Morgunblaðið - 20.02.2018, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018
ÍÞRÓTTIR
Íþróttir
mbl.is
HANDBOLTI
Ívar Bendiktsson
iben@mbl.is
„Ég hlakka fyrst og fremst til vegna
þess að ég hef góða tilfinningu fyrir
þessari breytingu,“ sagði Sigvaldi
Björn Guðjónsson, handknattleiks-
maður, sem skrifað hefur undir
tveggja ára samning við norska
meistaraliðið Elverum. Sigvaldi
Björn gengur til liðs við liðið í sumar
þegar samningur hans við Århus
Håndbold í Danmörku rennur út.
„Mig langaði til þess að takast á við
eitthvað nýtt eftir þrjú ár hjá Århus.
Takast á við nýja áskorun í öðru
landi. Toppliðið í Noregi býður upp á
ýmsa möguleika eins og til dæmis að
leika í Meistaradeild Evrópu,“ sagði
Sigvaldi Björn sem er örvhentur og
leikur í stöðu hægri hornamanns.
Elverum, sem hefur borið æg-
ishjálm yfir önnur lið í norsku úrvals-
deildinni síðustu árin, er sem stendur
í efsta sæti norsku úrvalsdeild-
arinnar, tveimur stigum á undan ÖIF
Arendal, og á auk þess tvo leiki til
góða á Arendal-liðið. Elverum lék í
vetur í Meistaradeild Evrópu en er úr
leik í keppninni um að tryggja sér
keppnisrétt í 16-liða úrslitum. Hjá El-
verum hittir Sigvaldi Björn fyrir
Gróttumanninn Þráin Orra Jónsson
sem gekk til liðs við norsku meist-
arana á síðasta ári.
„Ég lít á það sem framfaraskref á
mínum ferli að ganga til liðs við El-
verum. Þótt norska deildin sé ekki
eins sterk og sú danska þá hefur það
mikið að segja að komast í lið sem
leikur í Meistaradeild Evrópu. Von-
andi gengur það eftir. Meistaradeild
Evrópu er stór gluggi fyrir hand-
knattleiksmenn,“ sagði Sigvaldi
Björn sem verður 24 ára gamall í
sumar.
Stóð til boða nýr samningur
Hann hefur búið í Danmörku frá 12
ára aldri en hóf æfingar með HK í
Kópavogi sem barn áður en fjöl-
skylda hann flutti til Danmerkur.
Þegar foreldrarnir fluttu heim varð
Sigvaldi Björn eftir þar sem hann
hefur stundað nám og vinnu samhliða
handknattleiksiðkun. Sigvaldi Björn
lýkur þriggja ára samningi sínum År-
hus Håndbold um mitt þetta ár. „Mér
stóð til boða nýr samningur hjá År-
hus en mér fannst vera kominn tími
til að reyna eitthvað nýtt, fara út úr
vissum þægindaramma sem ég er í
þessar mundir og taka nýtt skref til
að þróast áfram sem handboltamað-
ur,“ sagði Sigvaldi Björn. „Ef ég ætla
að bæta mig sem handboltamaður þá
þarf maður að þróast og vera
óhræddur við að takast á við nýjar
áskoranir.“
„Eftir því sem forráðamenn Elver-
um segja þá ætla þeir mér stórt hlut-
verk í liðinu á næstu tveimur árum.
Ég kem inn í ungt og skemmtilegt lið
á skemmtilegum stað í Noregi,“ sagði
Sigvaldi Björn og bætir við að samn-
ingarnir við Elverum hafi ekki átt sér
langan aðdraganda.
Fékk stuttan umhugsunartíma
„Það er um hálfur mánuður síðan
ég og umboðsmaður minn ræddum
fyrst saman um þetta mál. Í fram-
haldi má segja að viðræður við Elver-
um hafi farið á fullt. Þær gengu bara
hratt og vel fyrir sig. Ég fékk ekki
mikinn umhugsunartíma enda þurfti
ég þess ekki. Um leið og Elverum
kom inn í dæmið þá var enginn vafi í
mínum huga enda er Elverum eitt af
stóru handboltaliðunum á Norður-
löndum.“
Sigvaldi Björn lék með íslenska
landsliðinu á æfingamóti í Elverum í
byrjun júní á síðasta ári. Hann var í
hópi leikmanna sem þáverandi lands-
liðsþjálfari valdi til þátttöku í mótinu
en hópurinn var skipaður yngri og
óreyndari leikmönnum. Sigvaldi
Björn segist ala þá von í brjósti að
með því að ganga til liðs við sterkara
lið sem hefur mörg járn í eldinum
vaxi möguleikar sínir á að dyrnar að
íslenska landsliðinu ljúkist upp.
„Hugur minn stefnir á íslenska
landsliðið, komast í hópinn og öðlast
fast sæti. Það var virkilega gaman
með landsliðinu í Noregi í júní á síð-
asta ári. Þá fékk maður smjörþefinn.
Mig langar í meira,“ sagði Sigvaldi
Björn Guðjónsson, handknattleiks-
maður og tilvonandi leikmaður Nor-
egsmeistara Elverum, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Framfaraskref að
fara til Elverum“
Sigvaldi samdi við norsku meistarana til tveggja ára
Ljósmynd/Ole Nielsen
Skiptir Sigvaldi Björn Guðjónsson í leik með Århus gegn Randers í dönsku
úrvalsdeildinni. Í sumar færir hann sig yfir til Noregs, til Elverum.
Sigvaldi Björn
Guðjónsson
» Fæddur 4. júlí 1994 og lék
með HK til 12 ára aldurs en
flutti þá til Danmerkur.
» Hefur leikið með Vejle,
Bjerringbro/Silkeborg og síð-
ustu þrjú ár með Århus Hånd-
bold í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik.
» Auk þess að leika með yngri
landsliðum Íslands á hann þrjá
A-landsleiki að baki.
minn síðustu þrjú ár. Hann sýndi
aldrei merki um uppgjöf heldur
hertist við hverja raun, gafst aldrei
upp á þessum langa tíma,“ sagði Pål
Lorentzen, bróðir gullverðlaunahaf-
ans, í samtali við norska fjölmiðla í
gær.
Nokkrar aðgerðir á fótum
Lorentzen er 25 ára gamall.
Hann varð annar í 1.000 m skauta-
hlaupi á HM ungmenna 2012 en var
seinna dæmdur sigur eftir að rúss-
neskur keppandi, sem kom fyrstur í
mark, féll á lyfjaprófi. Frá árinu
2014 hefur ferill Lorentzen verið
þyrnum stráður vegna meiðsla.
Hefur hann m.a. þurft að gangast
undir nokkrar aðgerðir á fótum en
verið heill heilsu í vetur. Af því leið-
ir að Norðmenn gerðu sér vonir um
að hann gæti verið í fremstu röð á
leikunum, gengi allt upp.
Bandaríkin leika til úrslita við
Kanada í íshokkí kvenna þriðju
Vetrarólympíuleikana í röð. Banda-
arólympíuleikum árið 1948. Þess má
til gamans geta að sigurtími Helge-
sen fyrir 70 árum var 43,1 sekúnda.
Tuttugu árum síðar hreppti Magne
Thomassen silfrið í sömu grein.
Nær verðlaunum í 500 m skauta-
hlaupi hafa Norðmenn ekki komist
síðan. Þess utan hafa Norðmenn
ekki hlotið gullverðlaun í nokkurri
grein skautahlaups í 20 ár, eða síð-
an Ådne Søndrål kom fyrstur í
mark í 1.500 m hlaupi karla.
„Lorentzen tókst á ótrúlegan hátt
að halda yfirvegun í stemningunni í
skautahöllinni. Þar skildi á milli
hans og annarra,“ sagði Skarli.
„Síðustu 50 metrana vissi ég að
verðlaun kæmu í minn hlut en ég
lét mig ekki endilega dreyma um
gullið,“ sagði Lorentzen.
Leið Lorentzen að gullverðlaun-
unum hefur ekki verið bein og breið
leið. Hann hefur barist við erfið
meiðsli síðustu þrjú árin. „Saga
hans er mögnuð í ljós þeirra
meiðsla sem hafa plagað bróður
PYEONGCHANG
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Norðmenn unnu í gær sín fyrstu
gullverðlaun í 500 m skautahlaupi í
karlaflokki á Vetrarólympíuleikum í
70 ár þegar Håvard Holmefjord
Lorentzen kom fyrstur í mark í
æsilegri keppni í Pyeongchang.
Hann var aðeins 1/100 úr sekúndu á
undan Kóreumanninum Min Kyu
Cha sem varð annar.
„Þetta er mesta afrek Norð-
manns í skautakeppni Vetrarólymp-
íuleikanna síðan Johann Olav Koss
vann þrenn gullverðlaun á leikunum
í Lillehammer 1994,“ sagði Sondre
Skarli, landsliðsþjálfari Norð-
manna, í samtali við TV2. Lorent-
zen setti um leið ólympíumet, fór
metrana 500 á 34,41 sekúndu.
Norðmaðurinn Finn Helgesen
vann síðustu gullverðlaun Norð-
manna í 500 m skautahlaupi á Vetr-
ríkin unnu öruggan sigur á Finn-
landi, 5:0, í fyrri undanúrslita-
leiknum í gær. Bandaríkin eygja
þar með von um sín fyrstu gull-
verðlaun í íshokkí kvenna Vetraról-
ympíuleikum í 20 ár. Hin viðureign
undanúrslitanna var einnig fremur
ójöfn þar sem kandíska liðið vann
Rússa, 5:0, eftir að hafa skorað þrjú
mörk í þriðja og síðasta leikhluta.
Franski skíðamaðurinn Mat-
hieu Faicre var sendur heim af leik-
unum í gær eftir að hafa tjáð sig
fullfrjálslega við franska fjölmiðla.
Faicre, sem er sambýlismaður Mi-
kaela Shiffrin, ólympíumeistara í
stórsvigi, sagði eftir að hafnað í sjö-
unda sæti í stórsvigi á laugardaginn
að liðsandinn innan franska keppn-
ishópsins væri lélegur. Forráða-
mönnum franska keppnishópsins
þótti Faicre hafa fara yfir strikið
með þessum ummælum sínum og
sendu kappann heim til Frakklands.
Engu máli skipti þótt Faicre bæðist
afsökunar á ummælum sínum.
AFP
Fyrstur Håvard Lorentzen fagnar
sigrinum í Pyeongchang í gær.
Sjötíu ára bið er á enda
Leið Norðmannsins Lorentzen að gullinu hefur verið þyrnum stráð
Ryan Taylor Fær að halda í leikstílinn og hefur svigrúm til athafna hjá ÍR-ingum. Umboðsmaðurinn taldi gott að
hefja atvinnuferilinn á Íslandi. Fékk menningarsjokk. Vanur veðurfarinu frá Indianapolis. Stefnir á sterkari deild. 3