Morgunblaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 19 Er kominn tími til að gera eitthvað? Aukin vellíðan Ávinningurinn af námskeiðinu er aukin þekking á leiðum til þess að hlúa að andlegri heilsu og efla vellíðan. Bókfærsla og tölvubókhald Farið er yfir grundvallaratriði og hugtök í bókfærslu og bókhaldi fyrirtækja og einstaklinga. Þátttakendur læra færslu bókhalds frá grunni og því ekki gert ráð fyrir forþekkingu og námskeiðið nýtist einnig þeim sem hafa ákveðinn grunn fyrir. ÚFF - Úr frestun í framkvæmd Farið yfir ástæður frestunar, einkenni og afleiðingar. Fyrir þá sem vilja hætta að fresta og fara að ná árangri í lífinu. Sjálfsumhyggja Markmið námskeiðsins er að þátttakendur þjálfi með sér færni til að sýna sjálfum sér vinsemd og hlýju (self-compassion), t.d. þegar þeir upplifa mótlæti og erfiðleika. Í fókus - að ná fram því besta með ADHD Eykur skilning á ADHD (athyglisbresti/ofvirkni) og hvernig er hægt að ná betri tökum á einkennum ADHD í daglegu lífi. Næstu námskeið í boði hjá Hringsjá Ég heiti Robert Zadorozny Ég er nemi í Listaháskóla Íslands á myndlistarbraut. Ég var nemandi í Hringsjá náms- og starfs- endurhæfingu. „Í Hringsjá fékk ég stuðning, hjálp, kærleik og von, allt sem ég þurfti til að geta aftur staðið á eigin fótum. Núna er ég að gera það sem ég elska og hefði að öllum líkind- um ekki byrjað á því nema fyrir Hringsjá„ Hringsjá býður úrval af öðruvísi og spennandi námskeiðum sem hafa hjálpað mörgum að komast aftur eða í fyrsta sinn af stað til meiri virkni, meiri lífsgæða og fleiri valkosta í námi eða starfi. S tundum dugar hreinlega ekki að geyma skólavörurnar í venjulegri tösku, og allt of alþýðlegt að kaupa Fjällrä- ven eða Herschel – og þaðan af síður tösku frá einhverju íþróttamerkinu, eins og Nike eða Adidas. Þá kemur ekkert annað til greina en að kíkja á fínu tískuhúsin, sem eru dugleg að hanna gullfallegar og rándýrar tösk- ur sem eftir er tekið. ai@mbl.is Lágstemmt og retró Skólatöskur þurfa ekki endilega að vera risastórar, með pokum og vös- um fyrir ótal bækur, tölvur og smá- hluti. Þessi netti bakpoki frá Gucci er einmitt naumhyggjan uppmáluð og kjörin taska fyrir þá sem fara ekki með mikið meira en netta far- tölvu í skólann og eins og eina fernu af Kókómjólk. Töskuna má hvort heldur bera á öxlunum eða halda í hendi eins og skjalatösku. Gucci-merkið er á sínum stað og hefur á sér yfirbragð sem minnir á 9. áratuginn. Velja má um nokkra liti, en hvítt leðrið ætti að fara vel með flestu. 1.350 pund hjá Gucci.com Nú er það svart Monogram Eclipse-mynstrið frá Lo- uis Vuitton þykir í senn lágstemmt og karlmannlegt. Eiginleikar mynst- ursins sjást vel á Apollo-töskunni, því þó það fari ekki milli mála hvað- an taskan kemur þá er ekkert sem æpir á fólk: „Sjáið mig! Ég spreða í allt of dýrar töskur“. Að innan má finna vasa fyrir spjaldtölvu, og ágætis pláss fyrir smáa fartölvu og alla þá smáhluti sem þarf fyrir skóladaginn. 1.350 pund hjá LouisVuitton.com Felulitir nútímamannsins „Kamó“-mynstur Valentino hafa aldeilis fallið í kramið hjá tískuspek- ingunum. Mynstrin blanda saman jarðtónum og skærum litum, sem seint myndu henta til að hverfa inn í skóglendi eða eyðimerkurlandslag, en eru kannski einmitt það sem þarf til að sjást ekki of greinilega í kokk- teilboði með stjörnum og stórlöxum. Þessi stóri bakpoki frá Valentino leyfir mynstrinu að njóta sín, og er svo rúmgóður að hann gæti hentað í stutta helgarferð, og alveg örugg- lega rúmað allar bækurnar og íþróttafötin fyrir skóladaginn. 2.265 dalir hjá Valentino.com Hlýja innan seilingar Sumir verða alltaf að vera við öllu búnir. Breska töskugerðarfyrir- tækið James Purdey & Sons er með rétta bakpokann fyrir þannig fólk. Pokinn er sterkbyggður og rúmgóð- ur með 18 lítra hólfi sem heldur bók- um og raftækjum þurrum. Framan á töskunni hangir síðan voldugt teppi sem er þá alltaf til taks ef kalt er í skólastofunni eða einfaldlega stemn- ing fyrir smá lautarferð í frímín- útum. 2.485 dalir hjá MrPorter.com Skólatöskur fyrir sterk- efnaða Louis Vuitton Gucci ValentinoJames Purdey & Sons

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.