Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 28

Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 storkurinn.is storkurinn@storkurinn.is • Prjóntækni • • Prjónhönnun • • Sjalaprjón • • Hekltækni • • Leikfangahekl • • Útsaumur • o.fl. NÁMSKEIÐ STORKSINS Fjölbreytt úrval af skólavörum í fallegri verslun okkar í Mosfellsbæ og í vefverslun Múlalundar – www.mulalundur.is. Þú pantar – við sendum til þín Múlalundur | Vinnustofa SÍBS Reykjalundur | 270 Mosfellsbær Sími 562 8500 www.mulalundur.is Þú kaupir skólavörurnar hjá Múlalundi og skapar um leið störf fyrir fólk með skerta starfsorku K ennarar Tónskóla Sig- ursveins hafa í mörg horn að líta um þessar mundir enda þarf að undirbúa fjölbreytt skólastarf á vorönn. Tónskóli Sig- ursveins er stærsti tónlistarskóli Reykjavíkur, með tvær meg- insstarfsstöðvar í Hraunbergi og á Engjateigi. Nemendurnir Tónskól- ans eru hátt í 570 talsins og kennt á flestar gerðir hljóðfæra en að auki á skólinn í vaxandi samstarfi við Hóla- brekkuskóla og Fjölbrautarskólann í Breiðholti um tónlistarkennslu hátt í 200 nemenda. Ár- lega stendur Tón- skólinn í sam- vinnuverkefni við 30 leiskóla í Reykjavík og meira en 600 leik- skólabörn heim- sækja skólann. Júlíana Rún Indriðadóttir er skólastjóri Tón- skólans: „Við er- um með stóra Suzuki-deild þar sem nemendur geta byrjað strax við þriggja ára aldur og lært á fiðlu, selló, víólu, gítar og píanó. Einnig má hefja nám við skólann í forskóla sem er ætlaður 6-8 ára börnum. Þar er lagður grunnurinn fyrir almennt hljóðfæranám og börnin fá að kynn- ast ólíkum hljóðfærum, leika á blokk- flautur og kantele og upplifa tónlist í gegnum dans og hreyfingu.“ Eftir forskólann tekur við almennt hljóðfæra- og söngnám og geta nem- endur valið að fara í klassískt hljóð- færanám eða rytmískt nám s.s. á raf- gítar eða rafbassa. „Engin aldurstakmörk eru við skólann og hægt að hefja tónlistarnám á hvaða aldri sem er. Nemendur hafa líka lok- ið framhaldsprófi á ýmsum aldri en þeir sem hefja tónlistarnám mjög ungir og fara alla leið ljúka flestir framhaldsprófi á aldirnum 19-23 ára. Í desember luku þrír fiðlunemendur framhaldsprófi með glæsilegum tón- leikum og sjö aðrir stefna á fram- haldspróf á vorönn,“ útskýrir Júl- íana. Stuðningur og aðhald Marga foreldra dreymir um að börn- in þeirra læri á hljóðfæri, en vita ekki hvernig á að vekja áhugann og óttast að barninu kunni að leiðast námið. Júlíana segir mikið gagn að því ef börnin fá sjálf að velja sér hljóðfæri, og henti forskólinn vel til að gefa þeim tækifæri á að uppgötva það hljóðfæri sem höfðar mest til þeirra. „Stuðningur foreldra skiptir líka miklu máli enda hljóðfæranámið ólíkt öðru námi sem börnin stunda að því leyti að það fer að miklu leyti fram heima fyrir. Það lærir enginn að spila á hljóðfæri bara í spilatímum, og ef börnin vanrækja að æfa sig heima er hætta á að þeim fari lítið fram og hætti að finnast tónlistarnámið skemmtilegt.“ Júlíana segir það ekki heldur aðal- atriði að börn byrji tónlistarnám sem yngst, og um að gera að láta það eftir þeim að læra á hljóðfæri ef áhuginn kviknar á táningsárunum, t.d. ef að unglingspilturinn eða -stúlkan á heimilinu fær skyndilega rafmagns- gítar-bakteríuna. Leigja út hljóðfærin Annað sem foreldrar hafa áhyggjur af er kostnaðurinn við hljóðfæra- kaup, en Júlíana segir Tónskólann bjóða upp á þægilega lausn. „Við leigjum nemendunum hljóðfæri á mjög vægu verði, og kostar t.d. leigan á strengjahljóðfæri 10.000 kr. fyrir árið. Þetta kemur sér vel enda getur verið dýrt að kaupa hljóðfærin ný, auk þess sem börnin stækka og þurfa því á stærri hljóðfærum að halda með reglulegu millibili.“ Eftir því sem tónlistarnáminu vindur fram segir Júlíana að verði æ brýnna að huga að því að eðlilegt jafnvægi sé á tómstundastarfi og námi barnanna. „Eftir því sem börn- in verða eldri getur álagið aukist í íþróttastarfinu og í skólanum, og reynir núna sérstaklega mikið á nem- endur á framhaldsstigi eftir að menntaskólinn var styttur um eitt ár. Skóladagurinn er að lengjast, sem getur bitnað á æfingum og hafa sum- ir nemendur gripið til þess ráðs að slá tónfræðigreinunum í tónlistarnáminu á frest til að geta sinnt hljóð- færanáminu nægilega vel.“ ai@mbl.is Inn í heillandi heim tónlistarinnar Stuðningur foreldra skiptir miklu máli í tón- listarnámi barnanna og brýnt að börnin vanræki ekki að æfa sig heima Undirstaða Til að námið sé skemmtilegt þarf að æfa samviskusamlega. Samstarf Skólahljómsveit flytur verk af innlifun fyrir tónleikagesti. Hæfileikar Ungir nemendur á tónleikum á Kjarvalsstöðum. Að kunna á hljóðfæri er dýrmætt veganesti út í lífið. Uppgötvun Börnin eru forvitin um tónlist, og njóta þess að fikta og spila. Júlíana Rún Indriðadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.