kominn til að vera
Albert Guðmundsson kom af bekknum og setti þrennu í öðrum sigri Íslands
í Indónesíu Landsliðsþjálfararnir fylgjast grannt með öllum fram að HM
AFP
Þrenna Albert Guðmundsson snýr á Andritany Ardhiyasa í marki Indónesíu og skorar fyrsta mark sitt í gær.
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018
1:0 Ilham Udin 29. í auttmarkið eftir að Rúnar Alex
Rúnarsson í marki Íslands missti
boltann klaufalega frá sér eftir fyr-
irgjöf.
1:1 Albert Guðmundsson 45.fékk stungusendingu frá
Andra Rúnari Bjarnasyni, fyrra
skot hans var varið en hann fylgdi
því vel eftir.
1:2 Arnór Smárason 58. meðskoti úr úr teignum eftir að
Óttar Magnús Karlsson skallaði
hornspyrnu Alberts í þverslá.
1:3 Albert Guðmundsson 66.vippaði í netið úr víta-
spyrnu sem hann fiskaði sjálfur.
1:4 Albert Guðmundsson 71.fékk boltann á miðjunni frá
Hilmari Árna Halldórssyni, geyst-
ist inn á teig og skoraði snyrtilega.
Það var yfirlýst markmið
Heimis Hallgrímssonar, þjálfara
íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu, með vináttulands-
leikjum íslenska liðsins gegn
Indónesíu, að freista þess að
auka breiddina í leikmannahópi
íslenska liðsins.
Vart er mark takandi á fyrri
leik liðanna sem fram fór við
óboðlegar aðstæður, auk þess
sem mótspyrnan var ekki upp á
marga fiska. Aðstæðurnar í leik
liðanna í gær voru skaplegri og
andstæðingurinn mun sterkari.
Sá leikmaður sem bankaði
af mestum krafti á dyr leik-
mannahópsins fyrir lokakeppni
heimsmeistaramótsins í Rúss-
landi næsta sumar er Albert
Guðmundsson, leikmaður PSV,
og fyrirliði U-21 árs landsliðs-
ins.
Auk þess að skora þrennu
í leiknum tók Albert hornspyrn-
una sem leiddi til þess að Arnór
Smárason skoraði fjórða mark
íslenska liðsins. Þá lék Albert
eins og sá sem valdið hefur í
leiknum. Knatttækni og leik-
skilningur Alberts bar af á vell-
inum að mínu viti. Þá hefur
hann eiginleika til þess að
brjóta upp varnir andstæðinga í
þröngum stöðum; annaðhvort
með einleik eða klókum send-
ingum á samherja. Fram-
angreinda eiginleika getur ís-
lenska liðið vel nýtt í Rússlandi.
Fyrir lokakeppni Evrópu-
mótsins 2016 var Arnór Ingvi
Traustason einn af þeim leik-
mönnum sem sprungu út í
sambærilegum janúarverk-
efnum. Arnór Ingvi gerði gæfu-
muninn á ögurstundu í lokaleik
riðlakeppninnar í París. Nú er
spurningin hvort Albert fetar í
fótspor Arnórs Ingva; verði val-
inn í lokahópinn og standi sig
svo á stóra sviðinu þegar þar
að kemur.
BAKVÖRÐUR
Hjörvar Ólafsson
hjorvaro@mbl.is
Hörmungar Spánar- og Evr-
ópumeistara Real Madrid halda
áfram í spænsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu en liðið tapaði á heimavelli
fyrir Villarreal, 1:0, um helgina og
er þjálfarinn Zinedine Zidane undir
mikilli pressu, nokkrum dögum eftir
að hafa framlengt samning sinn við
félagið til ársins 2020. Real Madrid
hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu
þremur leikjum sínum í deildinni og
aðeins unnið einn af síðustu fimm
leikjum. Real Madrid er í fjórða sæti
deildarinnar, átta stigum á eftir Val-
encia sem er í þriðja sætinu og er 19
stigum á eftir toppliði Barcelona.
Ekki síðan árið 2004 hefur Real
Madrid endað neðar en í þriðja sæti
deildarinnar. Cristiano Ronaldo hef-
ur verið eins og skugginn af sjálfum
sér en Portúgalinn hefur aðeins
skorað fjögur mörk í deildinni á leik-
tíðinni. Barce-
lona endurheimti
11 stiga forskot á
toppnum í gær-
kvöld þegar liðið
bar sigurorð af
Real Sociedad á
útivelli, 4:2. Það
blés ekki byrlega
fyrir Börsungum
því heimamenn
komust í 2:0 á
fyrstu 35 mínútum leiksins. Bras-
ilíumaðurinn Paulinho minnkaði
muninn fyrir Barcelona á 39. mín-
útu og í seinni hálfleik sýndu liðs-
menn Katalóníuliðsins hversu öfl-
ugir þeir eru. Luis Suárez skoraði
tvö mörk á 20 mínútna kafla og arg-
entínski snillingurinn Lionel Messi
innsiglaði sigur Barcelona.
gummih@mbl.is
Börsungar í stuði en allt
í steik hjá Real Madrid
Luis
Suárez
Sundkonurnar Hrafnhildur Lúth-
ersdóttir og Ingibjörg Kristín Jóns-
dóttir, afrekskonur úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar, tilkynntu það í gær að
þær væru hættar keppni. Snýr það að-
allega að alþjóðlegum mótum, hvort
sem er hér heima eða erlendis.
„Við ætlum að taka okkur kærkom-
ið frí og einbeita okkur að öðrum hlut-
um. Við erum báðar í skóla og vinnu
og erum bara að reyna að byggja upp
framtíðina,“ sagði Hrafnhildur við
mbl.is, en hún stefnir á lækn-
isfræðinám. Þá ætlar hún að þjálfa
áfram og reyna að gera sundheiminn
betri fyrir yngri kynslóðirnar, eins og
hún orðaði það.
Hrafnhildur hefur verið ein fremsta
afreksíþróttakona Íslands síðustu ár.
Hún er ríkjandi Íslandsmethafi í 11
greinum; sex í 25 metra laug og 5 í 50
metra laug. Þá var hún einnig í boð-
sundsveitum sem eiga alls 10 Íslands-
met til viðbótar og má því segja að hún
sé 21 faldur ríkjandi Íslandsmethafi.
Ingibjörg á átta boðsundsmet og eitt
einstaklingsmet og saman eru þær því
ríkjandi 30 faldir Íslandsmethafar.
„Ég er búin að eiga frábæran feril
og það mun örugglega taka tíma að
fatta það,“ sagði Hrafnhildur, en allt
viðtalið við hana er á mbl.is/sport.
30 faldir ríkjandi Íslands-
methafar hættir keppni
Hrafnhildur
Lúthersdóttir
Ingibjörg Kristín
Jónsdóttir
Martin Her-
mannsson bætti
persónulegt met
sitt yfir stigaskor
á yfirstandandi
leiktíð þegar
hann skoraði 29
stig í 90:84-tapi
Chalons-Reims
gegn Le Mans í
frönsku efstu
deildinni í körfu-
bolta karla á laugardagskvöld.
Martin lék allar 40 mínúturnar
með liði sínu og átti sjö stoðsend-
ingar auk þess sem hann tók tvö
fráköst.
Haukur Helgi Pálsson skoraði
hins vegar fjögur stig þegar lið
hans, Cholet, hafði betur á móti
Pau Orthez á útivelli. Hann spilaði í
23 mínútur. Lokatölur í leiknum
urðu 78:70 Cholet í vil.
Cholet er í níunda sæti deildar-
innar með átta sigurleiki og jafn-
marga tapleiki. Chalons-Reims er
hins vegar í 12. sæti deildarinnar
eftir sjö sigra og níu töp.
Á Spáni skoraði Tryggvi Snær
Hlinason þrjú stig fyrir Valencia og
tók tvö fráköst í stórsigri liðsins á
Zaragoza, 103:58.
Í B-deild kvenna á Spáni var
Hildur Björg Kjartansdóttir með
níu stig og 11 fráköst í útisigri
Leganés gegn Picken Claret, 61:43.
Martin fór
á kostum í
Frakklandi
Martin
Hermannsson
GBK Stadium, Jakarta, vináttulands-
leikur karla, sunnudaginn 14. janúar
2018.
Skilyrði: Rigning, 26 stiga hiti og rakt.
Skot: Indónesía 7 (2) – Ísland 17 (9).
Horn: Indónesía 5 – Ísland 5.
Indónesía: (4-5-1) Mark: Andritany
Ardhiyasa. Vörn: Putu Gede (Muham-
mad Aswar 77), Fachrudin Aryanto,
Hansamu Yama, Rezaldi Hehanusa.
Miðja: Febri Hariyadi, Bayu Pradana
(Hanif Abdurrauf 64), Septian David
(Evan Dimas 57), Muhammad Hargi-
anto (Andik Vermansah 79), Osvaldo
Haay (Egy Maulana 84). Sókn: Ilham
Udin (Boaz Solossa 67).
Ísland: (4-4-2) Mark: Rúnar Alex
Rúnarsson. Vörn: Samúel Kári Frið-
jónsson (Viðar Ari Jónsson 69), Jón
Guðni Fjóluson, Hólmar Örn Eyjólfs-
son (Orri Sigurður Ómarsson 46), Fel-
ix Örn Friðriksson. Miðja: Aron Sig-
urðarson, Ólafur Ingi Skúlason
(Hilmar Árni Halldórsson 46), Arnór
Smárason, Arnór Ingvi Traustason
(Albert Guðmundsson 27). Sókn:
Kristján Flóki Finnbogason (Tryggvi
Hrafn Haraldsson 75), Andri Rúnar
Bjarnason (Óttar Magnús Karlsson
46).
Dómari: Yusuke Araki frá Japan.
Áhorfendur: 36.220.
Indónesía – Ísland 1:4