Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018FÓLK
SPROTAR
Já Hreinn Gúst-
avsson hefur verið
ráðinn vöru- og við-
skiptaþróunarstjóri
Já og mun hann
einnig taka sæti í
framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
Hreinn var áður framkvæmdastjóri
og einn af stofnendum hugbún-
aðarfyrirtækisins Stokkur Software
sem hefur þróað mörg vinsæl öpp
meðal annars Alfreð, Púlsinn,
Strætó og Leggja. Áður starfaði
Hreinn sem forritari hjá Vodafone,
TM Software og Nova. Hreinn út-
skrifaðist með BSc í kerfisfræði frá
Háskólanum í Reykjavík árið 2002.
Hreinn verður vöru- og
viðskiptaþróunarstjóri
H:N Markaðs-
samskipti Birgir
Þór Harðarson hef-
ur verið ráðinn sem
framleiðslustjóri hjá
H:N Markaðs-
samskiptum. Birgir Þór er með BA-
gráðu í stjórnmálafræði frá Há-
skóla Íslands.
Birgir Þór hóf ungur störf í um-
broti á Fréttablaðinu en starfaði
síðar sem blaðamaður þar. Hann er
einn stofnenda Kjarnans og starf-
aði þar sem vefstjóri um fjögurra
ára skeið áður en hann færði sig
um set yfir til H:N Markaðs-
samskipta.
Birgir Þór ráðinn
sem framleiðslustjóri
VISTASKIPTI
Í álveri framtíðarinnar má reikna
með að róbótar sjái um mörg erf-
iðustu störfin, sjálfakandi flutn-
ingabílar ferji hráefni hratt og
örugglega á milli staða og full-
komin gervigreind leiti í sífellu
leiða til að bæta framleiðsluferlið.
Þetta segir Kristinn Harðarson,
framkvæmdastjóri fjárfestinga og
framleiðsluþróunar hjá Alcoa, en
hann verður einn af frummæl-
endum á árlegu Nýsköpunarmóti
Álklasans sem haldið verður í Há-
skólanum í Reykjavík í dag.
„Eftir tíu ár hugsa ég að verði
komin mun meiri sjálfvirkni í fram-
leiðslunni, og að störfin muni
þróast yfir í að snúast einkum um
eftrilit með vélum og búnaði frekar
en að mannshöndin þurfi að vinna
verkin,“ segir Kristinn.
Auk hans flytja framsöguerindi
Guðrún Sævarsdóttir, forseti
tækni- og verkfræðideildar HR,
Houshang Darvishi Alamdari,
framkvæmdastjóri REGAL rann-
sóknarmiðstöðvar áliðnaðarins í
Kanada, Carl
Duchesne, pró-
fessor við Laval-
háskóla í Quebec,
Markús Garð-
arsson, forseti
verkfræði- og
náttúruvís-
indasviðs HÍ, og
Þorsteinn Ingi
Sigfússon, for-
stjóri NMÍ. Þá munu frumkvöðlar
og nemendur halda örkynningar á
verkefnum sínum.
Tæknin léttir erfiðu störfin
„Á undanförnum árum hefur átt
sér stað mikil nýsköpun hjá álver-
um bæði við að auka framleiðslu,
oft með straumhækkun, og einnig í
rannsóknum á hráefnum og betri
nýtingu þeirra, og svo allri stýringu
framleiðslunnar. Nú eru aftur á
móti að koma í ljós tækifæri af nýj-
um toga, sérstaklega á sviði upp-
lýsingatækni og sjálfvirkni og eiga
eftir að hafa mikil áhrif á áliðn-
aðinn rétt eins og allan annan iðn-
að,“ segir Kristinn.
Sem dæmi um þá þróun sem
þegar hefur átt sér stað nefnir
Kristinn hvernig gervigreind er
notuð til að meta ástand skaut-
gaffla. „Hjá Alcoa á Reyðarfirði er-
um við nú að setja upp fullkominn
myndavélabúnað sem tekur þrí-
víðar myndir af skautgöfflunum.
Gervigreind skoðar þessar myndir
og leggur mat á það, miðað við
ákveðnar forsendur, hvort tíma-
bært sé að gera við skautgaffalinn
eða ekki. Án búnaðarins þarf
starfsmaður að meta ástand skaut-
gaffla með eigin augum og þykir
það ekki sérlega skemmtilegt starf.
Allir verða því mjög fegnir þegar
ferlið verður sjálfvirknivætt.“
Kristinn sér líka fyrir sér að nota
megi tæknina til að skapa verð-
mæti úr þeim gögnum sem verða til
í starfsemi álveranna. Með því að
safna gögnunum betur og greina
þau á ýmsa vegu geti komið í ljós
nýjar leiðir til að gera framleiðsl-
una betri og skilvirkari. „Mig grun-
ar að það leynist mikil verðmæti í
gögnunum, og t.d. ímynda ég mér
að betri notkun gagna geti hjálpað
til að draga úr viðhaldskostnaði
með því að hjálpa okkur að meta
betur ástand búnaðarins. Í dag
byggjum við ákvörðun um það hve-
nær skal viðhalda búnaði á ástand-
sskoðunum og mælingum en einnig
á ráðleggingum framleiðanda, en
erum hugsanlega að skipta út vél-
arpörtum oftar en þörf er á.“
Auk þess að bæta reksturinn og
létta störfin vonar Kristinn að
þessar auknar tækiframfarir í ál-
framleiðslu geri álverin líka að
öruggari vinnustöðum. Sér hann
fyrir sér að flutningar á hráefni
með sjálfakandi ökutækjum geti
t.d. dregið úr líkunum á slysum og
óhöppum. „Til að svo verði þarf
vitaskuld fyrst að leysa ýmsar
praktískar áskoranir svo að t.d.
veðurfar og hálka geti ekki sett
strik í reikninginn.“
Má læra af Noregi og Kanada
Mikilvægt er að skapa umhverfi
þar sem hlúð er að nýsköpun í ál-
iðnaði, s.s. með því að tryggja gott
samstarf milli álveranna og háskól-
anna, og jafnvel skapa fjárhagslega
hvata sem ýta undir nýsköpun,
rannsóknir og þróun. Kristinn segir
að nú þegar hafi margt gott verið
gert til að hlúa að nýsköpun í
greininni. „Samstarfið við há-
skólana er gott og yfirleitt hafa
meistaranemar getað unnið með ál-
verunum að hagnýtum rannsókn-
arverkefnum.“
Kristinn segir að gera megi enn
betur, og t.d. hægt að fylgja for-
dæmi Kanada og Noregs en þar
hefur áliðnaðurinn sótt fram af
miklum krafti í nýsköpun. Í Kan-
ada er t.d. starfrækt sérstök rann-
sóknarmiðstöð áliðnaðarins, þar
sem kröftum, þekkingu og fjár-
magni er beint á einn stað. „Bæði í
Noregi og Kanada hafa stjórnvöld
stutt nýsköpun í greininni í formi
styrkja, og ýtt undir mjög náið
samstarf háskólanna við áliðn-
aðinn.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Menn að störfum í álveri Alcoa í Reyðarfirði. Í framtíðinni gætu sálfakandi ökutæki séð um hráefnisflutninga innan
álversins og sjálfvirk tæki unnið mörg erfiðustu störfin á meðan gervigreind vaktar og greinir alla ferla.
Von á meiri
sjálfvirkni í
álframleiðslu
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á næstu árum gæti ásýnd
álveranna breyst mikið og
gervigreind leikið stórt hlut-
verk í starfseminni. Áhuga-
verð tækifæri eru fólgin í
því að vinna betur úr þeim
gögnum sem verða til við
framleiðsluna.
Kristinn
Harðarson
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Wow air Tómas Ingason hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri viðskiptasviðs WOW air. Undir viðskiptasvið mun
heyra sala, markaðssetning, þjónusta og tekjustýring.
Tómas starfaði áður hjá Arion banka sem forstöðumaður
Stafrænnar framtíðar. Þetta er í annað sinn sem Tómas kem-
ur til liðs við WOW air en árið 2014 starfaði hann sem fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs WOW air. Á árunum 2011 til 2013 starf-
aði hann sem stjórnunarráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn.
Áður leiddi Tómas tekjustýringu og verðlagningu hjá Icelandair.
Tómas hefur MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management í Boston
en auk þess hefur hann lokið MS gráðu í verkfræði frá MIT með áherslu á
flugrekstur og aðfangakeðjur. Tómas er með BS gráðu í iðnaðarverkfræði
frá Háskóla Íslands.
Tómas ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptasviðs