Morgunblaðið - 22.01.2018, Síða 6
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018
Leganes varð að
sætta sig við 61:54
tap gegn Adel-
antados í B-deild
Spánar í körfu-
bolta um helgina.
Körfuboltakona
ársins hjá KKÍ á
síðasta ári, Hildur
Björg Kjartans-
dóttir, stendur sig
þó vel hjá
spænska liðinu. Var hún stigahæsti
leikmaður Leganes með 13 stig á
þeim 30 mínútum sem hún spilaði.
Hildur setti þrjú af sex þriggja
stiga skotum sínum niður, en auk
stiganna tók hún sex fráköst. Þrátt
fyrir tapið er Leganes enn í 2. sæti
deildarinnar með 12 sigra í 15 leikj-
um. Hildur lék um tíma í bandaríska
háskólaboltanum en er á fyrsta ári í
atvinnumennsku.
Hildur Björg
stigahæst
Hildur Björg
Kjartansdóttir
vinnusemi leikmanna sem svindluðu
aldrei í varnarleiknum. Eftir bar-
áttumikinn og jafnan fyrri hálfleik
komu heimakonur sterkar inn í þann
síðari en ekkert fát kom á yfirveg-
aðar Eyjakonur sem unnu að lokum
bug á lánlausu Stjörnuliði. Skyttan
Ester Óskarsdóttir var frábær í
leiknum með tíu mörk en tvö þeirra
skoraði hún á endasprettinum þegar
mjótt var á milli liðanna. Guðný
Jenný Ásmundsdóttir átti svo fínan
leik í markinu og varði algjört
dauðafæri í lok leiks, sem endanlega
tryggði ÍBV stigin tvö.
ÍBV situr nú í 3. sæti deildarinnar
og tekur á móti Haukum í næstu um-
ferð, sem sitja sæti ofar og fjórum
stigum betur en Eyjakonur. Sá leik-
ur gæti reynst ákveðin vísbending
um það hvort þær séu tilbúnar að
fara alla leið og berjast á toppnum
en sjö stig skilja á milli ÍBV og ósigr-
aðra Valsara á toppi deildarinnar.
Valur hóf árið með látum
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
skoraði þrjú mörk fyrir Val í fyrsta
leik sínum eftir endurkomuna á
Hlíðarenda, og eftir að hafa fætt sitt
annað barn fyrir tveimur mánuðum.
Valskonur unnu sannkallaðan stór-
sigur á Selfyssingum, 30:14, í þess-
um fyrsta leik liðanna eftir jólafríið.
Sex mörkum munaði í hálfleik, 13:7.
Díana Dögg Magnúsdóttir var
markahæst hjá Val með 8 mörk og
Diana Satkauskaite skoraði 6, en hjá
Selfossi var landsliðskonan Perla
Ruth Albertsdóttir markahæst með
4 mörk.
Valskonur halda því áfram þar
sem frá var horfið fyrir jól en þetta
var fimmti sigur þeirra í röð. Fram
undan er hins vegar hörkuleikur við
Fram í Safamýri annað kvöld kl. 20.
Selfoss er stigi fyrir ofan Gróttu og
Fjölni sem eru neðst.
Stórt skref Eyjakvenna
ÍBV vann Stjörnuna í afar mikilvægum leik í Garðabæ í baráttunni um sæti í
úrslitakeppninni Ester frábær og Jenný einnig góð Meiðsli angra Stjörnuna
Morgunblaðið/Eggert
Frábær Ester Óskarsdóttir fór fyrir sínu liði í Ásgarði um helgina og var markahæst ÍBV í leiknum mikilvæga.
Í ÁSGARÐI
Kristófer Kristjánsson
sport@mbl.is
ÍBV tók stórt skref í átt að úrslita-
keppninni með 27:25-sigri gegn
Stjörnunni í 14. umferð Olísdeildar
kvenna í handknattleik í Ásgarði á
laugardaginn var. Liðin voru jöfn og
óaðskiljanleg í fyrri hálfleik en sá
síðari var töluvert sveiflukenndur og
skiptust liðin til að mynda á því að
hafa þriggja marka forystu. Að lok-
um voru það svo Eyjakonur sem
sigldu stigunum tveimur í höfn og
styrktu þar með stöðu sína í topp-
baráttunni.
Stjarnan hefur nú farið halloka í
þremur af síðustu fjórum viður-
eignum sínum en margir af helstu
leikmönnum liðsins eru fjarverandi.
Hin margreynda Hanna Guðrún
Stefánsdóttir skoraði sjö mörk og
skyttan Ramune Pekarskyte sömu-
leiðis fyrir Garðbæinga en þess utan
virðist spilamennska liðsins, bæði í
sókn og vörn, standa höllum fæti.
Stjörnukonur eru nú fimm stigum
frá sæti í úrslitakeppninni og þurfa
að færa leik sinn til mun betri vegar
ætli þær sér þangað. Meiðsli hafa
sett strik í reikning bikarmeistar-
anna frá því í fyrra og mun það ekki
hjálpa Stjörnunni að mikið álag er á
liðinu um þessar mundir. Liðið spilar
leik á þriggja daga fresti út janúar
og þurfti á laugardaginn að spila í
Ásgarði sem er ekki eiginlegur
heimavöllur liðsins.
Yfirvegaðar Eyjakonur
ÍBV hefur nú unnið þrjá af síðustu
fjórum leikjum sínum og virðist vera
mikil samheldni innan liðsins. Eyja-
konur lögðu sig mikið fram í leiknum
og var ákveðinn iðnaðarbragur á
Ásgarður, úrvalsdeild kvenna, Olís-
deildin, laugardaginn 20. janúar
2017.
Gangur leiksins: 3:3, 5:5, 5:7, 8:8,
8:9, 12:11, 16:14, 18:18, 19:21,
23:24, 25:27.
Mörk Stjörnunnar: Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 7/4, Ramune Pekar-
skyte 7, Stefanía Theodórsdóttir 3,
Sólveig Lára Kjærnested 3, Aníta
Theodórsdóttir 1, Þórey Anna Ás-
geirsdóttir 1, Aðalheiður Hreins-
dóttir 1, Þorgerður Anna Atladóttir
1, Elena Birgisdóttir 1.
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 6.
Utan vallar: 0 mínútur.
Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 10,
Sandra Erlingsdóttir 6/1, Karólína
Bæhrenz 3, Kristrún Ósk Hlyns-
dóttir 3, Asun Batista 2, Shadya
Goumaz 2, Greta Kavaliauskaite
1.
Varin skot: Guðný Jenný Ás-
mundsdóttir 8/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og
Jónas Elíasson.
Áhorfendur: 150.
Stjarnan – ÍBV 25:27
Valshöllin, úrvalsdeild kvenna, Olís-
deildin, laugardaginn 20. janúar
2017.
Gangur leiksins: Staðan í hálfleik
var 13:7 Val í vil. Lokatölur 30:14.
Mörk Vals: Díana Dögg Magnús-
dóttir 8, Diana Satkauskaite 6, Krist-
ín Arndís Ólafsdóttir 5, Kristín Guð-
mundsdóttir 4, Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir 3, Gerður Arin-
bjarnar 2, Ólöf Kristín Þorsteins-
dóttir 1, Vigdís Birna Þorsteinsd. 1.
Varin skot: Lina Rypdal og Chantal
Page voru markverðir Vals í leiknum.
Utan vallar: 0 mínútur.
Mörk Selfoss: Perla Ruth Alberts-
dóttir 4, Ída Bjarklind Magnúsdóttir
3, Hulda Dís Þrastardóttir 2, Hrafn-
hildur Hanna Þrastardóttir 2, Harpa
Sólveig Brynjarsdóttir 2, Agnes Sig-
urðardóttir 1.
Varin skot: Viviann Petersen og Ás-
laug Ýr Bragadóttir voru markverðir
Selfoss í leiknum.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Sigurgeir Sigurgeirsson
og Ægir Örn Sigurgeirsson.
Áhorfendur: 160.
Valur – Selfoss 30:14
Stykkishólmur, Úrvalsdeild kvenna,
21. janúar 2018.
Gangur leiksins: 4:7, 9:15, 14:19,
14:22, 19:26, 27:28, 31:32, 38:38,
42:42, 45:46, 49:51, 53:54, 62:57,
62:57, 66:61, 66:66, 70:70, 77:79.
Snæfell: Kristen Denise McCarthy
34/18 fráköst, Rebekka Rán Karls-
dóttir 11/5 fráköst, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 11/6 stolnir, Andrea
Björt Ólafsdóttir 9/5 fráköst,
Berglind Gunnarsdóttir 8/4 frá-
köst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir
2, Anna Soffía Lárusdóttir 2.
Fráköst: 26 í vörn, 11 í sókn.
Haukar: Whitney Michelle Frazier
28/19 fráköst/7 stoðsendingar,
Dýrfinna Arnardóttir 25/5 frá-
köst, Rósa Björk Pétursdóttir
8/9 fráköst, Anna Lóa Ósk-
arsdóttir 8/4 fráköst, Þóra Krist-
ín Jónsdóttir 5/4 fráköst/6 stoð-
sendingar, Sigrún Björg
Ólafsdóttir 5.
Fráköst: 38 í vörn, 4 í sókn.
Dómarar: Halldór Geir Jensson,
Einar Þór Skarphéðinsson, Gunn-
ar Thor Andrésson.
Snæfell – Haukar 77:79
Dominos-deild kvenna
Snæfell – Haukar.................................. 77:79
Staðan:
Haukar 17 12 5 1359:1200 24
Valur 16 12 4 1294:1158 24
Keflavík 16 11 5 1322:1214 22
Stjarnan 16 9 7 1206:1103 18
Breiðablik 16 8 8 1153:1192 16
Skallagrímur 16 7 9 1184:1237 14
Snæfell 17 6 11 1217:1286 12
Njarðvík 16 0 16 970:1315 0
1. deild karla
Vestri – ÍA............................................. 96:71
Vestri – ÍA............................................. 93:80
Snæfell – Gnúpverjar ........................... 79:83
Staðan:
Skallagrímur 15 13 2 1519:1341 26
Vestri 15 11 4 1372:1276 22
Breiðablik 15 11 4 1357:1235 22
Hamar 15 11 4 1389:1325 22
Snæfell 15 9 6 1482:1403 18
Fjölnir 16 7 9 1359:1411 14
Gnúpverjar 15 5 10 1301:1397 10
FSu 15 1 14 1258:1384 2
ÍA 15 0 15 1179:1444 0
1. deild kvenna
Hamar – Þór Ak.................................... 59:74
ÍR – Grindavík ...................................... 55:44
Fjölnir – Þór Ak.................................... 67:59
Staðan:
KR 15 15 0 1273:771 30
Fjölnir 14 11 3 1013:813 22
Grindavík 15 8 7 1037:983 16
Þór Ak. 15 8 7 990:966 16
ÍR 13 6 7 670:779 12
Hamar 14 2 12 738:973 4
Ármann 14 0 14 619:1055 0
Spánn
Valencia – Fuenlabrada...................... 88:72
Tryggvi Snær Hlinason gerði 6 stig fyrir
Valencia og tók 4 fráköst.
B-deild kvenna:
Leganés – Adelantados....................... 54:61
Hildur Björg Kjartansdóttir gerði 13
stig fyrir Leganés og tók 6 fráköst.
Frakkland
Boulazac – Cholet ............................... 67:91
Haukur Helgi Pálsson gerði 11 stig fyrir
Cholet, tók 3 fráköst og átti 5 stoðsend-
ingar.
Svíþjóð
Borås – Nässjö...................................... 87:81
Jakob Örn Sigurðarson gerði 3 stig fyrir
Borås, tók 2 fráköst og átti 3 stoðsendingar.
Danmörk
Hörsholm – Værlöse............................ 83:49
Sandra Lind Þrastardóttir gerði 8 stig
fyrir Hörsholm, gaf 3 stoðsendingar og tók
2 fráköst.
NBA-deildin
Leikið aðfaranótt sunnudags:
Oklahoma – Cleve-and ..................... 148:124
Chicago – Atlanta ............................... 113:97
Miami – Charlotte ............................ 106:105
Memphis – New Orleans.................. 104:111
Milwaukee – 76ers.............................. 94:116
Golden State – Houston ................... 108:116
Toronto – Minnesota ........................ 109:115
LA Clippers – Utah Jazz.................. 113:125
Dallas – Port-land............................. 108:117
Leikið aðfaranótt laugardagsins:
Toronto – San Antonio ......................... 86:83
Brooklyn – Miami............................... 101:95
Detroit – Washington....................... 112:122
Memphis – Sacramento ..................... 106:88
Denver – Phoenix ............................. 100:108
Utah – New York.............................. 115:117
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66 deildin:
Fylkishöll: Fylkir – HK ....................... 18.30
Í KVÖLD!
Haukakonur eru komnar upp að hlið
Valskvenna á toppi Dominos-
deildarinnar í körfubolta eftir 79:77-
sigur á Snæfelli í Stykkishólminum í
gær. Staðan eftir venjulegan leik-
tíma var 66:66 og því þurfti að fram-
lengja. Að lokum voru Haukarnir
sterkari.
Whitney Michelle Frazier skoraði
28 stig fyrir Hauka, tók 19 fráköst og
gaf sjö stoðsendingar. Dýrfinna Arn-
ardóttir gerði 25 stig. Þess má geta
að Haukar eru án Helenu Sverris-
dóttur um þessar mundir þar sem
hún var lánuð til Good Angels Kosice
í Slóvakíu. Haukum virðist takast að
halda sjó þótt allir gerir sér grein
fyrir því að fjarvera Helenu er blóð-
taka fyrir liðið.
Hjá Snæfelli var Kristen Denise
McCarthy stigahæst með 33 stig og
tók hún einnig 18 fráköst. Rebekka
Rán Karlsdóttir og Gunnhildur
Gunnarsdóttir gerðu 11 stig hvor.
Haukar fóru upp í 24 stig með
sigrinum en Valur sem einnig er með
24 stig hefur leikið færri leiki. Hauk-
ar hafa leikið sautján en Valur sex-
tán. Ríkjandi meistarar í Keflavík
eru með 22 stig. Snæfell er enn í
næstneðsta sæti með 12 stig og er
tveimur stigum á eftir Skallagrími en
tólf á undan Njarðvík. sport@mbl.is
Haukar upp að hlið
Vals á toppnum
Framlengja þurfti
til að fá fram úrslit
í Stykkishólmi
Morgunblaðið/Ófeigur
25 stig Dýrfinna Arnardóttir átti
stórleik fyrir Hauka.