Morgunblaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 KAPLAKRIKI/MÝRIN Kristján Jónsson Jóhann Ingi Hafþórsson Hornamaðurinn Óðinn Þór Ríkharðs- son tryggði FH sigur á Val 31:30 á ell- eftu stundu þegar liðin mættust í Kaplakrika í Olís-deildinni í hand- knattleik í gær. Einar Baldvin Bald- vinsson, markvörður Vals, varði skot og boltinn barst út í horn til Óðins sem fór beint inn úr horninu og skoraði á síðustu sekúndu leiksins. Óðinn, sem er framtíðarlandsliðs- maður ef ferill hans heldur áfram að þróast eðlilega, hefur átt það til í vetur að spila handbolta í fyrirsögnum. Sig- urmarkið var keimlíkt því sem hann skoraði í grannslagnum við Hauka fyrr á tímabilinu. Náði þá frákasti og skoraði á síðustu sekúndunni. Ætlar Óðinn bara að vera í þessu hlutverki? „Vonandi en samt vonandi ekki því ég var ekki góður í dag þótt gaman hafi verið að enda þetta á flautumarki. Ég brenndi af þremur skotum í leikn- um en svolítið týpískt kannski að skot- ið fari inn undir lokin,“ sagði Óðinn og reyndi heldur að draga úr því hvernig hetjuhlutverkið hefur elt hann uppi. „Þessar æsilegu lokamínútur í vetur hafa ekki allar verið góðar. Við töp- uðum til dæmis Evrópuleikjunum gegn Tatran Preson á færri skoruðum mörkum á útivelli. Þá brenndi ég af í síðasta skotinu. En það er alltaf geggjað að spila hérna í Krikanum og ég myndi halda að langbesta mæt- ingin í deildinni væri hjá okkar áhorf- endum.“ Bæði lið voru nokkuð löskuð en leik- urinn varð engu að síður mjög skemmtilegur. Þjálfararnir voru lík- lega ekki í skýjunum með vörnina hjá liðunum en áhorfendur fengu á hinn bóginn nokkuð fyrir aurinn þegar mörkunum rigndi. Gísli Kristjánsson og Jóhann Karl Reynisson voru ekki með FH en Arnar Freyr Ársælsson lék sinn fyrsta leik í langan tíma og gerði vel. Ýmir Örn Gíslason lék ekki með Val vegna hnémeiðsla og bróðir hans Orri Freyr fékk rauða spjaldið í fyrri hálf- leik. Alexander Júlíusson leysti þá hlutverk línumanns sem eftir var og tvítugur leikmaður, Þorgils Jón Svölu Baldursson, kom inn í miðja vörnina við hlið Alexanders og komst vel frá því. Valsmenn voru yfir svo gott sem allan leikinn en hrukku í baklás í sókn- inni og skoruðu ekki síðustu sjö mín- úturnar. FH gerði síðustu fjögur mörk leiksins og tryggði sér stigin. Stjörnumenn gerðu nóg Í Garðabænum voru heimamenn í Stjörnunni aðeins sterkari en gest- irnir úr Fjölni og urðu lokatölur 31:28. Fjölnismenn áttu fína kafla í leiknum og voru yfir á tímabili, en tilfinningin var alltaf sú að gæði Stjörnumanna yrðu nægilega mikil til að taka stigin tvö og sú varð raunin. Fjölnismenn eru fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni þegar liðið á aðeins fjóra leiki eftir og er brekkan orðin brött. Þrátt fyrir fína spilamennsku á köfl- um í vetur hefur Fjölnir aðeins unnið einn leik og er orðið líklegt að dvölin á meðal þeirra bestu verði aðeins eitt ár. Stjörnumenn eru í fínum málum eftir tvo sigra í röð og þarf ansi margt að gerast til að liðið verði ekki með í úrslitakeppninni. Þeir geta spilað bet- ur en þeir gerðu í gær, en gæðin voru nóg til að komast yfir marklínuna með stigin tvö. Ari Magnús Þorgeirsson og Egill Magnússon skiptust á að rífa sig upp og skora með hörkuskotum og Lárus Gunnarsson byrjaði að verja þegar það skipti mestu máli. Stjarnan lék án Sveinbjörns Péturssonar og Arons Dags Pálssonar í gær og er ljóst að þeirra er saknað og þá sér- staklega Arons, sem heilinn í sókn- arleik liðsins. Allar líkur eru á því að Stjarnan mæti einu af þremur bestu liðum deildarinnar í úrslitakeppninni og þarf liðið að spila betur en í gær til að eiga möguleika á að komast í und- anúrslit. Óðinn spilar handbolta í fyrirsögnum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rautt spjald Orri Freyr Gíslason fékk að líta rauða spjaldið fyrir þetta brot á Einari Rafni Eiðssyni í Kaplakrika í gærkvöld, undir lok fyrri hálfleiksins.  Óðinn skoraði sigurmarkið í lokin  Stjarnan gerði nóg gegn Fjölni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skot Ari Magnús Þorgeirsson skoraði níu mörk fyrir Stjörnuna í gærkvöld. Christian Prokop heldur áfram starfi sínu sem landsliðsþjálf- ari Þjóðverja í handknattleik karla. Það var ákveðið á stjórn- arfundi þýska handknattleikssambandsins í gær þar sem greidd voru atkvæði um framtíð hins 39 ára gamla þjálfara sem tók við af Degi Sigurðssyni fyrir ári. Megn óánægja var með árangur þýska landsliðsins á EM í Króatíu. Ekki bara þótti árangurinn, 9. sæti, vera óviðunandi heldur hrifust menn ekki af leik liðsins. Upp úr dúrnum hef- ur komið að landsliðsmenn hafa átt erfitt með að vinna með Prokop sem á enn fjögur ár eftir af óuppsegjanlegum samn- ingi sínum við þýska handknattleikssambandið. „Ég á ekki von á öðru en að leikmenn gefi áfram kost á sér í landsliðið. Ég er viss um að landsliðið mun gera betur eftir þann lærdóm sem dreginn verður af samtölum síðustu vikna,“ sagði Andreas Michelmann, for- maður þýska handknattleikssambandsins, á blaðamannfundi í Hannover í gær. Þjóðverjar og Danir verða gestgjafar HM karla í byrjun næsta árs. iben@mbl.is Engin uppsögn hjá þýskum Christian Prokop Albert Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skor- aði fyrra mark varaliðs PSV í gær þegar liðið vann 2:1- sigur á Den Bosch í næstefstu deild Hollands. Albert skoraði markið úr vítaspyrnu strax á 8. mínútu en gestirnir jöfnuðu metin skömmu síðar. Sigurmark PSV skoraði svo Sam Lammers um miðjan seinni hálfleik með fallegu skoti. Þeir Albert og Lammers eru meðal ungra leikmanna PSV sem hafa bankað á dyrnar hjá aðalliðinu og fengið að spreyta sig aðeins með því í úrvalsdeildinni í vetur. Albert hefur fengið fleiri tækifæri en hann hefur komið við sögu í sjö leikjum með aðalliðinu í vetur, þó alltaf sem varamaður. Hann hefur hins vegar spilað tíu leiki með varaliðinu í B-deildinni og skorað í þeim sjö mörk. Varalið PSV komst með sigrinum í gær upp í 5. sæti B-deildarinnar en það skiptir litlu máli þar sem liðið má ekki fara upp um deild. Albert kominn með sjö í tíu Albert Guðmundsson Danmörk AGF – SönderjyskE..................................0:0  Björn Daníel Sverrisson var ekki í leik- mannahópi AGF.  Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik- inn fyrir SönderjyskE. Staðan: Midtjylland 21 16 2 3 53:24 50 Brøndby 21 14 5 2 46:20 47 Nordsjælland 21 13 3 5 54:37 42 Horsens 21 7 9 5 27:29 30 København 21 8 5 8 39:29 29 OB 21 7 7 7 27:22 28 Hobro 21 7 7 7 27:26 28 AaB 21 6 9 6 21:25 27 SønderjyskE 21 6 7 8 32:29 25 Silkeborg 21 7 3 11 27:40 24 AGF 21 6 5 10 21:34 23 Lyngby 21 4 7 10 29:45 19 Helsingør 21 5 1 15 16:40 16 Randers 21 3 6 12 18:37 15 Holland B-deild: Jong PSV – Den Bosch............................ 2:1  Albert Guðmundsson skoraði fyrra mark PSV og lék fram á 84. mínútu. England Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Wigan – Manchester City........................ 1.0 Ítalía Lazio – Hellas Verona.............................. 2:0 Staðan: Napoli 25 21 3 1 55:15 66 Juventus 25 21 2 2 62:15 65 Roma 25 15 5 5 40:19 50 Lazio 25 15 4 6 61:33 49 Inter Mílanó 25 13 9 3 40:21 48 Sampdoria 25 12 5 8 44:33 41 AC Milan 25 12 5 8 35:30 41 Atalanta 25 10 8 7 37:29 38 Torino 25 8 12 5 35:30 36 Udinese 25 10 3 12 36:36 33 Fiorentina 25 8 8 9 34:32 32 Genoa 25 8 6 11 21:25 30 Bologna 25 9 3 13 31:38 30 Cagliari 25 7 4 14 23:36 25 Chievo 25 6 7 12 23:42 25 Sassuolo 25 6 5 14 15:43 23 Crotone 25 5 6 14 21:44 21 SPAL 25 3 8 14 23:47 17 Hellas Verona 25 4 4 17 22:50 16 Benevento 25 3 1 21 18:58 10 Spánn Getafe – Celta Vigo .................................. 3:0 KNATTSPYRNA Olísdeild karla FH – Valur ............................................ 31:30 Stjarnan – Fjölnir................................. 31:28 Staðan: FH 18 15 1 2 593:477 31 ÍBV 16 12 2 2 459:405 26 Selfoss 18 13 0 5 537:487 26 Haukar 18 11 1 6 516:448 23 Valur 17 11 1 5 472:457 23 Afturelding 18 9 1 8 478:492 19 Stjarnan 18 7 3 8 504:484 17 ÍR 17 7 1 9 460:457 15 Fram 17 4 2 11 460:526 10 Grótta 17 4 1 12 431:470 9 Fjölnir 18 1 4 13 468:547 6 Víkingur 18 1 3 14 422:550 5 HANDBOLTI 1. deild karla Hamar – Breiðablik.............................. 94:91 Fjölnir – Vestri ..................................... 62:72 FSu – Gnúpverjar............................... 113:92 Staðan: Skallagrímur 20 17 3 2017:1791 34 Vestri 21 15 6 1884:1805 30 Breiðablik 21 15 6 1949:1754 30 Hamar 20 14 6 1889:1771 28 Snæfell 20 11 9 1920:1866 22 Fjölnir 21 8 13 1783:1796 16 Gnúpverjar 20 7 13 1764:1863 14 FSu 21 5 16 1848:1915 10 ÍA 20 0 20 1484:1977 0 KÖRFUBOLTI HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Schenker-höllin: Haukar – Fjölnir ..... 19.30 Vestmannaeyjar: ÍBV – Selfoss .......... 19.30 Hertz-höllin: Grótta – Fram................ 19.30 Valshöllin: Valur – Stjarnan................ 19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Mustad-höllin: Grindavík – ÍR ............ 19.15 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Akureyri: SA Víkingar – Esja ............. 19.30 Í KVÖLD! TM-höllin Garðabæ, Olísdeild karla, mánudaginn 19. febrúar 2018. Gangur leiksins: 5:3, 6:6, 9:7, 11:11, 14:14, 15:16, 17:19, 21:21, 23:23, 25:23, 27:25, 31:28. Mörk Stjörnunnar: Ari Magnús Þor- geirsson 9/3, Egill Magnússon 8, Leó Snær Pétursson 4, Andri Hjartar Grét- arsson 3, Birgir Steinn Jónsson 3, Sverrir Eyjólfsson 2, Garðar Benedikt Sigurjónsson 1, Starri Friðriksson 1. Varin skot: Lárus Gunnarsson 8, Ólaf- ur Rafn Gíslason 1. Utan vallar: 10 mínútur Mörk Fjölnis: Kristján Örn Krist- jánsson 10, Sveinn Þorgeirsson 5, Bjarki Lárusson 3, Sveinn Jóhannsson 3, Arnar Snær Magnússon 2, Breki Dagsson 2, Andri Berg Haraldsson 1/1, Sigfús Páll Sigfússon 1, Bergur Snorrason 1. Varin skot: Bjarki Snær Jónsson 14. Utan vallar: 10 mínútur Dómarar: Sigurgeir M. Sigurgeirsson og Ægir Sigurgeirsson. Áhorfendur: 240. Stjarnan – Fjölnir 31:28 Kaplakriki, Olísdeild karla, mánudag- inn 19. febrúar 2018. Gangur leiksins: 3:3, 6:8, 9:11, 12:14, 14:15, 15:17, 19:20, 21:23, 24:27, 26:28, 29:30, 31:30. Mörk FH: Einar Rafn Eiðsson 8, Ísak Rafnsson 6, Arnar Freyr Ársælsson 5, Ásbjörn Friðriksson 4/3, Ágúst Birg- isson 4, Óðinn Þór Ríkharðsson 4. Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 10, Birkir Fannar Bragason 3. Utan vallar: 6 mínútur Mörk Vals: Magnús Óli Magnússon 6, Alexander Örn Júlíusson 5, Anton Rúnarsson 3/1, Ólafur Ægir Ólafsson 3, Sveinn Aron Sveinsson 3, Orri Freyr Gíslason 3, Vignir Stefánsson 3, Stiven Tobar Valencia 2, Snorri Steinn Guðjónsson 2. Varin skot: Einar Baldvin Baldvins- son 12/1, Sigurður Ingiberg Ólafsson 3. Utan vallar: 8 mínútur Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson. Áhorfendur: 563. FH – Valur 31:30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.