Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018FRÉTTIR
Minnsta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
GRND
-3,85%
32,5
TM
+3,80%
35,55
S&P 500 NASDAQ
+0,57%
7.297,607
+0,12%
2.734,44
-0,18%
7.281,31
FTSE 100 NIKKEI 225
22.8.‘17 22.8.‘1721.2.‘18 21.2.‘18
1.700
702.300
2.074,85
2.180,79
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
51,87 65,13+1,15%
21.970,81
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
50
Heimildir ViðskiptaMoggans herma
að áætlunarflug íslenskra flugrek-
enda til Rússlands, og þá að öllum
líkindum til Moskvu, sé forsenda í
viðræðum íslenskra og rússneskra
stjórnvalda um yfirflugsleyfi yfir
Rússland. Slíkt leyfi er aftur for-
senda fyrir því að íslensk flugfélög
geti byrjað að fljúga til Austur-Asíu,
en of óhagkvæmt er að fljúga
framhjá Rússlandi til að komast héð-
an til landa eins og Japans og Kína.
Heimildir ViðskiptaMoggans
herma einnig að mögulegt flug til
Moskvu tengist nýlegum breytingum
á leiðakerfi Icelandair, en eins og
fram kom í tilkynningu félagsins til
kauphallarinnar á dögunum hefur fé-
lagið ákveðið að hætta næturflugi til
Evrópu, eða hinum svokallaða seinni
tengibanka. Seinni tengibankinn
snýst um að flugvélar félagsins, sem
fóru frá Keflavík til Bandaríkjanna
laust fyrir hádegið, og komu til baka
til Keflavíkur að kvöldi sama dags,
gáfu möguleika á tengiflugi áfram
með vélum Icelandair til Evrópu að
nóttu til. Í staðinn var sú ákvörðun
tekin nú í byrjun árs 2018 að flytja
þetta framboð yfir í hinn svokallaða
aðaltengibanka á morgnana. Tíðni í
þeim banka er þar með aukin, bæði
fyrir og eftir háannatímann í þeim
banka.
Til að þessi breyting sé möguleg
þurftu að vera laus stæði við flugstöð-
ina á þessu tímabili, stæði sem WOW
air hafði pantað, en ákvað að nýta sér
ekki. Í svari við fyrirspurn Viðskipta-
Moggans segir Svanhvít Friðriks-
dóttir, upplýsingafulltrúi félagsins, að
félagið sé að búa til nýjan banka með
brottförum til Evrópu frá klukkan 12
en með þeim hætti geti WOW air
tengt við fleiri flug sín til Norður-
Ameríku.
Grundvöllur framtíðaráforma
Í tilkynningu Icelandair er sagt að
„seinni tengibankinn“ hafi ekki verið
jafn arðbær og „aðaltengibankinn“.
Meðalfargjöld og sætanýting í nætur-
flugi væru lægri og áhafnakostnaður
hærri. Jafnframt sé ekki mögulegt að
fá aðgang að flugvöllum í London og
Amsterdam, sökum þess hvenær þeir
eru opnir, og því séu stækkunarmögu-
leikar bankans takmarkaðir. Í til-
kynningunni segir jafnframt að
breytingin myndi „grundvöll fyrir
framtíðaráform félagsins […]“.
Bæði Icelandair og WOW air hafa
viðrað áhuga á að fljúga til Asíu í
næstu framtíð, en Björgólfur
Jóhannesson, forstjóri Icelandair,
minntist á þann áhuga í viðtali við
ViðskiptaMoggann fyrr á árinu og
sagði þar að verið væri að skoða
ákveðna möguleika í Asíu og einnig
að fara dýpra inn í Evrópu, eins og
hann orðaði það.
Samkvæmt heimildum Viðskipta-
Moggans er rýmri „aðaltengibanki“
forsendan fyrir því að hægt sé að
fljúga til Asíu, eins og fyrr sagði og
„dýpra inn í Evrópu“. Vélar félagsins
sem fljúga lengra en hefur verið
mögulegt til þessa, lengra en til
München, Helsinki og Zürich t.d.,
þurfa að geta skilað sér heim inn í
aðaltengibankann til að nýtast fyrir
tengiflugið. Með rýmri aðaltengi-
banka er þetta hægt, og þá gætu opn-
ast möguleikar á að fljúga til borga
eins og Rómar, Prag og Moskvu svo
dæmi séu tekin.
Breytingar á leiðakerfi
tengdar Asíuflugi
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Flug til Austur-Asíu er háð
því að semjist við Rússa
um yfirflugsheimild og
áætlunarflug til Rússlands.
WOW air hyggst byggja
upp nýjan „banka“ með
brottförum til Evrópu frá
klukkan 12.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stærri aðaltengibanki er forsenda fyrir því að fara dýpra inn í Evrópu. Yfir-
flugsleyfi yfir Rússlandi er svo forsenda fyrir flugi til Austur-Asíu.
ELDSNEYTISMARKAÐUR
Hagnaður N1 á síðasta ári nam
2,1 milljarði króna, sem er 39%
minni hagnaður en árið á undan.
Þegar kostnaður við kaup á Festi
er undanskilinn var rekstrarhagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagns-
liði, EBITDA, 3,6 milljarðar króna
og stóð nánast í stað á milli ára.
Selt magn af bensíni og gasolíu
dróst saman um 4,0% á milli ára en
velta annarra vara jókst um 3,0%.
Framlegð af vörusölu jókst um
1,2% og nam 11,3 milljörðum króna
á síðasta ári.
EBITDA nam 31,2% af framlegð
síðasta árs. Vaxtaberandi skuldir
námu 8 milljörðum króna og
minnkuðu um 991 milljón króna.
Eigið fé var 13,8 milljarðar í lok
síðasta árs og eiginfjárhlutfall var
49,9%.
Að gefnum tilteknum skilyrðum
um fjölgun ferðamanna og efna-
hagsþróun, þá spáir fyrirtækið að
EBITDA muni verða á bilinu 3,5 til
3,7 milljarðar króna á þessu ári að
undanskildum kostnaði við kaup á
Festi. Gangi þau viðskipti eftir
gagnvart samkeppnisyfirvöldum er
gert ráð fyrir að þeim ljúki í lok
annars ársfjórðungs.
Stjórn N1 leggur til við aðalfund
að ekki verði greiddur arður vegna
ársins 2017.
Hagnaður N1 var 2,1
milljarður króna í fyrra
Morgunblaðið/Eggert
Eggert Kristófersson væntir þess að
kaupum N1 á Festi ljúki um mitt ár.
ELDSNEYTISMARKAÐUR
Hagnaður Skeljungs nam 1.143
milljónum króna á síðasta ári og
dróst saman um 9,4% milli ára. Að-
löguð EBITDA að teknu tilliti til
einskiptiskostnaðar var 2,8 millj-
arðar króna, en til samanburðar var
EBITDA árið á undan 2,6 millj-
arðar.
Framlegð ársins nam 7,2 millj-
örðum króna og lækkaði um 1,4%.
Eigið fé í árslok var 7,1 milljarður
króna og eiginfjárhlutfallið 38%.
Félagið áætlar að EBITDA í ár
verði á bilinu 2,6-2,8 milljarðar
króna og fjárfestingar liggi á bilinu
750-850 milljónir króna.
Hendrik Egholm forstjóri segir í
afkomutilkynningu til Kauphallar að
síðastliðið ár hafi markast af ýmsum
aðgerðum og verkefnum sem hrund-
ið var í framkvæmd til þess að
styrkja stöðu félagsins og byggja
undir þau sóknarfæri sem við félag-
inu blasa. Afkoma Skeljungs hafi þó
verið góð.
Stjórn Skeljungs leggur til arð-
greiðslu að fjárhæð 500 milljónir
króna, sem er 43,7% af hagnaði árs-
ins 2017.
Skeljungur hagnaðist
um 1,1 milljarð króna
Morgunblaðið /Hari
Hendrik Egholm segir félagið vinna
að nýrri sýn hvað varðar sölustaði.
Borgarstjórn samþykkti í fyrra-
kvöld breytt deiliskipulag Borgar-
túns 24. Félagið EE Development
undirbýr þar byggingu 65 íbúða og
atvinnuhúsnæðis. Lóðin er hluti af
reit sem afmarkast af Katrínartúni,
Borgartúni, Nóatúni og Samtúni.
Eftir miðjum reitnum endilöngum,
sem er þríhyrningslaga, er gert ráð
fyrir göngu- og hjólastíg.
Jón Norland, forstjóri Smith &
Norland, segir samþykkt deiliskipu-
lagstillögu fyrir Borgartún 24 með
slíku byggingarmagni „harla undar-
lega“. Um sé að ræða staka hornlóð
sem beri ekki allar þessar íbúðir
svo að vel megi fara miðað við að
ekki verði farið í aðrar fram-
kvæmdir á svæðinu eins og tilgreint
sé í rammaskipulagi.
Ekki hróflað við bakhúsinu
Smith & Norland eigi bakhús á
lóð Borgartúns 22 og ekki standi til
að hrófla við því. Þar sé vöru-
geymsla og þjónustuverkstæði
skammt frá verslun fyrirtækisins í
Nóatúni 4. Því falli tvöfalt bíla-
geymsluhús, sem nái yfir Borgartún
22 og lengra, um sjálft sig sem og
hugmyndir um göngu- og hjólastíga.
„Álagið verður því mikið á horn-
húsið og því spurning hvort skipu-
lagsyfirvöld séu ekki komin fram úr
sér með því að lofa eigendum B24
ehf. [sem er í eigu EE Develop-
ment] framkvæmdum á öðrum lóð-
um sem styðji við starfsemi þeirra
en síðan verði ekkert af þeim. Þessi
deiliskipulagstillaga miðast greini-
lega við að ýmislegt fleira verði
framkvæmt á svæðinu og fellur því
um sjálfa sig. Rétt er að endur-
skoða hana og sníða sér stakk eftir
vexti.“
Jón segir aðspurður að bakhúsið
Borgartún 22 sé ómissandi hluti af
rekstri Smith & Norland. Verði það
hús rifið sé ekki lengur grundvöllur
fyrir rekstrinum í núverandi mynd.
„Deiliskipulagstillagan gerir ráð
fyrir bílakjallara sem nær í gegnum
Borgartún 22 og skerðir að auki
lóðina hjá okkur í Nóatúni. Þá til-
lögu höfum við aldrei samþykkt.
Borgin veit að við erum á móti til-
lögunni.“ baldura@mbl.is
Samþykkja ekki niðurrifið
Tölvuteikning/Yrki arkitektar
Drög að húsum í Borgartúni 24.
Forstjóri Smith & Norland
segir niðurrif Borgartúns
22 myndu kippa grundvell-
inum undan rekstrinum.
Rífa á húseignina vegna
uppbyggingar á nýjum
þéttingarreit í Borgartúni.