Morgunblaðið - 05.02.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.02.2018, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018 FRJÁLSAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Emily Cherotich, frá Kenía, tók fram úr Anítu Hinriksdóttur úr ÍR á loka- metrum 800 metra hlaupsins á Reykjavíkurleikunum í Laugardals- höll á laugardaginn og sigraði á 2:02,39 mínútum. Cherotich er enginn nýgræðingur og hefur til að mynda náð 2. sæti á meistaramótinu í Kenía þar sem býr eins og íþróttaunnendur þekkja geysileg hlaupaþjóð ef þannig má að orði komast. Hún er reyndur hlaup- ari og er 32 ára gömul eða tíu árum eldri en Aníta. Meghan Manley frá Bandaríkjunum hafnaði í 3. sæti á 2:04,09 mínútum. Aníta hljóp á 2:02,68 mínútum en Íslandsmet hennar innanhúss er 2:01,18 mínútur frá því á Reykja- víkurleikunum fyrir ári. Aníta var frá æfingum í rúman mánuð síðasta haust vegna meiðsla í kálfa en virðist vera á réttri leið á nýju ári. Eftir rúman mánuð fer fram heimsmeist- aramót innanhúss í Birmingham og þangað stefnir Aníta vitaskuld en hún keppir næst í Þýskalandi á þriðjudaginn. Þá mun hún hlaupa 1.500 metra hlaup. Hlaupið var mjög spennandi og aldrei munaði miklu á Anítu og Cherotich. Þegar einn hringur var eftir gaf Aníta í og tók forystuna. Cherotich var hins vegar ferskari á lokakaflanum og komst fram úr á lokametrunum. Barningur á brautinni „Svona og svona,“ sagði Aníta þeg- ar Morgunblaðið spurði hana hvort hún væri ánægð með tímann. „Lág- markið fyrir HM innanhúss er 2:02 mínútur og ég hefði viljað hlaupa á betri tíma en það en einhvern veginn æxlaðist þetta svona. Cherotich var líka æst og þar af leiðandi var nokk- uð um olnbogaskot, rykkingar og baráttu um að vera fremst. Ég þarf ennþá að öðlast meiri reynslu hvað slík atriði varðar en á heildina litið fann ég mig ágætlega. Ég náði að auka hraðann til að reyna að vinna en hélt það ekki alveg út og Chero- tich er verðugur andstæðingur. Ég fann að það var orka í stúkunni og aðeins súrt að vinna ekki á heima- velli,“ sagði Aníta sem átt hefur vel- gengni að fagna á leikunum síðustu árin. Ekki líður nú langt á milli keppna hjá Anítu þar sem hún flaug af landi brott í gær og keppir á morgun í Düsseldorf. „Já ég fer út strax í fyrramálið (í gær) og þess vegna var ágætt að fá daga hér heima fyrir hlaupið á RIG. Það verður hálfgerð frumraun hjá mér í 1.500 metra hlaupi innanhúss og ég er spennt fyr- ir því,“ sagði Aníta enn fremur, en eins og fram kom í spjalli við hana í Morgunblaðinu á dögunum mun hún á næstunni skoða hvort 800 metr- arnir eða 1.500 metrarnir henti henni betur til lengri tíma litið. Langt sigurstökk Langstökkvarinn reyndi, Kristinn Torfason úr FH, er ekki dauður úr öllum æðum og sigraði í langstökki með dramatískum hætti. Í síðasta stökki sínu tók hann forystuna með stökki upp á 7,66 metra og sigraði í keppninni. Sló hann þar við keppi- nautum frá Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. „Það er alltaf skemmtilegast að hafa þetta þannig,“ sagði Kristinn og hló þegar Morgunblaðið spurði hann hvort um þjófnað hefði verið að ræða. Kristinn er á 34. aldursári en stökkið er fjórða lengsta sem hann hefur náð í keppni innanhúss samkvæmt af- rekaskrá FRÍ. „Ég er mjög ánægður með þessa lengd enda er þetta með bestu stökkum sem ég hef stokkið.“ Kristinn hefur ýmsum hnöppum að hneppa utan íþróttanna og er til að mynda hámenntaður. Er hann með doktorsgráðu í eðlisfræði. Í ljósi ár- angursins á Reykjavíkurleikunum er forvitnilegt að vita hvort Kristinn æfi eins mikið og þegar hann keppti á stórmótum erlendis í íþróttinni. „Ég æfi aðeins minna en ég gerði fyrir átta árum eða svo en ég æfi samt sem áður ennþá á fullu. Ég æfi á hverjum degi og stundum tvisvar á dag. Það má alltaf reyna að bæta sig og ég er ekki hættur. Líkaminn er í „Súrt að vinna ekki á heimavelli“  Gullverðlaunin í 800 fóru til Kenía Jöfn keppni Aníta Hinriksdóttir í humátt á eftir Emily Cherotich frá Kenía í Laug Rekstrartekjur Knattspyrnusambands Íslands á árinu 2017 voru tæplega 1.380 milljónir króna, eða 23 milljónum hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrartekjur ársins 2016 voru mun hærri eða rúmir 3 milljarðar en munurinn skýrist fyrst og fremst af tekjum vegna árangurs A-landsliðs karla á EM í Frakklandi. Hagnaður ársins 2017 var 424.480 krónur, eftir að tæpum 128 milljónum króna hafði verið ráðstafað til aðild- arfélaga vegna ýmissa verkefna, og 52 milljónum úr mann- virkjasjóði. Eignir KSÍ nema 1.145 milljónum króna og bók- fært eigið fé í árslok er 539 milljónir. KSÍ greiddi samtals 143 milljónir króna í laun vegna 18 stöðugilda á skrifstofu sambandsins í fyrra. Þar af fóru 11 milljónir króna í launauppgjör við Geir Þorsteinsson sem lét af störfum snemma árs. Guðni Bergsson var kjörinn í hans stað en laun og bifreiðastyrkur til hans námu 15 milljónum króna, og laun og bifreiðastyrkur til Klöru Bjartmarz fram- kvæmdastjóra fyrir allt árið 2017 námu einnig 15 milljónum. sindris@mbl.is Félögin fengu 180 milljónir Guðni Bergsson Jórunn Harðardóttir stal senunni í skotíþróttakeppninni á Reykjavíkurleikunum um helgina. Þessi sigursæla lands- liðskona setti alls fjögur Íslandsmet á mótinu sem fram fór í Egilshöll. Í riðlakeppninni setti Jórunn Íslandsmet í keppni með loftskammbyssu, þar sem hún skoraði 557 stig, sem og í keppni með loftriffli, þar sem hún skoraði 604,9 stig. Jórunn bætti svo um betur í úrslitum í báðum greinum þar sem hún setti einnig tvö met með því að skora 219 stig í loft- skammbyssu og 239,7 stig í loftriffli. Tvö met voru sett í unglingaflokki kvenna. Ingibjörg Ylfa Gunnarsdóttir bætti metið í loftskammbyssu með því að fá 374 stig, en Viktoría Erla Þ. Bjarnarson í loftriffli með 562,3 stigum. Þess ber að geta að breyting varð á reglum Alþjóðaskotíþróttasambandsins (ISSF) í kvennakeppninni frá áramótum þannig að konur skjóta nú jafn- mörgum skotum og karlar, 60 alls. Fjögur Íslandsmet Jórunnar Jórunn Harðardóttir England Arsenal – Everton ................................... 5:1  Gylfi Þór Sigurðsson var á varamanna- bekk Everton allan leikinn. Burnley – Manchester City .................... 1:1  Jóhann Berg Guðmundsson skoraði mark Burnley og lék allan leikinn. Bournemouth – Stoke .............................. 2:1 Brighton – West Ham.............................. 3:1 Leicester – Swansea ................................ 1:1 Manchester United – Huddersfield........ 2:0 WBA – Southampton ............................... 2:3 Crystal Palace – Newcastle..................... 1:1 Liverpool – Tottenham ............................ 2:2 Staðan: Man. City 26 22 3 1 74:19 69 Man. Utd 26 17 5 4 51:18 56 Liverpool 26 14 9 3 59:31 51 Chelsea 25 15 5 5 45:19 50 Tottenham 26 14 7 5 51:24 49 Arsenal 26 13 6 7 51:35 45 Burnley 26 9 9 8 21:23 36 Leicester 26 9 8 9 38:35 35 Bournemouth 26 8 7 11 30:37 31 Everton 26 8 7 11 29:45 31 Watford 25 7 6 12 33:44 27 West Ham 26 6 9 11 32:46 27 Brighton 26 6 9 11 21:35 27 Crystal Palace 26 6 9 11 24:39 27 Southampton 26 5 11 10 28:38 26 Newcastle 26 6 7 13 24:36 25 Swansea 26 6 6 14 19:37 24 Stoke 26 6 6 14 26:52 24 Huddersfield 26 6 6 14 19:46 24 WBA 26 3 11 12 21:37 20 B-deild: Leeds – Cardiff ........................................ 1:4  Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Cardiff vegna meiðsla. Reading – Millwall................................... 0:2  Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn fyrir Reading en Axel Óskar Andrésson var ekki í leikmannahópnum. Aston Villa – Burton ............................... 3:2  Birkir Bjarnason lék allan leikinn fyrir Villa. Staðan: Wolves 30 21 5 4 54:22 68 Derby 30 16 9 5 47:23 57 Aston Villa 30 16 8 6 46:27 56 Cardiff 29 16 6 7 44:26 54 Fulham 30 14 9 7 51:35 51 Bristol City 30 14 9 7 42:33 51 Preston 30 12 12 6 37:29 48 Sheffield Utd 30 14 4 12 42:36 46 Middlesbrough 30 13 6 11 38:28 45 Leeds 30 13 5 12 41:37 44 Brentford 30 11 10 9 42:39 43 Ipswich 30 13 4 13 43:41 43 Norwich 30 12 7 11 30:33 43 Millwall 30 9 11 10 35:33 38 QPR 30 9 9 12 32:42 36 Nottingham F. 30 11 2 17 35:48 35 Sheffield Wed. 30 7 12 11 31:37 33 Reading 30 8 8 14 33:39 32 Birmingham 30 8 6 16 22:41 30 Bolton 29 7 8 14 27:46 29 Barnsley 30 6 9 15 29:44 27 Hull 30 5 11 14 40:47 26 Sunderland 30 5 10 15 31:52 25 Burton 30 6 6 18 24:58 24 Þýskaland Augsburg – Eintracht Frankfurt ...........3:0  Alfreð Finnbogason hjá Augsburg er frá keppni vegna meiðsla. Schalke – Werder Bremen .................... 1:2  Aron Jóhannsson kom inn á hjá Werder Bremen á 56. mínútu. Staðan: Bayern M. 21 17 2 2 51:16 53 Leverkusen 21 9 8 4 41:27 35 RB Leipzig 21 10 5 6 33:29 35 Dortmund 21 9 7 5 45:29 34 Schalke 21 9 7 5 33:27 34 E.Frankfurt 21 9 6 6 26:23 33 Augsburg 21 8 7 6 32:26 31 Mönchengladb. 21 9 4 8 30:33 31 Hoffenheim 21 7 7 7 32:33 28 Hannover 21 7 7 7 29:31 28 Hertha Berlín 21 6 9 6 28:28 27 Freiburg 21 5 10 6 22:35 25 Wolfsburg 21 4 12 5 24:25 24 Stuttgart 21 6 3 12 17:27 21 Werder Bremen 21 4 8 9 18:26 20 Mainz 21 5 5 11 24:37 20 Hamburger 21 4 5 12 17:30 17 Köln 21 3 4 14 17:37 13 Holland PSV – Zwolle............................................ 4:0  Albert Guðmundsson kom inn á hjá PSV á 77. mínútu og lagði upp fjórða markið. Excelsior – Utrecht ................................. 2:2  Ögmundur Kristinsson sat allan tímann á varamannabekk Excelsior. Sparta Rotterdam – Willem II ............... 1:0  Kristófer Ingi Kristinsson sat allan tím- ann á varamannabekk Willem II. Belgía Lokeren – Standard Liege ..................... 0:3  Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn fyr- ir Lokeren. Skotland Aberdeen –Hamilton............................... 3:0  Kári Árnason var allan tímann á vara- mannabekk Aberdeen. Ísrael Maccabi Tel-Aviv – Hapoel Beer Sheva 1:0  Viðar Örn Kjartansson var á vara- mannabekk Maccabi Tel-Aviv allan tímann. KNATTSPYRNA Dramatíkin var allsráðandi á An- field í Liverpool í gær þegar Tott- enham Hotspur kom í heimsókn. Leikmenn Tottenham voru vænt- anlega fullir sjálfstrausts eftir sannfærandi sigur á Manchester United á dögunum. Þeim var kippt niður á jörðina eftir einungis tveggja mínútna leik þegar Moha- med Salah skoraði fyrir Liverpool. Staðan var 1:0 þar til tíu mín- útur voru eftir af venjulegum leik- tíma. Victor Wanyama smellhitti þá tuðruna fyrir utan vítateig Liverpool og fast skot hans hafn- aði efst í markhorninu. Mark sem verður vafalítið talið eitt af mörk- um tímabilsins. Harry Kane fór á vítapunktinn sjö mínútum síðar en Loris Karius varði frá honum. Kane fór aftur á punktinn í uppbótartíma og skor- aði þá og jafnaði 2:2. Í millitíðinni hafði Salah skorað laglegt mark og nýtti sér undarlega varn- artilburði leikmanna Tottenham. Leikmönnum Liverpool gramd- ist mjög vítaspyrnudómarnir í leiknum. „Ég er reiður en ég get engu breytt og hverjar eru þá mínar skyldur? Að búa til fyrir- sagnir? Að láta refsa mér? Borga sekt? Ef ég segði það sem mér býr í brjósti þá myndi ég þurfa að greiða hæstu sekt í fótboltaheim- inum. Í því er ekkert vit,“ sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, þegar BBC spurði hann út í vítaspyrnudómana að leiknum loknum. Alexis Sanchez, Henrikh Mkhit- aryan og Pierre-Emerick Auba- meyang fara allir vel af stað á nýj- um vinnustöðum og létu allir að sér kveða í sigrum United og Arsenal. kris@mbl.is Yrði hæsta sekt í fótboltaheiminum AFP Knús Harry Kane og Jürgen Klopp þakka hvor öðrum fyrir leikinn á Anfield.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.