Morgunblaðið - 05.02.2018, Page 5

Morgunblaðið - 05.02.2018, Page 5
finu standi, betra en hann hefur verið undanfarin ár. Það lofar góðu,“ sagði Kristinn við Morgunblaðið. Fleiri íslenskir sigrar unnust í frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleik- anna. Hulda Þorsteinsdóttir úr ÍR hafði betur gegn keppendum frá Belgíu og Danmörku í stangarstökk- inu. Sigurstökkið var þegar Hulda fór yfir 4,10 metra í fyrstu tilraun. Belg- íski methafinn, Chloé Henry, fór einnig yfir 4,10 metra en þurfti fleiri tilraunir. Þegar þær felldu báðar 4,20 var ljóst að Hulda hafði sigrað. Keppni var mjög hörð í langstökks- keppni kvenna en þar fór Anne Mari Lehtiö með gullverðlaunin heim til Finnlands. Hún stökk 6,01 metra í sínu fjórða stökki. Irma Gunnarsdótt- ir úr Breiðabliki og María Rún Gunn- laugsdóttir úr FH stukku báðar 5,91. Irma fékk silfrið og María bronsið. Morgunblaðið/Eggert Doktorinn Kristinn sigraði í langstökkinu. Morgunblaðið/Eggert Fyrst Arna Stefanía kemur í mark á RIG. Morgunblaðið/Eggert gardalshöllinni. ÍÞRÓTTIR 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018 Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, hafnaði í 53. sæti á fyrsta móti sínu á Evrópumótaröðinni í golfi á þessu ári, Oates Vic-mótinu. Eftir magnaðan viðsnúning á öðrum hring sínum náði Valdís sér ekki á strik á þriðja hringnum sem hún lék á 6 höggum yfir pari, og komst hún því ekki í gegnum seinni niðurskurðinn á mótinu. Aðeins 36 efstu kylfingarnir fengu að leika fjórða og síðasta hringinn og fagnaði heima- konan Minjee Lee sigri á samtals 13 höggum undir pari. Val- dís lék samtals á 7 höggum yfir pari. Verðlaunafé á mótinu er nokkuð hátt, en keppt er í kvenna- og karlaflokki á mótinu og eru sömu upphæðir í boði fyrir bæði kyn, sem er einsdæmi í atvinnugolfinu. Valdís vann sér inn 1.885 evrur, jafnvirði um 240 þúsunda króna. Lee fékk 62.853 evrur fyrir sinn sigur, sem jafngildir tæplega 7,9 milljónum króna. Valdís leikur á fjórum mótum í Ástralíu og hefst næsta mót í Canberra á föstudaginn. sindris@mbl.is Valdís vann 240 þúsund kr. Valdís Þóra Jónsdóttir Stjarnan hefur bæst í hóp þeirra liða sem samið hafa við nýja bandaríska leikmenn fyrir seinni hluta leiktíðarinnar í Dominos-deild karla í körfubolta. Lokað var fyrir félaga- skipti um mánaðamótin en beiðnir sem bárust fyrir þann tíma eru enn afgreiddar. Stjörnumenn fengu, samkvæmt karfan.is, Darrell Combs til liðs við sig. Hann kemur í stað Sherrod Wright og var síðasti leikur Wright því sigurinn góði á ÍR. Stjarnan fer því ekki sömu leið og sá helmingur liðanna í deildinni sem ætl- ar að deila mínútum hvers leiks á milli tveggja bandarískra leikmanna. KR bættist síðast í þann hóp með því að krækja í kraftframherjann Kendall Pollard. Fyrsti leikur Combs fyrir Stjörnuna gæti orðið gegn Val á fimmtudaginn. Hann er 24 ára og lék með IUPUI-háskólanum. Samkvæmt karfan.is lék hann um skamman tíma í næstefstu deild Ítalíu en var svo í fjórar vikur til reynslu hjá liði í 3. sæti efstu deildar Tyrklands, sem ákvað að semja ekki við hann. Wright kvaddi með sigri á ÍR Sherrod Wright Spánn Levante – Real Madrid............................ 2:2 Espanyol – Barcelona .............................. 1:1 Atlético Madrid – Valencia ...................... 1:0 Staðan: Barcelona 22 18 4 0 60:11 58 Atlético Madrid 22 14 7 1 33:9 49 Valencia 22 12 4 6 42:26 40 Real Madrid 21 11 6 4 45:21 39 Villarreal 22 11 4 7 33:26 37 Sevilla 22 10 3 9 28:34 33 Eibar 22 9 5 8 31:34 32 Celta de Vigo 22 9 4 9 39:32 31 Girona 22 8 7 7 31:29 31 Real Betis 22 9 3 10 37:45 30 Getafe 22 7 8 7 26:21 29 Leganés 21 8 5 8 20:21 29 Athletic Bilbao 22 6 9 7 24:25 27 Real Sociedad 22 7 5 10 41:40 26 Espanyol 22 6 7 9 19:29 25 Alavés 22 7 1 14 19:32 22 Levante 22 3 11 8 20:32 20 Dep. La Coruna 22 4 5 13 24:51 17 Las Palmas 21 4 2 15 16:50 14 Málaga 21 3 4 14 14:34 13 B-deild: Real Oviedo – Sporting Gijon ................ 2:1  Diego Jóhannesson lék allan leikinn fyr- ir Real Oviedo. Ítalía Udinese – AC Milan ................................. 1:1  Emil Hallfreðsson sat allan tímann á varamannabekk Udinese. Sampdoria – Torino.................................. 1:1 Inter Mílanó – Crotone............................ 1:1 Hellas Verona – Roma ............................. 0:1 Atalanta – ChievoVerona ........................ 1:0 Bologna – Fiorentina ............................... 1:2 Cagliari – SPAL ....................................... 2:0 Juventus – Sassuolo ................................. 7:0 Benevento – Napoli .................................. 0:2 Staðan: Napoli 23 19 3 1 50:14 60 Juventus 23 19 2 2 59:15 59 Lazio 22 14 4 4 57:27 46 Inter Mílanó 23 12 9 2 38:18 45 Roma 23 13 5 5 33:17 44 Sampdoria 23 11 5 7 42:32 38 Atalanta 23 10 6 7 35:27 36 AC Milan 23 10 5 8 30:30 35 Udinese 23 10 3 10 36:32 33 Torino 23 7 12 4 33:29 33 Fiorentina 23 8 7 8 33:29 31 Bologna 23 8 3 12 28:35 27 Cagliari 23 7 3 13 22:34 24 Chievo 23 5 7 11 21:40 22 Sassuolo 23 6 4 13 14:41 22 Genoa 22 5 6 11 16:24 21 Crotone 23 5 5 13 18:40 20 SPAL 23 3 8 12 23:42 17 Hellas Verona 23 4 4 15 22:46 16 Benevento 23 2 1 20 13:51 7 A-deild kvenna: Fiorentina – Verona................................ 1:2  Sigrún Ella Einarsdóttir var á vara- mannabekk Fiorentina.  Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir léku ekki með Verona. Frakkland Caen – Nantes ......................................... 3:2  Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leik- mannahópi Nantes vegna meiðsla. A-deild kvenna: Marseille – Bordeaux .............................. 1:0  Fanndís Friðriksdóttir var í liði Mar- seille fram á 70. mínútu. Sviss Young Boys – St. Gallen ......................... 2:0  Rúnar Már Sigurjónsson var í liði St. Gallen fram á 69. mínútu. Zürich – Thun .......................................... 2:4  Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn fyrir Zürich. Tyrkland Karabükspor – Alanyaspor.................... 1:0  Ólafur Ingi Skúlason var ekki í leik- mannahópi Karabükspor. B-deild: Ankaragücü – Elazigspor ...................... 0:0  Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik- inn fyrir Elazigspor. Reykjavíkurmót kvenna Undanúrslit: KR – HK/Víkingur ................................... 1:0 Valur – Fylkir ........................................... 1:0  KR og Valur mætast í úrslitaleik 22. febrúar. Fotbolti.net mót karla Úrslitaleikur A-deildar: Stjarnan – Grindavík ............................... 1:0 Úrslit um 3. sætið: HK – Breiðablik........................................ 2:3 Úrslit um 5. sætið: ÍA – FH ..................................................... 1:2 Kjarnafæðismót karla Völsungur – Magni................................... 2:0  Lokastaðan: KA 13, Þór 13, Völsungur 9, Magni 6, Leiknir F. 3, Tindastóll 0. Faxaflóamót kvenna Stjarnan – FH........................................... 4:2 Vináttulandsleikur U17 kvenna Ísland – Skotland..................................... 4:0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 4., 18. (víti), Helena Ósk Hálfdánardóttir 40., Clara Sig- urðardóttir 70. (víti). KNATTSPYRNA Helga Kolbrún Magnúsdóttir setti tví- vegis Íslandsmet þegar keppni í bogfimi á Reykjavíkurleikunum fór fram í Bog- fimisetrinu við Dugguvog. Keppt var með bæði sveigboga og trissuboga. Keppnin var mjög jöfn og spennandi og þurfti að fara í bráðabana í úrslitaviður- eignum í trissuboga karla og sveigboga kvenna þar sem skotið var einni ör og dómari dæmdi hvor var nær miðju. Eitt Íslandsmet var sett í útsláttar- keppninni. Helga Kolbrún Magnús- dóttir gerði það í útslætti í trissuboga þegar hún skoraði 146 stig en gamla metið var 145. Í undankeppninni í gær bættu tveir keppendur sín eigin Ís- landsmet. Sigurjón Atli Sigurðsson í sveigboga með 579 stigum en fyrra met- ið var 577 stig og Helga Kolbrún Magnúsdóttir í trissuboga með 576 stig- um en fyrra metið var 575 stig frá 2014. Andrés Páll Júlíusson úr ÍR náði um helgina fullkomnum leik eða 300 pinn- um og urðu því 300 leikirnir í keilu- keppninni á Reykjavíkurleikunum í ár orðir samtals þrír en þeir voru tveir í fyrra. Andrés spilaði einn þeirra þá og kann því greinilega vel við sig á leik- unum. Daninn Jesper Agerbo sigraði í karlaflokki en hann varð heimsmeistari árið 2016. Eiginkona hans, Rikke Agerbo, sigraði í greininni á RIG árin 2012 og 2016. sport@mbl.is Ljósmynd/ÍSÍ Methafi Helga Kolbrún Magnúsdóttir bætti tvívegis met. Tvö Íslandsmet hjá Helgu í bogfimi  Andrés náði aftur fullkomnum leik og Hovenkamp sem á miklu betri tíma í greininni en ég. Mér fannst ég þó finna lítið fyrir henni í hlaupinu. Ég hefði viljað fá hana meira með mér og það hefði ýtt á mann að hlaupa hraðar,“ sagði Arna þegar Morgunblaðið spjallaði við hana í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Eitt og annað er á döfinni hjá Örnu á næstunni en henni hefur meðal annars verið boðið til Tyrk- lands. „Um næstu helgi er Norður- landamót og þar langar mig til að hlaupa hraðar en ég gerði núna. Ég Arna Stefanía Guðmundsdóttir úr ÍR sigraði í 400 metra hlaupinu á Reykjavíkurleikunum á 54,39 sek- úndum og hafði þar betur gegn ól- ympíufara frá Hollandi, Evu Hoven- kamp, sem kom í mark á 54,97 mínútum. „Ég er ánægðust með að hafa unn- ið þessa hollensku því ég er ekkert brjálæðislega ánægð með tímann. Ég get svo sem sjálfri mér um kennt því ég fór allt of hægt af stað. Mér finnst alltaf gaman að vinna á heimavelli. Einnig er sterkt að vinna stelpu eins hljóp hraðar á Reykjavíkurleikunum í fyrra heldur en núna. Ég er nokkuð langt frá lágmarkinu fyrir HM innan- húss eins og er en hef fulla trú á að ég geti alla vega saxað eitthvað á það. Ætli ég taki ekki tvö til þrjú mót á næstunni og mér var til dæmis boð- ið á mót í Tyrklandi. Ég er að kíkja á það og ég held að það sé gott fyrir mig á þessum tímapunkti að fara í krefjandi keppni. Ég er best þegar ég er að elta keppinautana. Ég vona að ég nái þremur hlaupum áður en HM verður í mars,“ sagði Arna. Arna vann þá hollensku  Ekki ánægð með tímann  Boðið á mót í Tyrklandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.