Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 13FRÉTTIR Það er ekki að undra að Warren Buffett hafi eitt sinn kallað flugfélög „dauðagildru fyrir fjárfesta“. Um áratuga skeið hefur vægðarlaus samkeppni valdið því að hlut- hafar flugfélaga hafa fengið lítið í sinn hlut. En síðastliðin ár hefur fjöldi farþega vaxið hraðar en flutningsgeta flugfélaganna. Árið 2018 gæti þó orðið fjórða árið í röð þar sem flugfélögin geta látið eigendur sína fá einhverja umbun. Nú má greina merki þess að geirinn sé að komast út úr vítahring upp- og niðursveiflna. Á Bandaríkjamarkaði hafa samrunar flugfélaga orðið til þess að framlegð þeirra af rekstri hefur meira en fjórfaldast á undanförnum sex árum. Meira að segja Véfréttin frá Omaha hefur látið verða af því að fjár- festa á þessu sviði. Í Evrópu hefur framlegðin aukist enn hraðar en er samt aðeins 6,3%, eða helmingi minni en hjá bandarísku flugfélögunum. Það endurspeglar að hluta þá hörðu samkeppni sem hefur verið á milli lágfargjaldaflug- félaga á styttri flugleiðum. Gjaldþrot Monarch, Air Berlin og Alitalia hafa létt ögn á þrýstingnum á markaðinum. En það er ástand sem ætti ekki að vara lengi. Ryanair hefur nú þegar boðað verðstríð á flugmarkaði yfir hina afar mikilvægu sumarmánuði. Á föstudag undirstrikaði Air France hvað samkeppnin hefur harðnað, en félagið hefur staðið í niðurskurðaraðgerðum og hleypt af stokkunum sínu eigin lágfargjaldaflugfélagi. Afkoma undir vænt- ingum og fyrirheit um að „fylgja eftir sókninni“ urðu svo til þess að hlutabréfaverð félagsins féll um 6%. Alþjóðasamband flugfélaga, Iata, segir að á þessu ári ættu flugfélög aftur að skila arðsemi umfram fjármagnskostnað. En hærra eldsneyt- isverð mun þrengja að framlegðinni alls staðar, þar á meðal á Asíu- markaði sem vaxið hefur hratt að undanförnu. Hagnaður flugfélaga er að jafnaði minni en 9 bandaríkjadalir á hvern farþega. Það er frekar takmarkaður stuðpúði – sér í lagi ef það verður ókyrrð í lofti. LEX AFP Flugfélög og flugrými: Á fjúgandi siglingu Tilraun Walmart til að skora Amazon á hólm í netverslun heppn- aðist ekki nógu vel í jólavertíðinni og varð það til þess að hlutabréf fé- lagsins féllu í verði. Walmart, sem er stærsti smásali heims mælt í sölutekjum og með höfuðstöðvar í Arkansas, upplýsti á þriðjudag að hægt hefði töluvert á vexti netverslunar fyrirtækisins, sem hafði vaxið hratt fram að því. Vandamál við vöruflutninga juku enn frekar á erfiðleikana í hörðu samkeppnisumhverfi. Eykur á áhyggjur smásala Þegar mest var lækkuðu hluta- bréf Walmart um 10% á þriðjudag, og hafði það þau áhrif að markaðs- virði fyrirtækisins dróst saman um 30 milljarða bandaríkjadala. Vakti það enn frekari áhyggjur margra í smásölu vegna þeirrar röskunar sem Amazon er að valda í greininni. Walmart hefur fjárfest mikið í netverslunarrekstri og hefur á sama tíma þurft að heyja verðstríð á kjarnasviði sínu. Salan hjá net- verslun Walmart jókst aðeins um 23% á þriggja mánaða tímabilinu til og með janúar, sem er mun hægari vöxtur en sú yfir 50% aukning sem mældist síðustu þrjá ársfjórðung- ana þar á undan. Aukin áhersla á eigið vefsvæði Doug McMillon, forstjóri fyrir- tækisins, segir Walmart hafa fjár- fest meira í eigin vefsvæði, þar sem ódýrara er að laða að nýja viðskiptavini, en dregið úr út- gjöldum til markaðsmála vegna sprotafyrirtækisins Jet.com sem Walmart keypti árið 2016. Jet þykir einkum höfða til yngri og fjársterk- ari viðskiptavina í borgum á borð við New York. „Þegar komið er til Oklahoma, úti í miðjum Bandaríkjunum, er ein- faldlega skynsamlegra að fjárfesta frekar í [Walmart] vörumerkinu“, segir hann. „Jet mun ekki halda áfram að vaxa eins hratt og það gerði í byrjun.“ McMillon segir „lítinn hluta“ þess sem rekja má til minni vaxtar í net- verslun hafa komið á óvart, en fyr- irtækið sé enn að laga sig að þeim áskorunum sem fylgja því að selja vörur yfir netið. Walmart glímdi við erfiðleika í birgðahaldi þegar eftir- spurnin eftir raftækjum og gjafa- vöru náði hámarki, segir hann. „Við erum að læra á eitthvað nýtt. Netverslun hefur ekki verið okkar sérsvið fram til þessa.“ Enn lítill hluti sölu á netinu Netverslun myndar aðeins 4% af um 500 milljarða dala árlegum sölu- tekjum Walmart, en mikill vöxtur hafði gert fjárfesta vongóða um að fyrirtækið gæti farið að saxa á það mikla forskot sem Amazon hefur. Gengi hlutabréfa í Walmart hefur hækkað um 51% undanfarið ár. Um hádegisbil í New York á þriðjudag kostuðu hlutabréf Wal- mart 94,75 dali eftir að hafa lækkað um 9% frá opnun markaða. Markaðsgreinendur eiga von á því að afkoma Walmart verði áfram undir þrýstingi enda hefur versl- anakeðjan þurft að lækka hjá sér verð, sér í lagi á matvöru sem myndar meira en helminginn af sölutekjunum. Árstíðabundnir af- slættir dempuðu svo hagnaðartöl- urnar enn frekar. Framlegðin lækk- aði um 61 punkt síðustu þrjá mánuði rekstrarársins og fyrirtækið segir tvo þriðju af þeirri lækkun stafa af „verðfjárfestingu“. Verðstríð dregur úr framlegð Charlie O’Shea, smásölugreinandi hjá Moody‘s, segir minni framlegð skýrast af „markaðsútgjöldum í Bandaríkjunum í aðdraganda jóla, og af áframhaldandi verðstríði við Amazon“. Walmart segir leiðréttan hagnað hafa hækkað um 9% upp í 1,33 dali á hlut á fjórða ársfjórðungi, sem er minna en 1,37 dala meðaltalsspá markaðsgreinenda hljóðaði upp á. Heildartekjur hækkuðu um 3% og námu 136,3 milljörðum dala, sem er meira en þeir 134,9 milljarðar sem spáð hafði verið. Tölurnar ollu vonbrigðum því að heilt yfir var jólavertíðin tiltölulega góð í Bandaríkjunum. Smásala óx um 5,5% í nóvember og desember, og er það hraðasti vöxtur á milli ára síðan fjármálakreppan skall á, sam- kvæmt gögnum National Retail Federation. Asda að ná sér aftur á strik Matvöruverslanakeðjan Asda, sem er í eigu Walmart og er fjórða stærsta stórmarkaðakeðjan í Bret- landi, upplýsti að salan þar hefði aukist um 0,5% á síðasta ársfjórð- ungi. Hún hefur því hækkað í fjóra fjórðunga samfellt en þó hægar en fjórðungana tvo þar á undan þegar aukningin nam 1,1% annars vegar og 1,8% hins vegar. Asda er að ná sér aftur á strik eftir þriggja ára tímabil þar sem salan var á niðurleið. Walmart fipast í slagnum við Amazon Eftir Önnu Nicolaou í New York Markaðsvirði Walmart dróst saman um 30 millj- arða bandaríkjadala á þriðjudaginn þegar í ljós kom að hægt hefði veru- lega á vexti netverslunar fyrirtækisins í samkeppni við Amazon. AFP Walmart, stærsta smásölufyrirtæki heims, hefur ekki enn tekist að fóta sig í netsölu og hefur meðal annars lent í erfiðleikum vegna stýringar á birgðahaldi. Af síðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.