Morgunblaðið - 27.03.2018, Side 1
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Það var þungu fargi létt af mér,“
sagði Sverre Andreas Jakobsson,
þjálfari Akureyrar handbolta-
félags, þegar Morgunblaðið sló á
þráðinn til hans í gær og spurði út
í liðanina eftir að lið hans tryggði
sér sæti í Olísdeild karla á næstu
leiktíð. Akureyri innsiglaði sigur
og efsta sæti næst efstu deildar,
Grill 66-deildarinnar, með sigri á
HK í Höllinni á Akureyri á föstu-
dagskvöldið, 26:20.
Akureyri handboltafélag féll úr
Olísdeildinni fyrir ári og í fram-
haldinu ákvað KA, sem var annar
angi liðsins, að hætta samstarfinu
við Þór um Akureyrarliðið. KA hóf
á ný eigin útgerð með meistara-
flokkslið í karlaflokki. Þeir sem
voru á annarri skoðun en KA-
menn ákváðu að halda ótrauðir
áfram keppni undir merkjum Ak-
ureyrar handboltafélags. Þegar
upp var staðið á föstudagskvöldið
hafnaði Akureyri í efsta sæti en
KA í öðru sæti og fer í umspil
ásamt þremur öðrum liðum um
eitt laust sæti í efstu deild á næsta
keppnistímabili.
Framan af leiktíðinni var Akur-
eyrarliðið í öðru sæti en hélt uppi
dampi eftir áramótin og fékk 15 af
16 stigum mögulegum í síðustu
átta leikjunum eftir áramót. Sigur
á heimavelli á móti KA og á úti-
velli gegn ungmennaliði Hauka
skiptu nánast sköpum. „Eftir þetta
var það í okkar höndum að halda
efsta sætinu með tveggja til
þriggja stiga forskot á næsta lið.
Þessi staðreynd hélt okkur við efn-
ið allt til loka,“ sagði Sverre og
viðurkenndi að í lokaleiknum við
HK á föstudaginn í Höllinni á Ak-
ureyri hefðu menn lítið oft á leik-
klukkuna, oftar en venjulega að
minnsta kosti.
Fundum styrkinn þegar á leið
„Það var alltaf markmiðið að
endurheimta sæti í deildinni þrátt
fyrir það sem á undan var gengið.
Við vorum hinsvegar ekkert vissir
um að við værum með lið til þess
að vinna deildina. Þegar á keppn-
istímabilið leið þá fundum við að
það var nægur styrkur í liðinu til
þess að ná efsta sætinu. Ég er
mjög ánægður með að okkur tókst
að halda dampi til loka. Ég er viss
um að við áttum sigurinn skilið,“
sagði Sverre sem ákvað í umbrot-
unum fyrir ári að standa við sinn
samning og þjálfa Akureyrarliðið
þrátt fyrir að óljóst væri hvaða
leikmönnum hann hefði úr að spila.
Nokkrir leikmenn þáverandi Ak-
ureyrarliðs fóru í KA og aðrir
fluttu suður til náms.
„Þegar ég skrifaði undir samn-
ing þess efnis að halda áfram að
þjálfa Akureyarliðið lá ekki skýrt
fyrir hvaða leikmenn myndu skipa
liðið þegar æfingar hæfust um
sumarið. Þegar frá leið skýrðist
hvaða leikmenn ætluðu að vera um
kyrrt og þá var unnið út frá því.
Ég er bara þakklátur þeim fyrir
að hafa gefið kost á sér á að vera
áfram og halda í þessa vegferð
með mér sem keppnistímabilið hef-
ur verið,“ sagði Sverre og bætti
við.
„Menn náðu fljótt vel saman.
Við ýttum öllum ríg eða sundr-
ungu frá okkur og einbeittum okk-
ur að því sem skipti máli sem var
að búa til handboltalið. Vinnan
hófst og uppskeran liggur nú fyrir.
Veturinn hefur verið afar
skemmtilegur að mörgu leyti,“
sagði Sverre sem hefur haft fyrr-
verandi samherja og fóstbróður úr
vörn landsliðsins, Ingimund Ingi-
mundarson, sér við hlið við þjálf-
unina.
„Ég reikna með að verða áfram
þjálfari Akureyrarliðsins. Ég hef
ekki gengið frá einu né neinu í
þeim efnum ennþá en hef rætt við
forráðamenn félagsins og sé ekki
fram á annað en að halda áfram
mínu starfi. Vonandi verður form-
lega gengið frá samkomulagi á
næstu dögum,“ sagði Sverre.
Byrjað að skipuleggja
næsta tímabil
Sverre segir menn vera byrjaða
að velta næstu leiktíð fyrir sér.
Þrír leikmenn Akureyrar þurfa að
gangast undir smáaðgerðir vegna
meiðsla. Þar sem keppnistíma-
bilinu sé lokið sé lögð áhersla á að
þeir komist sem fyrst undir lækn-
ishendur svo þeir verði klárir í
slaginn þegar æfingar fyrir næstu
leiktíð hefjast. Eins þarf að kanna
möguleika á styrkingu liðsins.
„Stjórnin er að vinna í sínum
málum varðandi styrktarsamninga
og við að þreifa fyrir okkur með að
fá leikmenn til okkar. Við þurfum
ekki marga leikmenn en réttu
mennina. Meðal annars þurfum við
að fá meiri reynslu í hópinn sem
er að mestu skipaður ungum leik-
mönnum,“ sagði Sverre sem legg-
ur áherslu á að liðið verði áfram
að mestu byggt upp á heimamönn-
um. „Við erum með fjölmennan
hóp af yngri leikmönnum, meðal
annars í ungmennaliði okkar, sem
geta vel komið inn í aðalliðið á
næstu tveimur árum. Við erum að
minnsta kosti bjartsýnir um þessar
mundir,“ sagði Sverre Andreas
Jakobsson, þjálfari Akureyrar
handboltafélags.
Erum bjartsýnir núna
Sverre verður áfram þjálfari Akureyrar handboltafélags Stór áfangi að end-
urheimta sæti í Olísdeildinni Nægur efniviður en þarf meiri reynslu í hópinn
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ánægður Sverre Jakobsson faðmar Hafþór Má Vignisson liðsmann sinn þegar sigur í Grill 66-deildinni var í höfn.
Gleði F.v.: Patrekur Stefánsson, Jóhann G. Sævarsson, Hilmir Kristjánsson,
Lukas Simanavicius, Arnþór Gylfi Finnsson, Friðrik Svavarsson, Brynjar
Hólm Grétarsson, Arnþór Þorri Þorsteinsson og Arnar Þór Fylkisson.
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna Hinn 33 ára gamli Jefferson Farfán er þekktasti leikmaður perúska landsliðsins í knattspyrnu
sem mætir Íslandi í vináttulandsleik í New Jersey í nótt. Hann hefur ekki alltaf verið til fyrirmyndar. 4
Íþróttir
mbl.is
Lærisveinar Lars
Lagerbäck í
norska karla-
landsliðinu í
knattspyrnu
fögnuðu í gær
1:0 sigri á Albön-
um í vináttu-
landsleik í Elbes-
an í Albaníu.
Sigurd Rosted,
leikmaður belg-
íska liðsins Gent, skoraði sig-
urmarkið á 70. mínútu leiksins en
þetta var hans fyrsti landsleikur.
Rosted kom inná á 62. mínútu og
hann var ekki lengi að stimpla sig
inn.
Þetta var annar sigur Norð-
manna á fjórum dögum en þeir
unnu öruggan 4:1 sigur gegn Ástr-
ölum á föstudagskvöldið.
Aftur fagnaði
Lagerbäck
Lars
Lagerbäck
Atvinnukylfing-
urinn Ólafía Þór-
unn Kristins-
dóttir keppir á
sínu fyrsta risa-
móti á árinu á
LPGA-mótaröð-
inni í vikunni en
hún er á meðal
keppenda á ANA
Inspiration sem
hefst í Kaliforníu
í Bandaríkjunum á fimmtudaginn.
Mótið fer fram á Mission Hills
Country Club í Rancho Mirage í
Kaliforníu. Þetta verður frumraun
hennar á þessu móti. Hún er þar
með fyrsti íslenski kylfingurinn
sem leikur á þessu risamóti.
gummih@mbl.is
Á stórmót
í Kaliforníu
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
Evrópumeistarar
Portúgala stein-
lágu fyrir Hol-
lendingum, 3:0,
þegar þjóðirnar
áttust við í vin-
áttuleik sem
fram fór í Sviss í
gærkvöld.
Memphis
Depay, Ryan
Babel og Virgil
van Dijk skoruðu mörk Hollend-
inga í fyrri hálfleik en Portúgalar
léku manni færri síðasta hálftíma
leiksins eftir að Joao Cancelo var
vikið af velli.
Cristiano Ronaldo fór af velli á
68. mínútu í liði Evrópumeist-
aranna eftir að hafa átt erfitt upp-
dráttar. Hann verður í eldlínunni
með Real Madrid í Las Palmas á
laugardagskvöld. sport@mbl.is
Ronaldo og
félagar stein-
lágu í Sviss
Cristiano
Ronaldo