Morgunblaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 NÁMSKEIÐ VOR 2018 JL HÚSIÐ, MIÐBERG Í BREIÐHOLTI, KORPÚLFSSTAÐIR HRINGBRAUT 121, 101 REYKJAVÍK - WWW.MIR.IS - S.551-1990 V ið erum í miðri iðnbyltingu þar sem megináhersla er lögð á hönnun og nýsköpun. Hvernig geta fyrirtæki nýtt sér námskeið ykkar og beitt tækni hönnunar í stefnumótun? „Stafræn þróun er ein helsta áskorun sem fyrirtæki og stofnanir hafa staðið frammi fyrir í áratugi. Það er grundvallarmisskilningur að þessar áskoranir séu eingöngu tæknilegs eðlis. Helstu áskoranirnar felast í því að skilja þarfir, óskir og væntingar notenda í breyttu um- hverfi – og hafa hugrekki til þess að gera róttækar breytingar. Það er erfitt að nota gömlu aðferðirnar til að leysa þessar nýju áður óþekktu áskoranir. Design thinking-aðferðafræðin setur einmitt notendur í forgrunn, en samkennd með notendum, við- skiptavinum og starfsfólki er eitt sterkasta einkenni aðferðafræð- innar. Því miður er auðvelt fyrir fyr- irtæki að missa sjónar á því hverjum þau vilja þjóna. Það að setja sig raunverulega í spor viðskiptavina, er eina leiðin til að lifa af í harðri sam- keppni. Nýsköpunarhugsun er einn- ig samofin Design thinking, við leyf- um okkur að hugsa allt upp á nýtt.“ Stöðug nýsköpun og þróun Hverskonar fyrirtæki og fólk sækir námskeiðið ykkar? „Það er mjög fjölbreyttur hópur fólks, bæði úr opinbera geiranum, einkageiranum „ og úr þriðja geir- anum. Það sem þau eiga þó öll sam- eiginlegt er að vera aflvakar breyt- inga, þora að skoða nýjar leiðir.“ Hvað mælið þið með að fyrirtæki fari oft í stefnumótun? „Það er úr sögunni að fyrirtæki geti horft til stefnumótunar á 7 til 10 ára fresti, það er miklu nær á tveggja ára fresti en markmiðið er að aðferðafræði Design thinking verði hluti af DNA fyrirtækisins – þannig að stöðug nýsköpun og þróun eigi sér stað í daglegu starfi.“ Getið þið nefnt dæmi um fyrirtæki eða aðila sem nota Design Thinking í stefnumótun? „Mörg alþjóðlega þekkt fyrirtæki eru farin að tileinka sér þessa að- ferðafræði, þar má nefna fyrirtæki eins og Airbnb, Pepsi, P&G, Spotify, Philips, Deutsche Bank og fleiri. En það eru ekki eingöngu fyrirtæki sem nýta sér aðferðafræði Design Think- ing, stofnanir, sveitarfélög og góð- gerðarsamtök hafa einnig nýtt sér aðferðafræðina með góðum árangri. Mayo Clinic-sjúkrahúsið í Banda- ríkjunum hefur til dæmis notað De- sign thinking til þess að bæta þjón- ustu og upplifun sjúklinga og til að efla nýsköpun.“ Að sprengja upp hið hefðbundna mengi Getið þið útskýrt hvernig Design Thinking-stefnumótun í mjög hefð- bundnu fyrirtæki gengur fyrir sig? „Gríðarlega mikilvægur þáttur í því að fara fram úr væntingum við- skiptavina er að byggja ekki á því gamla, festast ekki í viðjum vanans heldur finna hvaða leið er best út frá þörfum viðskiptavina eða notanda þjónustunnar. Í Design thinking-aðferðafræð- inni er lögð áhersla á að skilgreina upplifunarferðalag viðskiptavinar, horfa til sársaukapunkta sér- staklega og hvernig megi stytta ferðalagið. Ferðalagið er greint lið fyrir lið þar sem við skoðum líðan, upplifun, ferli og helstu vörður. Til þess að efla nýsköpun og hámarka árangur í breytingaverkefnum er nálgunin heildræn og unnin í þver- faglegum teymum, sem segja má að sé kjarninn í aðferðarfræði Design Thinking. Þar er leitast við að sprengja upp hið hefðbundna mengi í fyrirtækjum og stofnunum sem verða annars oft afar einsleitar. Þverfagleg teymisvinna leysir úr læðingi nýja hugsun; við fáum fram ólík sjónarhorn og nýja sýn á gömul vandamál sem skilar miklum ávinn- ingi, betri rekstri og hlúir að skap- andi hugsun.“ Margar iðngreinar eiga undir högg að sækja vegna iðnbylting- arinnar, sem dæmi munu mörg störf sjálfvirknivæðast. Hvernig getum við með aðstoð Design Thinking að- stoðað fólk við að finna sér nýjan stað í þessum breytingum? „Í skýrslunni The Future of Jobs sem gefin var út af WEF er spáð fyr- ir um hvaða störf, mannaflaþörf og hæfni þarf árið 2020. Þar raðast í efstu sætin skapandi hugsun, lausn flókinna vandamála og gagnrýnin hugsun. Þetta eru allt þættir sem gervigreindin hefur ekki náð tökum á og einkenna einnig Design Think- ing-aðferðafræðina. Það er því mik- ilvægara en nokkru sinni fyrr að þjálfa þessa hæfni sem við flest bú- um yfir en höfum tapað niður mis- mikið á lífsleiðinni.“ Hvernig sjáið þið fyrir ykkur fyr- irtækjarekstur á Íslandi á næstu ár- um? „Það eru að verða til ný viðskipta- módel, við erum farin að sjá allt ann- að umhverfi en áður. Airbnb, stærsta hótelkeðja í heimi á ekkert hótel, Uber, stærsta leigubílafyr- irtæki í heimi á ekki einn leigubíl og Facebook sem er stærsta fréttaveita í heimi framleiðir ekkert efni – sem dæmi. Óhjákvæmilega er þetta að gerast á Íslandi líka, við sjáum fyr- irtæki vera að stinga sér inn í virð- iskeðju þessara hefðbundnu fyr- irtækja og bjóða betri þjónustu, sjálfvirkni og skilvirkni. Stóru fyr- irtækin eru viðkvæmari fyrir þessu þar sem þau hreyfa sig hægar og eru því seinni til að bregðast við breyttu umhverfi. Gott dæmi eru bankarnir sem eiga undir högg að sækja frá Fintech-fyrirtækjum sem eru ein- mitt að gera þetta. Einhverjir bank- ar hafa valið að vinna með þeim í staðinn fyrir að reyna að keppa við þau og verða þá einskonar vett- vangur fyrir þjónustuveitingu á milli viðskiptavina og ýmissa minni fyr- irtækja – stefna þá á að halda ein- göngu í sína kjarnaþjónustu.“ Breytt neysluhegðun og væntingar viðskiptavina Eru íslensk fyrirtæki að breytast í takt við þá tækniþróun sem við sjáum í heiminum? „Auðvitað eru einhver íslensk fyr- irtæki að gera það, en öll fyrirtæki finna mjög fyrir þeirri áskorun sem fylgir því að færa sig inn í stafræna umhverfið. En því miður eru allt of mörg sem halda enn að þetta snúist eingöngu um að fylgjast með nýjustu tækni, en það er aðeins einn af mörg- um þáttum sem þarf að huga að. Fyrst og fremst skiptir máli að gera sér grein fyrir þeirri áskorun sem fylgir breyttri neysluhegðun og væntingum viðskiptavina sem fylgja þessari þróun. Þar nýtist að- ferðafræði Design Thinking sér- staklega vel en einnig þegar kemur að því að þróa breytingarverkefni til þess að aðlaga sig nýjum veruleika. Þá er mikilvægt að vinna í þverfag- legum teymum og tryggja að fá full- trúa allra þeirra sem á einhvern hátt koma að þjónustuveitingunni, beint eða óbeint að borðinu. Það þarf yf- irleitt að hugsa hlutina alveg upp á nýtt, þora að fara út fyrir þæg- indarammann til þess að ná ár- angri.“ Fjárfesting sem skilar sér fjórfalt til baka Í nýjum stjórnarsáttmála rík- isstjórnarinnar er mikil áhersla á ný- sköpun, og þá hlýtur stjórnsýslan að ætla að tileinka sér skapandi hugs- un. Hvernig gæti Design thinking virkað þar? „Það væri nærtækt að horfa til þeirra landa sem hafa verið fram- arlega í að innleiða aðferðafræði De- sign thinking í stjórnsýslu, til dæmis Bretland, Danmörk og Finnland. Í Bretlandi hefur t.d. lengi starfað De- sign council, sem var stofnað 1944 af Winston Churchill sem er einskonar tenging milli hönnunargeirans, hins opinbera og einkageirans, mikill ávinningur af samstarfi skapandi greina við stjórnsýsluna og hafa mælingar sýnt að ávinningur hvers punds sem fer í að fjárfesta í hönnun getur skilað sér fjórfalt til baka í hagnaði.“ En í skólum landsins? „Alþjóðlega eru dæmi þess að hönnunarfyrirtæki hafi á síðustu ár- um unnið verkefni með skólum á ýmsum skólastigum þar sem Design thinking hefur verið beitt bæði til að endurhanna uppbyggingu náms og sem aðferð í kennslu og samskiptum. Samkvæmt vinnumálastofnun Bandaríkjanna eru 60% af þeim störfum sem grunnskólabörn í dag munu sinna í framtíðinni – ekki til í dag. Það er því auðvitað mikilvægt að búa börnin okkar undir þessa breyttu heimsmynd, að virkja þessa hæfni sem lögð er áhersla á í skýrslu WEF um framtíð starfa. Við verðum að leggja áherslu á skapandi hugsun sem og gagnrýna hugsun og lausn flókinna vandamála. Þá þarf skóla- starfið að endurspegla m.a. að kenna þeim að vinna þverfaglega. Spurn- ingin er svo hvort skólakerfi okkar endurspegli það?“ elinros@mbl.is Að finna bestu leiðina Þær Þórey Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent, og Hlín Helga Guðlaugsdóttir hönnuður hafa vakið athygli víða með nýrri leið til stefnumótunar sem kallast Design Thinking. Þær halda námskeið á veg- um Opna háskólans um þessa aðferð. Hér verður fjallað um námskeiðið, aðferðina, fjórðu iðnbylt- inguna og mikilvægi skapandi hugsunar á þeim tímum sem við lifum á. Morgunblaðið/Hari Hönnunarhugsun Þær Þórey Vilhjálmsdóttir og Hlín Helga Guðlaugsdóttir stýra námskeiðinu Design Thinking á vegum Opna háskólans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.