Morgunblaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 skólaboltanum hafði ég annað hlutverk inni á vellinum. Mitt hlutverk var ekki ósvipað og Draymond Green hefur hjá Golden State. Ég var alltaf að kljást við hávaxnari menn en hér er ég oftar að glíma við lágvaxnari menn. Þjálfararnir leyfa mér að spila minn leik hjá ÍR. Ég var ekki bara settur í að taka fráköst og koma boltanum á leikstjórnandann. Ég get þess vegna farið með boltann fram völlinn, ég hef leyfi til að keyra á vörn- ina, skjóta þriggja stiga skotum og gera nánast hvað sem er. Ég verð að hrósa þjálfarateyminu fyrir það í stað þess að breyta mínum leikstíl. Þetta atriði auð- veldaði aðlögunina fyrir mig inni á vell- inum,“ útskýrir Taylor sem var ráðlagt af umboðsmanni sínum að taka tilboði ÍR-inga. Rétt metið hjá umbanum „Umboðsmaður minn hringdi í mig seint í september og sagði mér frá ís- lensku deildinni því hann talda hana vera heppilega til að byrja atvinnu- mannaferilinn. Flóknara var það nú eiginlega ekki og ég veit ekki einu sinni hvort mér bárust önnur tilboð eða aðrar fyrirspurnir. Ég stökk á þetta tækifæri og reyni að vinna eins vel úr því og ég get,“ sagði Taylor og að hans sögn er umboðsmað- urinn með leikmenn á sínum snærum víða um heim og þekkir því landslagið í bransanum. „Ég vissi lítið sem ekkert um Ísland en þegar ég kom hingað þá sá ég kunn- uglegum andlitum bregða fyrir í leikj- um. Fyrsti leikur minn var á móti Tindastóli og þar var Antonio Hester en við höfðum verið í sömu æfingabúð- unum í Miami á Flórída um sumarið. Ég kannaðist við tvö önnur andlit frá Bandaríkjunum, leikmenn sem ég hafði spilað á móti.“ Allt opið í úrslitakeppninni Nú er farið að styttast í að úr- slitakeppnin hefjist með tilheyrandi skemmtun. ÍR er eitt þeirra fjögurra liða sem sýnt hafa mestan stöðugleika í deildinni ásamt Haukum, Tindastóli og KR. Taylor segist ekki sjá fyrir sér eitt lið sem eigi afgerandi mesta möguleika á titlinum í vor. „Öll lið sem komast í úrslita- keppnina eru nógu góð til að vinna. Maður verður að koma rétt stilltur inn í leikina, ekki of spenntur né of slak- ur. Við þurfum að vera einbeittir. Það skemmtilegasta við íþróttir er að þótt eitt lið sé sigurstranglegra en annað þá er ekki sjálfgefið að úrslitin verði í takti við það. Ég sé ekki að neitt lið sé sigur- stranglegast. Við höfum spilað vel og ég tel okkur því eiga fína möguleika þótt ég vilji ekki hljóma hroka- fullur. Allt getur gerst og það hefur til dæmis gerst í NBA-deildinni að lið í átt- unda sæti hafi slegið út lið í fyrsta sæti í úrslitakeppninni.“ Veðrið er ekki vandamál Taylor kann alveg ágætlega við sig í Reykjavík. Hann kemur frá Indianapol- is í Indianaríki, einni fjölmennustu borginni í miðvesturríkjum Bandaríkj- anna. Engin sérstök viðbrigði fylgja því veðurfarinu fyrir Taylor. „Ég kann ágætlega við mig í Reykjavík. Ég er vanur þessu veðurfari en ég var reynd- ar ekki hérna allan tímann sem skamm- degið er sem mest því ég fór heim í jólafrí. Ekki þarf að hafa mikið fyrir mér til að ég sé sáttur. Á meðan ég hef rúm til að sofa í og sturtu til að baða mig þá spjara ég mig. Fólkið er vinalegt, til dæmis allir í kringum ÍR og almennt séð tala Íslendingar ensku,“ sagði Taylor sem safnar kröftum í frítíma sínum en fylgist auk þess vel með bandarískum íþróttum í sjón- varpi. „Ég tel mig vera frekar ró- legan og afslappaðan að eðlisfari. Ég reyni að fá góðan svefn en ég spila tölvuleiki eins og menn af minni kynslóð gera flestir. Ég hef kynnt mér matarmenninguna hérna og það sem þar er í boði. Ég horfi á bandarískar íþróttir, körfubolta en einnig ameríska fótboltann. Ég fer á American bar til að sjá leikina.“ Opinn fyrir áframhaldandi veru Spurður um hvað taki við hjá honum að keppnistímabilinu loknu segist Tay- lor vera opinn fyrir því að spila áfram hérlendis en horfir skiljanlega til þess að spila í deildum þar sem meira er um- leikis. „Ég hef ekki trú á öðru en að ég geti verið atvinnumaður í körfubolta næstu árin og það verður erfitt fyrir mig þegar ég þarf að hætta í íþróttinni. Ég mun leitast við að byggja ofan á mína getu og komast í hærri gæðaflokk. Vonandi verð ég í sterkari deild á næsta tímabili en ef það gerist ekki þá hefði ég ekkert á móti því að koma aftur hingað. Aðal- atriðið er að byggja upp sinn feril á skynsaman hátt,“ segir Ryan Taylor ennfremur við Morgunblaðið. Fær svigrúm til athafna  Bandaríkjamaðurinn Ryan Taylor féll eins og flís við rass við ÍR-liðið  Fékk menningarsjokk við komuna til Íslands  Heppilegt að hefja ferilinn hér Lykilmaður Ryan Taylor hefur skorað 22 stig og tekið 11 fráköst í leik fyrir ÍR í vetur. Karlalið ÍBV í handbolta verður í skálinni í dag þegar dregið verður í 8-liða úrslit Áskor- endabikars Evrópu. Raunar verður einnig dregið til undanúrslita við þetta tækifæri, í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evr- ópu í Vínarborg í hádeginu. ÍBV, sem sló Ramhat frá Ísrael út í 16-liða úrslitum, getur mætt eftirfarandi liðum: AEK Aþenu (Grikklandi), Berchem (Lúxemborg), Fyllingen (Noregi), Madeira Andebol (Portú- gal), Potaissa Turda (Rúmeníu), Dynamo- Victor (Rússlandi), Krasnodar (Rússlandi). Eins og sjá má er mikill munur á hugsanlegu ferðalagi sem bíð- ur Arnars Péturssonar og hans lærisveina, allt frá því að fara til Noregs eða til Rússlands. Fyrri leikir 8-liða úrslita fara fram 24. og 25. mars, og seinni leikirnir viku síðar. sindris@mbl.is Hvert fara Eyjamenn? Arnar Pétursson Topplið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, Manchester City, féll úr leik í 16-liða úrslitum ensku bik- arkeppninnar í gærkvöld þegar liðið tapaði 1:0 fyrir C-deildarliði Wigan. Norður-Írinn eldheiti Will Grigg skoraði sigurmarkið tíu mínútum fyrir leikslok. City, sem er langefst í ensku úr- valsdeildinni og hafði aðeins tapað tveimur leikjum í öllum keppnum á leiktíðinni, á þrátt fyrir tapið enn möguleika á að vinna fjóra titla á leiktíðinni. Það verð- ur hins vegar Wigan sem mætir Southampton í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar sem fara fram dagana 16.- 19. mars. sindris@mbl.is Grigg felldi Golíat Will Grigg Íslensk knattspyrnufélög geta nú sótt um styrki frá UEFA, Knattspyrnu- sambandi Evrópu, sem samtals geta numið allt að 50 þúsund evrum, jafnvirði um 6,25 milljóna króna. KSÍ auglýsti í gær eftir umsóknum um styrkina en þeir eru ætlaðir aðild- arfélögum sem vinna að verkefnum er snúa að háttvísi eða samfélagslegri ábyrgði. Heildarupphæðin, 50 þúsund evrur, getur svo skipst niður á eitt eða fleiri verkefni. Íslensku félögin eru með þessu verðlaunuð af UEFA fyrir háttvísi íslenskra landsliða og félagsliða í leikjum á vegum UEFA frá 1. júlí 2016 til 30. júní 2017. Ísland endaði nefnilega í efsta sæti sérstaks háttvísilista UEFA fyrir þetta tímabil með 8,51 í einkunn eða 0,04 stigum á undan næstu þjóð, Hollandi. Á tímabilinu sem um ræðir lék A-landslið kvenna til að mynda þrjá síðustu leiki sína í undankeppni EM án þess að fá gult eða rautt spjald, og A-landslið karla fékk átta gul spjöld en ekkert rautt í sex leikjum í undankeppni HM. Heildarfjöldi leikja íslenskra landsliða og félagsliða sem taldi í einkunninni var 42. sindris@mbl.is Milljónir vegna háttvísi  Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma viðureign HBC Nantes og Evr- ópumeistarar HC Vardar í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknatt- leik á sunnudaginn. Viðureign liðanna fer fram á heimavelli Nantes í Frakk- landi. Vardar er í efsta sæti A-riðils þegar tvær umferðir eru eftir með 20 stig. Nantes er í öðru sæti, þremur stigum á eftir. Um verður að ræða fimmta leikinn sem þeir félagar dæma í Meistaradeildinni á keppnis- tímabilinu.  Víkingar í Reykjavík hafa samið við norska knattspyrnumanninn Jörgen Richardsen um að leika með þeim næstu tvö árin. Hann er 29 ára gamall, hægri bakvörður, og hefur leikið með Kongsvinger í B-deildinni undanfarin þrjú ár.  Ísland verður í riðli með Þýskalandi, Svíþjóð og Rúmeníu í úrslitakeppni Evrópumóts U20 ára liða karla í hand- knattleik sem fram fer í Slóveníu 19.- 29. júlí. Íslenska liðið var í öðrum styrkleikaflokki fyrir dráttinn. Tvö efstu lið riðilsins komast í 8 liða úrslit. Mótið fer fram í Celje sem er 40.000 manna borg í 80 km fjarlægð frá höfuðborginni Ljubljana. Bjarni Fritz- son er þjálfari U20 ára liðsins.  Hinn 21 árs gamli Christian Cole- man frá Bandaríkjunum bætti heims- metið í 60 metra hlaupi innanhúss á bandaríska meistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fór um síðustu helgi. Coleman kom í mark á 6,34 sek- úndum og bætti heimsmetið um 0,05 sekúndur. Gamla metið átti Maurice Green frá árinu 1998. Coleman náði besta tíma ársins í 100 metra hlaupi á síðasta ári þegar hann hljóp vega- lengdina á 9,82 sekúndum en í úr- slitahlaupinu á HM í London á síðasta ári hafnaði hann í öðru sæti á eftir Bandaríkjamanninum Justin Gatlin en á undan Usain Bolt frá Jamaíku.  Körfuknattleiksmaðurinn Logi Gunnarsson ætlar að leggja landsliðs- skóna á hilluna að loknum leiknum við Tékka á sunnudaginn. Logi staðfesti þetta í samtali við Vísi í gær. Hann á 146 lands- leiki að baki á átján ár- um og er fjórði leikja- hæsti landsliðsmaður Íslands. Íslenska liðið mætir Finnum í Laug- ardalshöll á föstudags- kvöld og Tékkum á sunnu- dag á sama stað en leikirnir eru liðir í undankeppni heimsmeistaramótsins. Eitt ogannað Ryan Taylor tjáði Morgunblaðinu að hann hefði á yngri árum lagt mesta stund á þrjár fremur ólíkar íþróttagreinar: Körfuboltann, am- erískan fótbolta og golf. Skemmtilegt er frá því að segja að Taylor fékk fyrirspurn frá at- vinnumannaliði í ameríska fótbolt- anum, Chicago Bears sem leikur í NFL-deildinni, um að koma í æf- ingabúðir hjá félaginu. Vinnulagið er með þeim hætti hjá liðum í deildinni að haldnar eru æfinga- búðir á milli tímabila þar sem leik- menn geta reynt fyrir sér. Takist þeim að heilla þjálfarana þá geta þeir fengið samning hjá viðkom- andi félagi. Taylor fékk tölvupósta frá „njósnara“ Bears um að koma til æfinga en Taylor gaf það frá sér enda með hugann við körfuboltann og hafði kosið að keppa í þeirri íþrótt í menntaskóla og háskóla. Segir það hins vegar nokkuð um íþróttamanninn Ryan Taylor að at- vinnumannalið úr annarri íþrótt skuli vilja skoða hann þótt hann hafi ekki spilað þá íþrótt af krafti síðan hann var 15 ára gamall. „Margir sögðu við mig að mistök hefðu verið að hafna þessu boði,“ segir Taylor en er hógvær varð- andi þetta þótt augu blaðamanns- ins hafi stækkað nokkuð þegar Taylor hafði orð á þessu. Sjálfur styður hann lið Indianapolis Colts í NFL enda uppalinn í borginni. „Ágætt lið þótt þetta tímabil hafi verið slakt.“ Chicago Bears bauð Taylor til æfinga Morgunblaðið/Hari VIÐTAL Kristján Jónsson kris@mbl.is „Deildin er góð. Hér eru margir góðir leikmenn og þessi deild býður upp á hörkuleiki í hverri umferð. Nokkuð sem er heppilegt fyrir mig á fyrsta ári sem atvinnumaður. Ég vil fá áskoranir og erfiða leiki sem ýta við mér. Slíkt er já- kvætt og laðar fram það besta í manni sem leikmanni. Ekki er hægt að koma hingað með því hugarfari að maður geti rölt í gegnum leikina bara af því maður er frá Bandaríkjunum. Alls staðar er hægt að finna góða körfuboltamenn og íslensku leikmennirnir kunna ýmislegt fyrir sér. Þeir geta nánast allir skotið nokkuð vel. Við komuna til landsins fékk ég menningarsjokk en ég hef að- lagast vel,“ segir Bandaríkjamaðurinn Ryan Taylor sem leikið hefur við hvern sinn fingur með ÍR í Dominos-deildinni í körfuknattleik í vetur. Hefur hann skorað tæplega 22 stig að meðaltali í leik og tekið tæp 11 fráköst að jafnaði. Mestu máli skiptir þó að gamla körfu- boltastórveldið ÍR hefur ekki spilað jafn vel í áratug eða svo og er í baráttunni um efsta sætið í deildakeppninni. „Við höfum spilað góðan körfubolta allt tímabilið en við viljum auðvitað ekki verða of heitir of snemma. Mér reyndist auðveldara að finna taktinn með liðinu heldur en ég bjóst við fyrir fram. Við skemmtum okkur vel og það er mikil- vægast í þessu. Maður verður að njóta þess að vinna leiki því þetta er ekki eins skemmtilegur heimur þegar illa geng- ur. Við eigum þrjá leiki eftir í deildinni áður en úrslitakeppnin skellur á. Fram að því reynum við að fínpússa okkar leik eins og hægt er. Andinn er góður í okk- ar liði og leikmenn og þjálfarar ná vel saman sem er ávallt mikilvægt. Um leið og liðinu gengur vel eru ungir leikmenn einnig að fá tækifæri til að þróa sinn leik. Þeir hafa fengið dýrmæta reynslu og hafa bætt sig síðan ég kom.“ Fær að halda í leikstílinn Taylor er afskaplega ánægður með hlutverk sitt í ÍR-liðinu og hrósar þjálf- arateyminu. Ekki er óvarlegt að segja að hann sé naut að burðum en hreyfi- getan er engu að síður góð og hann get- ur auk þess skotið fyrir utan. „Í há-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.