Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018
Mér fannst engu líkara en ég
væri að horfa á Disney-mynd
þegar úrslitin réðust í risasvigi
kvenna á Vetrarólympíuleikunum
á helginni (vestfirska).
Oft hefur farið í taugarnar á
mér þegar skíðafólk byrjar að
fagna sigri á stórmótum þegar
margir eiga í raun eftir að keppa.
Þegar farnar eru tvær ferðir þá
er slíkt kannski eðlilegra. Þá er
alla vega ljóst að munurinn er til
staðar og líkurnar mjög litlar á
því að staðan breytist.
En þegar um er að ræða eina
ferð eins og í risasvigi eða bruni
þá finnst mér í þessu felast
óvirðing gagnvart keppinaut-
unum. Þótt frægustu nöfnin hafi
skíðað niður þá eru úrslitin ekki
endilega ráðin.
Í þessu tilfelli var ólympíu-
meistarinn í greininni frá 2014
með forystuna, Anna Veith
(Fenninger) frá Austurríki, þegar
frægustu nöfnin höfðu skilað sér
í mark. Hún var búin með allan
tilfinningaskalann fyrir framan
ljósmyndarana og sjónvarpsvél-
arnar þegar Ester Ledecká frá
grannríkinu Tékklandi fór af stað
númer 26. Hlæja, gráta og allt
þar á milli. Ledecká sigraði með
minnsta mun, eða einu fátæk-
legu sekúndubroti.
Í því felst einhver fegurð að
hrokafull framkoma hjá stórveldi
í alpagreinum eins og Austurríki,
skuli hafa komið í bakið á því fyr-
ir framan stóran hluta heims-
byggðarinnar. Fjöldi fólks hafði
óskað Veith til hamingju með
sigur sem hún hafði ekki unnið.
Æðsti maður ólympíu-
hreyfingarinnar hafði einnig sést
á spjalli við hana á meðan beðið
var eftir því að „minni spámenn-
irnir“ myndu ljúka sér af. Topp-
urinn á þessu öllu var svo að Le-
decká ætlaði seint að trúa því að
hún væri með besta tímann.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
GOLF
Gunnar Valgeirsson
Los Angeles
Bubba Watson vann Genesis Open
mótið á sunnudag hér í Los Angeles
eftir hörkubaráttu við hóp af kylf-
ingum alla helgina. Þetta var tíundi
sigur hans á PGA móti og í þriðja
sinn sem hann vinnur þessa keppni
hér á Riviera golfvellinum sem er
rúman kílómetra upp hlíðarnar frá
Kyrrahafinu á Santa Monica strönd.
Írinn Graeme McDowell hafði for-
ystuna í keppninni eftir tvo fyrstu
leikdagana, en Bubba Watson tók
síðan tveggja högga forystu eftir að
hafa farið átján holurnar á laug-
ardag á 65 höggum. Watson lék
körfuboltaleik á föstudagskvöld í
keppni tengdri NBA Stjörnuleik-
num hér í Staples Center. Sá leikur
er aðeins til skemmtunar þar sem
þar leikur mest fólk úr skemmt-
anaheiminum. „Ég var bara að
reyna að halda mér heilum í leiknum
og gerði lítið til að eiga hættu á
meiðslum,“ sagði hann við fréttafólk
eftir umferðina á laugardag.
Mótið var mjög jafnt alla helgina
og seint á síðasta leikdeginum leit út
fyrir að allt að sex leikmenn gætu
orðið jafnir í forystunni á níu undir
pari. Í fyrsta sinn um helgina fann
maður að áhorfendur væru loks að
taka við sér eftir að hafa séð Tiger
Woods rúlla út úr mótinu á föstudag.
Aðrir stjörnukylfingar gáfu smám
saman eftir og augljóst var að nýi
uppáhaldsmaður áhorfenda var nú
Bubba Watson.
Watson, Kevin Na og Patrick
Cantlay virtust ætla að berjast til
lokaholunnar um titilinn, en Watson
setti boltann beint í holuna úr
glompu á fjórtándu holu og náði þar
með allt í einu tveggja högga forystu
á ellefu undir pari.
Þetta dugði honum til sigurs
Holuröð 12–15 var erfið fyrir kylf-
ingana alla helgina og par var gott
skor í henni. Watson lék þær holur á
einu undir pari á sunnudag, en það
tókst keppninautum hans ekki. „Ég
átti fjögur erfið pútt þetta sex til níu
jarda frá elleftu til þrettándu holu og
setti þau öll niður. Fuglinn úr glomp-
unni gerði þetta mun léttara fyrir
mig því að ég sá að keppinautar mín-
ir áttu í erfiðleikum. Watson hafði
ekki unnið PGA mót í tvö ár og hann
átti við heilsuerfiðleika að etja síð-
asta ár. „Maður veit aldrei hvort
maður á eftir að vinna annað PGA
mót þegar svo langt hefur liðið síðan
maður vann síðast. Ég er þó nú aftur
heill heilsu og ánægður að hafa náð
tíu sigrum sem hefur verið markmið
allan ferilinn.“
Watson er sérstakur leikmaður í
bandaríska golfheiminum. Hann er
ekki eins fágaður í framkomu og
flestir kylfingarnir á PGA mótunum.
Hann er mun líklegri til að sýna til-
finningar sínar á almannafæri. Hann
gróf andlit sitt í öxl aðstoðarmanns
sín og grét um leið og síðasta skotið
fór í holuna í lokin. Watson er líkur
Phil Mickelson í leikstíl. Hann hefur
nóg vald á bolanum til að geta reynt
skot sem flestir aðrir PGA kylfingar
láta óreynd.
Þegar hann nær eins góðum teig-
skotum og í þessu móti er voðinn vís
fyrir keppinauta hans.
Vegna þessa leikstíls er Watson
mjög vinsæll hjá áhorfendum. Það
var augljóst eftir að Tiger Woods féll
úr leik um helgina. Áhorfendur
þurftu ekki að leita lengra en til
Bubba til að finna leikmann til að
halda með.
Hann var vinsæll sigurvegari
meðal áhorfenda þegar hann fékk
verðlaunin afhent þegar skuggar
lengdust í gilinu seinnipart eftirmið-
dagsins þar sem völlurinn liggur.
Allir komnir til leiks
Þetta mót var það sterkasta það
sem af er golfkeppnistímabilinu hér
vestra hjá PGA atvinnumönnunum
rétt eins og í fyrra. Eins og undirrit-
aður benti á fyrir ári síðan á þessum
síðum hefst golfkeppnistímabilið hjá
PGA strax eftir áramótin í Hawaii.
Það flyst síðan í febrúar hingað til
Kaliforníu og í eyðimörkina í Ari-
zona áður en mótin flytjast austur á
við til Florida og loks á fyrsta stór-
mót ársins, Masters mótið í Georgíu,
í apríl. Keppnin dreifist síðan um
fylkin austanmegin það sem eftir lif-
ir árs.
Forráðamenn mótsins hér hafa nú
náð að laða að alla bestu kylfinga
heimsins ár eftir ár, þannig að það er
ávallt spennandi að sjá hvernig topp-
kylfingunum gengur gegn sterkasta
leikhóp ársins hér í Los Angeles.
Meiri stemning vegna Tigers
Enginn einn leikmaður hefur náð
að taka kórónu besta leikmanns
heimsins til lengdar síðan Tiger
Woods hélt henni yfir áratug, og
hafa margir verið til kallaðir. Dustin
Johnson var sá síðasti eftir að hann
vann þetta mót í fyrra. Af þeim sök-
um langar margt golfáhugafólk að fá
einhvern einn leikmann sem virðist
skera sig úr.
Það var augljóst þegar undirrit-
aður mætti á mótið á öðrum keppn-
isdeginum á föstudag. Í fyrra var
leikmannahópurinn rétt eins sterkur
og í ár, en það var augljóst strax og
ég gekk inn á völlinn að mun fleira
fólk var í áhorfendasvæðunum og
það virtist miklu meiri stemming.
Mest út af veru Tiger Woods á leik-
vellinum eftir langan tíma.
Það var ótrúlegur fjöldi fólks að
fylgjast með honum hita upp og
strax við upphafsteigskotið var mér
ljóst að það voru hundruð áhorfenda
sem fylgdu honum um allan völlinn.
Ég fylgdi þessum hóp þrjár fyrstu
holurnar en vegna fjöldans var erfitt
að sjá vel til kylfinganna, þar á með-
al Rory McIlroy.
Augljóst er að áhorfendur á PGA
mótum vilja fátt meira en að sjá Wo-
ods berjast um toppsæti á mótum,
en það mun enn þurfa að bíða því
augljóst er að hann á nokkuð í land
til að komast í toppform. Hann lék
þokkalega á fyrsta leikdeginum, en á
föstudag lék hann fjögur skot yfir
pari og missti af lestinni að geta leik-
ið tvo síðustu dagana þar sem aðeins
helmingurinn af leikmönnum í PGA
mótunum sem hefja það leika tvo
síðustu dagana, Woods virtist ekki
mikið vonsvikinn á blaðamannafundi
eftir umferðina á föstudag. „Ég lék
alls ekki vel í dag. Öll upphafshöggin
fóru til vinstri og púttin voru flest af-
leit. Það er svo ólíkt að spila í keppn-
um miðað við að leika á heimavelli
þegar maður er að ná sér úr
meiðslum. Ef ég ætla mér að komast
í toppbaráttuna á mótum verð ég
einfaldlega að keppa oftar. Ég hef
sett mér það markmið og verð því að
vera þolinmóður á meðan ég finn
mig aftur í PGA mótum.“
gval@mbl.is
Tíundi sigurinn hjá Bubba
Fyrsti sigurinn hjá Bubba Watson í tvö ár á PGA-mótaröðinni Vinsæll hjá
áhorfendum vegna leikstílsins Ótrúlegur fjöldi sem fylgir Tiger Woods
AFP
Sigurvegari Bubba Watson metur stöðuna á átjándu og síðustu holunni í Los Angeles í fyrrinótt.
LeBron James var valinn besti leik-
maðurinn í Stjörnuleik NBA í fyrri-
nótt, í þriðja skiptið á ferlinum, en
þessi árlega körfuboltahátíð Banda-
ríkjamanna fór fram í Los Angeles.
Að þessu sinni mættust ekki úr-
valslið Austur- og Vesturdeildanna
eins og áður, heldur var keppn-
isformið brotið upp með því að Le-
Bron James og Stephen Curry, sem
urðu efstir í atkvæðagreiðslu fyrir
Stjörnuleikinn, völdu sitt liðið hvor
eftir ákveðnu fyrirkomulagi.
LeBron hafði betur í því uppgjöri,
148:145, í leik sem þótti líkjast meira
alvöru körfuboltaleik en sýning-
arleikir margra undanfarinna ára. Í
fyrra var t.d. enginn varnarleikur á
boðstólum, leikurinn fór 192:182, og
þessvegna var fyrirkomulaginu
breytt.
„Þetta var vel heppnað fyrir alla,
ekki bara fyrir leikmennina og deild-
ina, en líka fyrir stuðningsmennina
og alla sem fylgdust með. Helgin var
frábær og lokapunkturinn eins og
hann átti að vera,“ sagði LeBron
James sem fór fyrir sínu liði með 29
stigum, 10 fráköstum og 8 stoðsend-
ingum. vs@mbl.is
AFP
Bestur LeBron James tekur við viðurkenningunni eftir leikinn.
LeBron bestur í endur-
bættum Stjörnuleik
Það verður sann-
kallaður stór-
leikur á Stamford
Bridge í kvöld
þegar Englands-
meistarar
Chelsea taka á
móti Barcelona í
fyrri viðureign
liðanna í 16-liða
úrslitum Meist-
aradeildar Evr-
ópu í knattspyrnu.
Hvort sem fólk trúir því eða ekki
þá hefur Lionel Messi aldrei tekist
að skora mark gegn Chelsea í Evr-
ópuleik. Messi hefur mætt Chelsea
átta sinnum og hefur ekki tekist að
finna netmöskvana í þær 655 mín-
útur sem hann hefur spilað gegn
Lundúnaliðinu. Í þessum átta leikj-
um hefur Messi aðeins einu sinni
verið í sigurliði.
Barcelona hefur aðeins tapað ein-
um af 38 leikjum sínum í öllum
keppnum á leiktíðinni og er með sjö
stiga forskot á toppi spænsku 1.
deildarinnar. Það hefur hins vegar
gengið á ýmsu hjá Chelsea-liðinu á
leiktíðinni. Englandsmeistararnir
hafa tapað sex leikjum í úrvalsdeild-
inni og eru í fjórða sætinu, 19 stigum
á eftir Manchester City sem trónir á
toppnum.
Í hinum leik kvöldsins eigast við
Bayern München og Besiktas.
gummih@mbl.is
Skorar Messi
loksins hjá
Chelsea?
Lionel
Messi